Fréttatíminn - 04.11.2016, Blaðsíða 26
Það var átak fyrir leikarahjónin Unni Ösp Stef-
ánsdóttur og Björn Thors að taka að sér aðal-
hlutverkin í sýningunni Brot úr hjónabandi sem
frumsýnd verður í Borgarleikhúsinu í kvöld. Tak-
markaður fjöldi sýninga er í boði því að Unnur á
von á sér og átökin í verkinu eru mikil. Leikverk-
ið kemur úr sænsku sjónvarpi og hugarheimi
snillingsins og kvikmyndaleikstjórans Ingmars
Bergman, en það opnaði umræðu um hjóna-
bönd og skilnaði upp á gátt á sínum tíma.
Hjónaband sem brotnar
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Ég var í þrjá mánuði að skrifa þetta, en mest allt líf mitt að reyna það,“ sagði sænski kvikmyndaleikstjórinn
Ingmar Bergman um sjónvarps
þættina sína Brot úr hjónabandi
(s. Scener ur ett äktenskap) sem
hann leikstýrði árið 1973. Þættir
nir voru sex talsins og skörtuðu
norsku leikkonunni Liv Ullmann
og sænska leikaranum Erland Jos
ephson í hlutverkum Marianne
og Johan. Þeir lýsa niðurbroti tíu
ára hjónabands þeirra, en síð
ar var sögunni þjappað saman í
eina langa kvikmynd. Bergmann,
sem þekktur var fyrir listrænar
kvikmyndir sínar, naut allt í einu
almannahylli fyrir persónulega
sýn á bresti í hjónabandi.
Hjónabandið hjá Marianne og
Johan er að rakna upp á saumun
um, þó svo að í upphafi sögu virð
ist allt vera í ágætu standi á yfir
borðinu. Sjálfur var Bergman þá í
fimmta hjónabandi sínu og hafði
skilið við allar fyrri konur sínar,
auk Liv Ullmann sem hann bjó
með um fimm ára skeið í óvígðri
sambúð. Börn leikstjórans með
konunum í lífi hans urðu alls níu
talsins.
Gríðarlegar vinsældir
Sýningar á Brotum úr hjónabandi
í Svíþjóð árið 1973 vöktu þjóðar
athygli, en götur landsins eru
sagðar hafa tæmst þegar þættirnir
voru í sjónvarpinu. Leikstjórinn
Bergman var, þrátt fyrir skraut
legan feril í tilfinningalegum hlið
um lífsins, stoppaður af ókunnugu
fólki úti á götu sem vildi fá hjá hon
um ráð um eigin sambönd þess
Árið 2000 gaf bandaríski sálfræðingurinn John Gottman út bókina The Seven Principles of Making
Marriage Work sem haft hefur nokkur áhrif á hjónabandsráðgjöf á Vesturlöndum. Þar setur hann
fram sjö verkefni hjóna í vanda:
Víkka út „ástarlandakortið“
„Ástarlandakortið“ er sá hluti heilans þar sem við
geymum upplýsingar um makann, um áhyggjur
hans, vonir og metnað í lífinu. Gottman vill meina
að hamingjusöm pör leggi rækt við skilning á mak
anum og það hafi áhrif á væntum
þykju og aðdáun.
Rækta væntumþykju og aðdáun
Með því að íhuga sambandið og
makann og hvað gerir það að
verkum að okkur þykir vænt um
hann eða hana, leggjum við rækt
við væntumþykju og aðdáun.
Samræður og íhugunaræfingar
Gottman geta styrkt þetta.
Að snúa að hvort öðru
Það litla skiptir máli. Það er mik
ilvægt bregðast vel við tilboðum
eða óskum um athygli, hlýju,
húmor eða stuðning frá makan
um. Tengslin styrkjast.
Að samþykkja áhrif
Gottman telur mikilvægt að við samþykkjum að
makinn hafi áhrif á líf okkar og ákvarðanatöku, að
við tökum skoðanir og tilfinningar makans með í
reikninginn.
Að leysa það sem er hægt að leysa
Gottman smíðar módel þar sem upphafinu á sam
tali parsins um vandamál sín er stýrt og það mýkt
upp. Dregið er úr gagnrýni og ásökunum og parið
lærir inn á umræðu um allt sem snýr að endurbót
um. Reynt er að tempra neikvæðni,
slegið á spennu og opnað hægt og
rólega á málamiðlanir.
Að festast ekki í sama fari
Í samræðum um vanda sinn eiga
pör sem sækja sér aðstoð sér
fræðinga í hættu að festast í um
ræðunni. Gottman vill meina að
sama hve djúpt farið er sem parið
festist í, þá geti það komist upp úr
farinu með hvatningu og vilja til að
kanna falin vandamál sem raun
verulega valda vandanum.
Sameiginleg merking
Gottman lýsir sameiginlegri merk
ingu parsins sem andlegri vídd
sambandsins sem hefur með innra
líf parsins að gera. Sé slíkur merk
ingarheimur til staðar telur Gottman líklegra að
átök í sambandinu séu léttvægari og vandamálin
eiga erfiðara með að grafa um sig.
og hjónabönd. Í kjölfar þáttanna
hækkaði skilnaðartíðni verulega í
Svíþjóð og það var rakið til áhrifa
þáttanna. Umræða um skilnaði og
erfiðleika í samböndum opnaðist
upp á gátt.
Nokkrum árum síðar, árið 1981,
var það Ingmar Bergman sjálfur
sem útbjó útgáfu af verkinu fyrir
leiksvið og leikstýrði því sjálf
ur í München í Þýskalandi. Sú
útgáfa hefur farið víða og kemur
nú í Borgarleikhúsið, í leikstjórn
Ólafs Egils Egilssonar og þýðingu
Þórdísar Gísladóttur. Þar eru það
hjónin Björn Thors og Unnur Ösp
Stefánsdóttir sem fara með aðal
hlutverkin, leika hjónin Jóhann og
Maríönnu, tvö ein á sviðinu.
„Þessir þættir opnuðu augu
fólks í Svíþjóð um að það væri yfir
höfuð hægt að skilja,“ segir Unnur
Ösp. „Það var auðvitað áskorun að
fjalla um þetta í dag á tímum þegar
annar hver maður í kringum
mann virðist vera skilinn.“
Bergman var hins vegar á því
að á þessari sögu sinni mætti gera
breytingar og því er verkið heil
mikið fært til nútímans. „Þetta
verk er klassískt í umfjöllun sinni
um samskipti hjóna og samskipti
foreldra og því öskraði verkið á
okkur öll sem að því stöndum. Það
heillaði okkur upp úr skónum.
Við lögðum mikla vinnu í hand
ritið með Ólafi Agli og ákváðum
að draga þetta eins nálægt okkar
tíma og lífi og mögulegt var. Verk
ið er því togað á nærgöngulan og
hættulegan stað gagnvart ekki
bara okkur tveimur heldur öllum
hópnum sem að verkinu kemur.
Við vildum gera þetta alveg inn að
beini, án þess þó að þetta snúist
neitt um okkur tvö. Við erum ekki
Unnur og Björn á sviðinu,“ segir
Unnur.
Spegill á lífið
Þau hjónin segjast ekki hafa velt
sér mikið upp úr túlkun Liv Ull
mann og Erland Josephson á
hjónunum Jóhanni og Maríönnu.
„Maður getur aldrei leikið annan
leikara,“ segir Björn og bætir því
Leikarahjónin Unnur Ösp Stefáns
dóttir og Björn Thors hafa skilið mörg
um sinnum á dag á síðustu vikum, sem
hjónin Jóhann og Maríanna í verkum
Brot úr hjónabandi eftir Ingmar
Bergman. Mynd | Börkur Sigþórsson.
Jólablaðið
Þann 24. nóvember
auglysingar@frettatiminn.is
531 3310
Endilega hafið
samband við
okkur til að
vera með
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016