Fréttatíminn - 04.11.2016, Page 28
við að þau hafi vissulega horft
á sjónvarpsþættina þegar þau
voru að velta því fyrir sér hvort
þau ættu að taka hlutverkin að
sér. „Þetta verk er alveg furðulega
merkilegur spegill á líf fólks á okk-
ar reiki og á samskipti allra para í
kringum mann. Það eru senur og
samtöl þarna sem eru bara eins og
atriði úr lífi manns. Hversdagslegt
líf sem maður kannast við, sett á
svið á raunsæjan hátt.“
Hjónin Jóhann og Maríanna
koma vitanlega úr dekruðum
skandinavískum miðstéttar-
veruleika þar sem vandamálin
kunna oft að vera léttvæg miðað
við örbirgðina sem finna má víða í
hinum stóra heimi. „Þá tekur fólk
stundum upp á því að sækjast eftir
einhverri spennu í lífinu, til að
vega upp á móti einhverjum leiða
eða flatneskju í hversdeginum,“
heldur Björn áfram.
Unnur bendir á að Brot úr
hjónabandi hafi einhverra hluta
vegna verið að slá aftur í gegn
víða um heim á síðustu árum.
Margar leiðir hafa verið farnar í
uppsetningum á verkinu og það er
nauðsynlegt að uppfæra efnið að
einhverju leyti. Björn segir að þó
að verkið sé ekki nema fjörutíu og
þriggja ára gamalt þá hafi margt
breyst í samfélaginu. „Þetta er nú-
tímalegt verk en það er nauðsyn-
legt að uppfæra það svo það haldi
styrkleika sínum. Til dæmis hefur
margt varðandi kynjahlutverk inni
á heimilinu breyst mikið. Sumt í
upphaflega textanum er næstum
ekki trúverðugt í dag. Jóhann talar
til dæmis aldrei um börnin sín og
hlutverk móðurinnar á atvinnu-
markaði og hlutverk föður inn á
heimili eru líka eitthvað skökk
miðað við nútímann. Allt var þetta
með þeim hætti að það þurfti
endurskoða við slíka aðlögun,“
segir Björn. Unnur bætir því við
að þetta sé auðvitað gleðilegt því
það sýni að við færumst eitthvað
áfram í jafnréttismálum á þeim
árum sem liðin eru.
Saga fólksins í salnum
Þegar við hittum Björn og Unni
eru þau nýbúin með fyrsta rennsli
á verkinu með áhorfendum. „Ég
fann það mjög sterkt að við vorum
að segja sögu fólksins í salnum,“
segir Unnur Ösp. „Þetta er ekki
endilega tilfinning sem maður
fær mjög oft í leikhúsi, því að þar
eru margar sögur fjarlægari fólki
og raunveruleika þess en einmitt
þessi saga af sambandi sem er að
losna upp.“
Átökin milli hjónanna í verk-
inu eru mikil, sálfræðihernaður-
inn harður og margt sem vellur
upp á slétt yfirborðið. Þau Björn
og Unnur segja að það hafi verið
stór ákvörðun að taka hlutverk-
in að sér en hugmyndin um að
þau tækju verkið að sér kom frá
leikhússtjóranum. „Þetta stend-
ur nærri veruleika
manns og það
er ekkert á
hverjum degi
sem það
gefast tæki-
færi á að
tækla slík
hlutverk.
Við höfum
sjaldan
þurft að
hugsa okkur svona vel um, en ég
efast um að maður myndi gera
þetta ef hjónabandið héngi á blá-
þræði,“ segir Unnur og þau hlæja
bæði. „Við, eins og aðrir, þekkjum
fjölmargar sögur af leikarapör-
um sem hafa farið flatt á að taka
að sér svona hlutverk. Það kom
mér því mjög á óvart hvað þetta
var auðvelt, því að þó maður hafi
verið að rífast og skilja við karlinn
sinn oft á dag í vinnunni, þá jókst
kærleiksstigið á heimilinu þvílíkt
á meðan.“
Átökin í verkinu eru slík að þau
Björn og Unnur áttu erfitt með
að æfa línurnar sínar heima við,
nema þegar þau voru ein heima.
Það varð til þess að nágrannarn-
ir höfðu nokkrar áhyggjur af
sambandi leikaranna á tímabili.
„Vinnan varð samt eins og löng
og góð hjónabands-þerapía, af
því að maður var svo þakklátur
fyrir að vera ekki að upplifa þessa
dramatík á sviðinu nema bara í
þykjustunni,“ segir Unnur bros-
andi.
Tíminn
Í bakgrunni verksins er veruleiki
sem fjölmargir foreldrar þekkja
ágætlega á eigin skinni. Tími til
að rækta fjölskyldulífið renn-
ur fólki úr greipum. „Í upphafi
verksins vita þau hjónin ekki
alveg hvaða leiði er kominn í
sambandið. Það er mikið að
gera, það er mikið álag og ekki
alltaf tími til að sinna makan-
um. Vinnan kallar og stúss-
ið í kringum börnin og það er
heldur ekki alveg tími til að sofa
saman og rækta tengslin, þannig
að þegar við hittum þessi hjón
þá eru þau aðeins byrjuð að
greina það hvort eitthvað
sé að. Svo flettist ofan af
þessu smám saman og
sprungurnar
koma í ljós,“ segir Unnur. Björn
bætir við að þetta sé á einhvern
hátt vandamál í samtímanum.
„Fólki gefst illa tími til að hlusta á
sjálft sig og hlusta eftir umhverfi
sínu, finna kyrrð og tíma til að
nota með fjölskyldu sinni.“
Aðstandendur sýningarinnar
hafa rætt heilmikið um það að
maður þurfi að þekkja og elska
sjálfan sig, áður en maður getur
farið að elska aðra. Óuppgerð sár
úr fortíð geta því haft áhrif á til-
finningalíf fólks. Þetta er þema
sem Bergman var hrifinn af, rétt
eins og stærsti áhrifavaldur hans,
leikskáldið Henrik Ibsen. „Við í
leikhúsinu erum forréttindahóp-
ur að því leyti að við fáum að velta
fyrir okkur tilfinningum og inn-
sæi alla daga. Hamingjuleitin er
í grunninn það sem Bergman er
að tala um,“ segir Unnur Ösp, „og
þar gildir þetta gamla góða um að
setja súrefnisgrímuna fyrst á sjálf-
an sig, því ef þú ert ekki tengdur
þínum tilfinningum og getur ekki
gefið þér einhvern örlítinn tíma
fyrir sjálfan þig, þá hefur þú ekk-
ert að gefa í allt þetta streð og allt
þetta álag. Ef fólk veltir tilfinn-
ingalífi sínu eitthvað nánar fyrir
sér eftir að hafa séð Brot úr hjóna-
bandi þá er sannarlega eitthvað
unnið. “
Unnur Ösp og Björn segja að nauðsyn-
leg uppfærsla á verki Ingmars Berg-
man til nútímans sýni fram á að margt
hafi breyst í samskiptum kynjanna og
kynhlutverkum á síðustu áratugum.
Erland Josephson og Liv Ullmann í hlutverkum sínum sem Johan og Marianne.
Sænskir sjónvarpsáhorfendur stóðu á öndinni árið 1973.
Höfundur verksins Brot úr hjóna-
bandi, leikstjórinn Ingmar Bergman,
náði almannahylli með þáttunum.
Hann, af öllum mönnum, var
spurður um ráð varðandi hjónalífið
á götu úti.
Félagslegt leyfi til skilnaða hefur aukist
Hafliði Kristinsson fjölskylduráðgjafi hef
ur mikla reynslu af því að miðla málum
milli hjóna og fólks í sambúð. Hann hef
ur starfað á þessu sviði í 16 ár og sem
prestur í 13 ár þar á undan. „Ég hitti
auðvitað helst fólkið sem vill reyna að
leggja sig fram til að bjarga sam
bandinu og það kann að lita til
finningu mína,“ segir Hafliði. „Oft
er talað um að á síðustu árum
hafi orðið viðhorfsbreyting til
sambanda og hjónabanda og að
fólk eigi auðveldara með að slíta
sambandinu. Ég er ekki alveg
viss um það.
Hins vegar hefur dregið mik
ið úr félagslega þrýstingnum
um það að fólk haldi saman
samböndum sem eru í miklum
erfiðleikum. Þannig er félags
lega leyfið til þess að slíta sam
vistum, ef svo má segja, orðið meira. Fólk
sér dæmi um það í kringum sig að fólk slíti
samvistum og hefur meiri samanburð. Það
hefur samt komið mér á óvart, á jákvæðan
hátt, hve margir eru tilbúnir að berjast fyr
ir samböndum sínum. Sá vilji er líka meiri
ef parið á saman börn.“
Hafliði segir að skilnaðartíðni,
bæði hvað hjónabandsslit og sam
búðarslit varðar hér á landi, sé
ívið lægri en til dæmis í Svíþjóð
og Bandaríkjunum en það hefur
sýnt sig að eitt af hverjum þrem
ur slíkum samböndum endar
með slitum. „Uppgjörið er
samt alltaf jafn þungbært og
mín reynsla er sú að fólk vill
ekki gefast upp fyrr en í fulla
hnefana og þráir að vera í ör
uggu sambandi til lengri tíma.“
Ég fann það mjög sterkt
að við vorum að segja
sögu fólksins í salnum.
Þetta er ekki endilega
tilfinning sem maður fær
mjög oft í leikhúsi.“
Unnur Ösp
ÖLL
MÁLNING
20%
AFSLÁTTUR
TIL 14. NÓVEMBER
Fullkomin samsetning fyrir
heilbrigði húðar, hárs og nagla
RE-SILICA BEAUTY-GEL inniheldur kísilsýru í hreinu,
vatnskenndu gel formi sem og fegurðarvítamínið bíótín.
RE-SILICA BEAUTY
www.saguna.is
Fæst í næsta apóteki og á saguna.is
Hluta af söluandvirði RE-SILICA
varanna hér á landi lætur Saguna
renna til Ljóssins.
www.ljosid.is
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016