Fréttatíminn - 04.11.2016, Page 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Dansar í fyrsta
skipti með Íslenska
dansflokknum.
Dansinn var áhugamál til að byrja með en síðan hætti ég aldrei,“ segir Védís Kjartans-dóttir sem dansar í
fyrsta skipti með Íslenska dans-
flokknum í verkinu Da Da Dans
sem frumsýnt verður um miðjan
mánuðinn í tilefni 100 ára afmælis
dadaismans.
Vissirðu alltaf að þú vildir verða
dansari?
„Ekki beint, ég byrjaði í ballett
fjögurra ára og þetta átti bara að
vera áhugamál til að byrja með en
síðan varð þetta að starfinu mínu
sem er geggjað skemmtilegt.“
„Ég lærði úti í Brussel í Belgíu, í
skóla sem heitir P.A.R.T.S. í fjögur
ár. Þetta er flottur evrópskur skóli.
Margir íslenskir dansarar sem hafa
lært þarna, eins og Erna Ómars,
listrænn stjórnandi dansflokksins.
Danshöfundar verksins, Inga Huld
og Rósa Ómars, voru líka þarna.
Brussel er mekka dansins í dag,
þar er margt að gerast í listum,“
segir Védís en þær Inga og Rósa
hlutu Grímuverðlaun í fyrra sem
danshöfundar ársins fyrir verk
sitt, The Valley.
„Ég var í fjögur ár í námi.
Fyrstu tvö árin voru dansmiðuð,
mikil tækni. Síðan fór maður í
annað inntökupróf og ef maður
komst áfram þá var námið meira
einstaklingsmiðað og skapandi
þar sem maður býr til eigin verk.
Mér lá dálítið á þegar ég var yngri.
Var með mikla útþrá og vildi sjá
heiminn. Fór því beint í námið úr
MH sem ég tók á þremur árum,
skellti mér í inntökupróf með 1200
manns og komst inn. Hoppaði því
beint í djúpu laugina. Þetta var
rosa áhugavert en líka erfitt. Besta
ákvörðun sem ég hef tekið.“
Líkt og fyrr segir er þetta í fyrsta
skipti sem Védís dansar með Ís-
lenska dansflokknum.
„Það hefur verið magnað að
vinna í þessu dansumhverfi með
höfundum og dönsurum. Við
erum fjórir dansarar á sviðinu
hver með sínar senur en svo er
þetta líka mikið samspil eins og
er þar sem við notum líkamann
og raddirnar. Ég held að hlutverk
manns sé að vera hluti af þessum
fjórum líkömum á sviðinu sem búa
til orkuna og sjálfa sýninguna.“
„Da Da Dans mun pottþétt koma
á óvart. Sýningin er skemmtileg,
spennandi og djörf þar sem farið
verður í sögu dadaisma og hún
afbyggð með smá snúningi. Dada-
ismi spratt upp úr vitfirringu fyrri
heimsstyrjaldar þar sem markmið-
ið var að skapa fjarstæðukennd
verk sem hristu upp í hugmyndum
fólks um tilgang og virði listarinn-
ar. Ég lofa heljarinnar stuði. Tón-
listin verður heldur ekki af verri
endanum. Hermigervill sér um
tónlistina.“ | bg
Védís
frumsýnir
Da Da Dans
Ballett átti bara að vera áhugamál til að byrja með en síðan varð þetta að starfinu
mínu sem er geggjað skemmtilegt,“ segir Védís Kjartansdóttir.
Úr undra
heimi
fræga
töfra
mannsins
Harry
Potter
kemur nú
bráðlega í kvik
myndahús sjálfstæð
saga um blaðamann
inn Newt Scamander.
Töframenn sýndir í fyrsta
skipti í Bandaríkjunum
Sögusviðið er árið 1926 í stór-
borginni New York, en þetta ku
vera fyrsta sjálfstæða framhalds-
myndin úr Harry Potter
heiminum.
Kvikmyndin er byggð á
samnefndri bók eftir höf-
und Harry Potter bókanna,
J.K. Rowling.
Í Viskusteininum, fyrsta
bókin í Harry Potter röð-
inni, er Newt Scam-
ander stuttlega
kynntur til sögunn-
ar sem höfundur
kennslubókarinn-
ar Fantastic Beasts
and Where to Find
Them, sem var
skyldulesning fyrir alla fyrsta-
árs nema Hogwarts. Kvikmyndin
fylgir ævintýrum Newts um New
York og er það í fyrsta skipti
sem við fáum að fylgjast með
töframönnum fyrir utan
Evrópu. Einnig fáum við
að fylgjast með forboðn-
um vinskap töframanns
og mugga.
Kvikmyndin verður
frumsýnd 17. nóvem-
ber hér á landi og
ættu allir lúðar
landsins að sam-
einast í bíósalnum
með popp, kók og
gleðina við völd.
| hdó
„Við vorum búnar að vera saman
í skóla í heil fjögur ár án þess að
hafa hugmynd um hvor aðra,“ segir
Bryndís María Kristjánsdóttir en
hún og Þórunn Bryndís Krist-
jánsdóttir urðu bestu vinkonur á
einni nóttu. Nánar tiltekið í svefn-
galsa eina andvökunóttina í bún-
inganefnd fyrir söngleik í Versló.
„Einhverja nóttina þegar við vor-
um ekki búnar að sofa neitt, hlaup-
andi um Austurbæjarbíó flissandi
úti um allt, urðum við bestu vin-
konur, það gerðist bara og hefur
haldist þannig,“ segir Bryndís.
„Já,“ segir Þórunn hlæjandi. „Við
vorum kannski búnar að þekkjast
í mánuð þegar við vorum einar í
Austurbæjarbíó að klára einhverja
búninga, búnar að sofa mjög lítið
því það var stutt í sýningu. Á ein-
um tímapunkti ákváðum við bara
að leggjast á gólfið í anddyrinu og
horfðum upp í speglaloftið og fór-
um djúpt í einhverjar heimspeki-
lega pælingar. Við hlæjum ennþá að
þessu næstum 5 árum seinna.“
Munið þið hvað þið rædduð um?
„Þetta var bara einhver algjör
steypa minnir mig en eftir það var
ekki aftur snúið, höfum ekki losnað
við hvor aðra síðan.“
„Þetta var samt svo tilviljana-
kennt því við kynntumst á síð-
ustu önninni í menntaskóla þegar
við slysuðumst eiginlega í bún-
inganefnd fyrir Nemó söngleik-
inn, mánuði fyrir sýningu,“ segir
Bryndís.
„Já. Magnað að vera á seinustu
önninni og hitta allt í einu ein-
hvern sem varð bara besta vinkona
manns, kynni á seinasta séns.“
„Þórunn braut líka dálítið ísinn
þegar hún kynnti sig fyrir mér
fyrst: Þórunn Bryndís Kristjáns-
dóttir. Allt nöfn sem samanstanda
af nöfnum míns besta fólk. Mamma
heitir Þórunn, ég heiti Bryndís og
pabbi heitir Kristján,“ segir Bryndís
hlæjandi. | bg
Vináttan: Urðu bestu vinkonur í galsa eina andvökunótt
Þórunn og Bryndís urðu bestu vinkonur á seinustu önn í Versló. Mynd | Rut