Fréttatíminn - 04.11.2016, Side 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Útvarpsleikhús um
þjóðarsár
Leikskáldið Jón Atli Jón-
asson hefur sett saman
nýtt heimildaleikrit í
fjórum hlutum um Guð-
mundar- og Geirfinns-
málið. Í verkinu, sem
heitir Lifun, er blandað
saman raunverulegum
heimildum um málið
og skáldskap. Lifun er
á dagskrá Útvarpsleik-
hússins í nóvember.
„Lifun fæddist þegar ég las endur-
upptökuskýrsluna um þetta fræg-
asta sakamál Íslandssögunnar sem
kom út fyrir þremur árum,“ segir
Jón Atli Jónasson. „Sagan hverf-
ist um rannsóknina og ég blanda
saman upptökum sem finna má í
safni Ríkisútvarpsins og leiknum
köflum. Ég tek mér stöðu á þeim
tveimur mánuðum þegar meintir
sakborningar í málinu, sem síðar
voru hreinsaðir af ásökunum, sátu
í gæsluvarðhaldi og fengu ekki
að hitta lögfræðinga um tveggja
mánaða skeið. Sú staðreynd ein og
sér er einsdæmi í vestrænni réttar-
sögu og ég leyfi mér að skálda inn
í þetta æpandi tóm einangrunar-
innar.“
Jón Atli segir fulla ástæðu til að
skrifa leikverk um þetta mál sem
var og er erfitt fyrir íslenskt þjóðfé-
lag. „Þessi sakamál og rannsóknin á
þeim eru stærsta sárið á þjóðarlík-
amanum. Það má alltaf finna ný sett
af spurningum.“
Tilgangurinn með Lifun er ekki
að leysa einhverja gátu. „Ég er
heldur ekki að reyna að styðja eða
hrekja ákveðna atburðarás. Ég leyfi
bara mörgum röddum að tala úr
safni Ríkisútvarpsins og set saman
leikrit í kringum þær.“
Jón Atli segir merkilegt að átta sig
á því hve mikið magn upplýsinga
varð til við rannsókn málsins. „Til
dæmis er lýsingin á því hverju Geir-
finnur klæddist kvöldið sem hann
hvarf gríðarlega nákvæm. Þó ég sé
leikritaskáld þá skortir mig máltilf-
inningu til að átta mig á því hvernig
svona lýsing verður til. Ég upplifi
sterkt að upplýsingamagnið sem
varð til í málinu sé það mikið að í
rauninni verði engar upplýsingar
til. Of miklar upplýsingar eru engar
upplýsingar.“
Jón Atli segir útvarpsleikhús
passa vel til að fjalla um þetta mál.
Safn RÚV sé dýrmætt heimildasafn
og vinnan í Útvarpsleikhúsinu hafi
verið gefandi, leikarar og samstarfs-
fólk frábært.
Lifun eftir Jón Atla er í fjórum
þáttum og verður á
dagskrá á Rás 1
alla laugar-
daga í nóvem-
ber og hefst
á morgun
klukkan 14.
Hljóðbrot er á
vef Fréttatím-
ans, frettatim-
inn.is | gt
Í Lifun, leikverki um Guðmundar- og
Geirfinnsmálin, tekst leikskáldið Jón
Atli Jónasson á við opnu spurningarnar
sem búa í þessu fræga sakamáli og
rannsókn þess.
Hvað eru laun?
„Peningar, allir sem vinna fá pen-
ing fyrir að vinna,“ segir Kolbeinn
staðfastur.
Dagur: „Ég þekki forsetann.“„Ég
líka,“ segir Kolbeinn.
Hver á að fá hæstu launin?
Björgeyju finnst að forsetinn ætti
að vera launahæstur því hann er
svo duglegur að vinna en Kol-
beinn, samstarfsmaður hennar,
var ekki sammála henni því hon-
um finnst að kennarar ættu að fá
hæstu launin af því þeir eru alltaf í
vinnunni sinni.
Hver á að fá minnst?
Kolbeinn: „Krakkarnir.“
Ylfa: „Því þeir eru ekkert að
vinna.“
Björgey: „Jú þeir eru í skóla.“
Dagur: „Þeir eru nú einu sinni að
læra.“
En sjómenn?
„Sko, þeir fá bara svo mikinn pen-
ing því fiskur er svo hollur og hann
er mjög góður,“ segir Ylfa með
bros á vör.
Björgey: „Þeir eiga að fá mikið því
þeir veiða svo mikinn fisk á dag.“
En hvað með slökkviliðsmenn-
ina, eiga þeir að fá meira en
sjómennirnir eða minna?
Allir í kór: „Meira.“ Kjararáði
finnst að því hættulegra sem
starfið er því hærra launað ætti
það að vera: „Þeir eru svo duglegir
að vera í hættulegum störfum
og bjarga stundum fólki,“ segir
Björgey.
En hvað með tónlistarmennina?
Ylfa: „Sko, ég hefði getað sagt ykk-
ur þetta þegar við vorum að tala
um sjómennina en frændi minn
fer stundum á sjó.“
En flugmenn?
Allir í Kjararáði eru sammála um
að flugmenn ættu að hjálpa þeim
sem eru í vandræðum og ættu því
að vera launaháir:
Björgey: „Því það er mjög hættu-
legt starf, þau gætu hrapað.“
Kolbeinn: „Þeir geta flogið á flug-
vélum til Sýrlands og bjargað fólki.
Það er svo mikið stríð þar.“
Ylfa: „Já, það er búið að koma
í fréttunum.“
Hvað finnst ykkur að ballerínur
ættu að fá mikið?
Aníta og Kolbeinn eru sammála
um að ballerínur ættu ekki að fá
hærra en flugmenn en nokkrum
nefndarmeðlimum finnst að þær
ættu að fá meira en forsetinn:
Björgey: „Já, af því þau eru búin að
æfa sig svo lengi.“
Ylfa: „Því þau sýna líka svo flotta
sýningu.“
Dagur: „Þær dansa líka svo vel.“
En löggan?
Björgey: „Mikil laun því hún tekur
bófana svo þeir séu ekki að stela
peningnum annara.“
Dagur: „Einu sinni var þjófur að
stela bílnum hans pabba míns.“
Hvað með hjúkrunarfræðinga?
Björgey: „Mér finnst ekki í lagi að
þeir fái lægri laun en til dæmis
læknirinn.“
Ylfa: „Þær eru alveg að hjálpa
læknunum. Ég meina, ef þeir
verða veikir þá geta þær hjálpað,
þú veist.“
Björgey: „Einu sinni sprautaði
læknirinn í hnéð á ömmu og þá fór
hún í hjólastól.“
Krökkunum finnst að hjúkrunar-
fræðingar ættu að fá hærri laun en
forsætisráðherrann.
Ylfa: „Sko, afi minn, hann er
svo stór að hann skallaði óvart í
vegginn.“
Finnst ykkur að þingmenn
ættu að fá meira en hjúkrunar-
fræðingar?
Allir í kór: „Nei.“
Krakkarnir segja að lokum að allir
eigi að fá minna í laun en hjúkr-
unarfræðingar, k°sennarar og
löggan.
Sjómenn eiga að fá há
laun því fiskur er góður
Kjör þingmanna og forseta Íslands hafa verið í deiglunni á síðustu dögum
vegna ákvörðunar kjararáðs að hækka laun þeirra. Fréttatíminn ákvað að
kalla saman Kjararáð barna og heyra hver kjör ólíkra starfsstétta ættu að
vera á Íslandi.
Í Kjararáði barna sitja:
Aníta Sóley
Gunnarsdóttir
7 ára
Björgey Njála
Andreudóttir
6 ára
Dagur
Höskuldsson
Rafnar
6 ára
Ylfa Matthildur
Seljan
Helgadóttir
6 ára
Kolbeinn
Gestur
Guðgeirsson
7 ára
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Sýningin Björk Digital er nú uppi
í Hörpu. Þar gefst tækifæri á að
upplifa tón- og myndheim Bjarkar
Guðmundsdóttur með þráðbein-
um hætti, meðal annars með nýj-
ustu sýndarveruleikatækni. Stella
Rósenkranz danshöfundur er ein
þeirra sem er búin að henda sér út
í þessa heillandi veröld.
„Þetta var alveg frábært og
þetta mögnuð sýning,“ segir Stella
Rózenkranz, dansari og dans-
höfundur, um Björk Digital. Á
mynd af henni úr Hörpu sést hún
djúpt sokkin með gleraugu og
heyrnartól á höfðinu og fjarstýr-
ingar í höndum.„Ég vissi eiginlega
ekkert við hverju var að búast á
þessari sýningu en þetta var mjög
skemmtilegt og fallegt.“
Nýjasta Plata Bjarkar, Vulnicura,
snýst um að græða sárin eftir
erfiðan skilnað söngkonunnar á
sínum tíma. „Í þessum sýndar-
veruleika tekur maður í raun þátt
í því bataferli. Með þessum fjar-
stýringum sem ég held á þarna
á myndinni tengir maður í raun
saman þræði í sári sem er opið í
hjarta Bjarkar. Þannig að maður
fær að taka þátt í tónlistinni með
hætti sem ég hef aldrei upplifað
áður. Ég mæli svo sannarlega með
þessu.“
Stella segir mjög sérstakt að vera
með slíkar sýndarveruleikagræjur
á höfðinu. „Þetta er auðvitað besta
möguleg tækni og maður upplifir
bein tengsl við Björk. Manni finnst
maður nánast geta snert hana.
Þarna er maður alveg einangrað-
ur og gerir sér engan veginn grein
fyrir umhverfinu. Ég vissi ekkert
að það væri einhver að taka af mér
mynd, en verandi dansari þá naut
ég þess í botn að fara inn í þennan
heim“ segir Stella. | gt
Þarna sést Stella Rózenkranz,
hægra megin á myndinni, renna
saman við tónlist Bjarkar.
Mynd | Santiago Felipe
Stafrænn heimur Bjarkar alveg magnaður
SÉRBLAÐ
UM VEGAN
þann 12. nóvember
Endilega hafið samband
og tryggið ykkur pláss
elsa@frettatiminn.is 531 3310