Fréttatíminn - 04.11.2016, Blaðsíða 40
Sósur
Veitingastaðurinn Bike Cave býður nú
upp á vegan bernaise-sósu. Fyrir þá
sem ekki vita er bernaise-sósa búin
til úr smjöri og eggjum. Bike Cave býr
hins vegar til sitt eigið vegan mæjónes
úr sojamjólk og olíu, blandar út
í það kryddi og bragð-
efnum svo úr því verður
vegan bernaise.
Bíó
Heimildar-
mynd um
Bítlana
og tón-
leikaferðir þeirra um heiminn er nú komin
í bíóhús. Um ræðir tímabil þegar vinsæld-
ir þeirra voru hvað mestar, upp úr 1960.
Myndin inniheldur nánast eingöngu efni sem
ekki hefur komið fyrir sjónir almennings.
Pylsur
Glöggir vegfarendur Austurstrætis hafa
ef til vill tekið eftir nýjum pylsubási á
milli Eymundsson bókabúðar og Bjarna
Fel sportbars. Um SS pylsur er að ræða
en gott er að grípa sér pylsu og
sjeik þegar farið er í bóka-
búðaleiðangur um
helgar eða þegar rölt
er heim af barnum.
NÝTT
Í
BÆNUM
Tölum um …
Skammdegið
Sunna Rut
Garðarsdóttir
Sept.-des. eru uppáhalds
mánuðirnir mínir með áherslu
á nóvember-desember. Aðallega
held ég vegna þess að þá má mað-
ur vera inni að „tjilla“ og engin
dæmir. Þar til svona í janúar, þá
nenni ég ekki meir. En þangað til
þá er snilld!
Haukur Tandri
Besta leiðin til að tækla skamm-
degið er að skella sér í hot jóga,
jóðla í VIP grænmetisrétt fyrir
kvöldmatinn og drekka svo heita,
sykurlausa möndlumjólk með
kakóduftinu frá Sollu í eftirrétt.
Búmm!
Karl Ingi Karlsson
Skammdegið er notalegur felu-
staður. Þægileg hulinskykkja sér-
sniðin á þá sem þurfa smá næði.
Það er í senn átakanlegt og fallegt,
hættulegt og „gezellig“. Passar vel
með marrandi fótataki í snjón-
um. Góð afsökun til að kaupa sér
D-vítamín og flott endurskins-
merki.
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK