Fréttatíminn - 04.11.2016, Blaðsíða 48
Unnið í samstarfi við
Halldór Jónsson
Mikil áhersla hefur verið á augabrúnir bæði í förðun og á tískupöllunum þar sem breiðar náttúrulegar
augabrúnir hafa verið allsráðandi.
Sigríður Rakel Ólafsdóttir, vöru-
merkjastjóri hjá Halldóri Jónssyni
ehf., segir lykilatriði að finna lit sem
hentar hverjum og einum. „Það hef-
ur tíðkast mjög lengi að konur séu
með kolsvartar augabrúnir óháð
því hver hárlitur þeirra er. Í dag er
öldin önnur og viljum við hafa sem
náttúrulegastar augabrúnir svo
að augun fái að njóta sín.“ Refecto
Cil er eina vörumerkið hér á landi
sem býður upp á sjö mismunandi
tegundir lita; blásvartan, svartan,
dökkbrúnan, ljósbrúnan, gráan,
heslihnetubrúnan og aflitun. „Konur
hafa verið að blanda litum saman, til
dæmis dökkbrúnum og ljósbrúnum
til að ná þeim lit sem hentar þeirra
háralit, en meginreglan er sú að
liturinn sé í samræmi við dekksta
hluta hársins. Fylgjandi tísku-
straumum eru líka margar farnar
að aflita á sér augabrúnirnar sem
er eitthvað sem hefur ekki áður
tíðkast.“
Sigríður bætir við að sumar konur
séu með viðkvæma húð og því sé
komin ný lína; Refecto Cil Sensiti-
ve fyrir þær sem geta ekki notað
venjulegan augabrúnalit. „Þetta er
ný formúla sem er tilvalin fyrir alla
sem eru með viðkvæmt augnsvæði.
Formúlan er unnin úr plöntuþykkni
sem inniheldur meðal annars grænt
te, rauðvínsþykkni, valhnetuþykkni,
vallhumal, netlu og bláber. Ferl-
ið er annað, hér er ekki lit og festi
blandað saman heldur er liturinn
borinn á fyrst og hann hafður í 2
mínútur. Hann er síðan tekinn af
og því næst er festirinn settur á og
hafður í 1 mínútu. Þar af leiðandi
tekur litunarferlið sjálft mjög stutt-
an tíma og er auðvelt og snyrtilegt
í framkvæmd.“ Sigríður hvetur allar
konur til að vera óhræddar við að
prófa sig áfram og finna þann lit
sem hentar.
Litirnir fást í Hagkaup,
Krónunni og apótekum
um land allt.
Þegar söngkonan Carrie Und-
erwood er kynnir á verðlauna-
hátíð þá vitum við að við megum
eiga von á góðu, allavega þegar
kemur að fjölda fallegra kjóla.
Hún er nefnilega þekkt fyrir það
að skipta ansi ört um kjóla þegar
hún er að koma fram. Hún stóð
heldur betur undir væntingum
á CMA Awards sem fór fram í
vikunni, og kom fram í ellefu mis-
munandi kjólum. Hún var reyndar
búin að gefa það út fyrirfram að
hún ætlaði að koma fram nokkrum
mismunandi í kjólum í anda tísk-
unnar síðustu fimm áratuga, í
tilefni 50 ára afmælis hátíðarinn-
ar. Hér er smá sýnishorn af þeim
kjólum sem Underwood klæddist
á hátíðinni.
Klæddist ellefu
mismunandi kjólum
Carrie Underwood
klikkar ekki á glæsi-
legum klæðaburði.
Náttúrulegar augabrúnir allsráðandi
Fallega mótaðar og hæfilega dökkar augabrúnir eru mikil prýði
og um þessar mundir er minna sannarlega meira í þeim efnum; plokkarinn vel falinn ofan í skúffu.
…heilsa kynningar 8 | amk… FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
Sigríður Rakel Ólafsdóttir, vörumerkjastjóri hjá Halldóri Jónssyni ehf. Mynd | Hari