Fréttatíminn - 04.11.2016, Page 64
Vefarinn Benny Hammer Larsen er í
heimsókn á Íslandi og verður gestur
í versluninni Epal fimmtudag, föstu-
dag og laugardag. Benny er einn af
meisturunum hjá Carl Hansen &
Son. Benny þykir afar fær vefari
og það tekur hann ekki nema um
klukkustund að klára einn Y-stól.
Hann mun einmitt vefa nokkra slíka
í Epal um helgina og verða þeir til
sölu.
Y-stóllinn er frægasta hönnun
Hans J. Wegner en hann hannaði
yfir 500 stóla á sinni tíð. Y-stóllinn
var fyrst framleiddur árið 1950. Al-
veg síðan þá hefur stóll-
inn verið gerður úr sömu
14 pörtum sem krefjast yfir
100 ólíkra vinnslustiga og
um það bil þriggja vikna í
undirbúning.
Á heimasíðu Epal kem-
ur fram að Y-stóllinn er úr
viði og er að mestu leyti
handgerður, þar á með-
al er setan handofin úr
120 metrum af sterkum
pappírsþræði sem á að duga í allt
að 50 ár. Hans J. Wegner hannaði
stólinn fyrir Carl Hansen & Son
árið 1949, og hefur hann
verið óslitið í framleiðslu
frá 1950. Stóllinn heitir í
raun CH24 en er kallað-
ur Y-stóllinn á íslensku og
óskabeinsstóllinn á ensku,
eða Wishbone chair.
Í tilefni heimsóknar
Benny verða tilboð á Black
Editions línunni af Y-stóln-
um í Epal um helgina. Þá
verða einnig sérfræðingar
frá Montana í búðinni og 15% af-
sláttur af öllum Montana-hillum.
Goðsögn Benny vefari
er vel þekktur vefari og
er ekki nema klukkutíma
að vefa einn Y-stól. Hann
er með mynd af stólnum
húðflúraða á handlegginn.
Benni vefari í heimsókn
Er ekki nema klukkutíma að vefa einn Y-stól.
Klassík Y-stóllinn hef-
ur verið framleiddur
síðan 1950 og nýtur
alltaf mikilla vinsælda.
Handverk
og hönnun í
Ráðhúsinu
Sýningin Handverk og hönnun fer
fram í Ráðhúsinu um helgina. Að
venju sýna fjölmargir hönnuðir og
handverksfólk hönnun og hand-
verk af ýmsum toga. Meðal þess
sem verður til sýnis og sölu er
skart, trémunir, leðurvörur, skór,
fatnaður, leirmunir, gler og margt
fleira. Sýningin verður opin alla
helgina frá klukkan 10-18. Hægt er
að kynna sér þá sem sýna á heima-
síðunni handverkoghonnun.is.
Hönnun
ferðamanna-
staða
Arkitektafé-
lag Íslands og
Félag íslenskra
landslagsarki-
tekta standa
fyrir áhuga-
verðu málþingi í næstu viku.
Málþingið er um hönnun ferða-
mannastaða og verða þeir skoð-
aðir frá sjónarhorni m.a. hönnuða,
fræðslufulltrúa, verkefnastjóra,
leiðsögumanns, ferðamanns og
bæjarstjóra. Wieteke Nijkrake,
arkitekt, og Jorrit Noordhuizen
landslagsarkitekt sem koma frá
Hollandi flytja erindi á málþinginu
um verkefni sem unnið var í sam-
starfi við Skaftárhrepp og Háskóla
Íslands. Auk þeirra tala Einar Ás-
geir Sæmundsen landslagsarki-
tekt, Vilborg Halldórsdóttir leið-
sögumaður, Örn Þór Halldórsson
arkitekt, Þráinn Hauksson lands-
lagsarkitekt, Róbert Ragnarsson,
bæjarstjóri í Grindavík, Lemke
Meijer ferðamaður og Dagur Egg-
ertsson arkitekt. Fundarstjóri
verður Hlín Helga Guðlaugsdóttir
hönnuður. Þátttökugjald á mál-
þingið er 7.000 kr. og fer skrán-
ing fram á Tix.is Málþingið verður
haldið í sal Íslenskrar erfðagrein-
ingar, Sturlugötu 8, fimmtudaginn
10. nóvember og hefst klukkan 13
og lýkur um klukkan 17.
Sniðugar
hugmyndir á
Skreytum hús
Hægt er að fá ráð og lausnir fyrir
heimilið á skemmtilegri íslenskri
facebook-síðu
Víða á internetinu má finna
skemmtilega hugmyndabanka þar
sem hægt er að leita að sniðugum
hugmyndum fyrir heimilið. Víða er
líka hægt að skiptast á hugmynd-
um og fá ráð. Á facebook má til
dæmis finna hópinn Skreytum
hús sem telur rúmlega 30 þús-
und meðlimi. Þar má bæði leita
ráða og finna sniðugar lausnir og
hugmyndir sem tengjast heimil-
inu. Þá er vinsælt að birta fyrir og
eftir myndir af breytingum á inn-
réttingum eða húsgögnum og fá
viðbrögð frá öðrum. Þá er gott að
muna eftir því að vera kurteis eða
sleppa því að segja sína skoðun ef
hún er neikvæð og særandi.
RÚM
Svíf þú inn í svefninn
...í rúmi frá okkur!
Dalshrauni 8 - Hafnarfirði | Sími 555 0397 | rbrum@rbrum.is | rbrum.is
Rúm, springdýnur, sængurver, púðar & rúmteppi, gjafavara!
...við erum með þetta allt og meira til!
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af öllum
stærðum og gerðum, allt eftir þínum óskum.
Lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin.
Við bjóðum mismunandi stíeika á dýnum, allt eftir þyngd þeirra sem á
dýnunum hvíla. Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur létt framúr.
ÍSLENSK HÖNNUN – ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
…heimili & hönnun kynningar 12 | amk… FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016