Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 2

Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 2
Hjólað í miðbænum WOW Uphill hjólreiðakeppnin fór fram á Skólavörðustíg í Reykjavík í gær. Keppnin er hluti af Reykjavíkurleikunum og Vetrarhátíð. „Þarna voru helstu hjólreiðakappar landsins. 27 karlar tóku þátt og tíu konur,“ segir Guðmundur B. Friðriksson, umsjónarmaður keppninnar. Sjálfur varð Guð- mundur í öðru sæti í karlaflokki. Sigurvegari í karlaflokki var Emil Þór Guðmundsson en Rakel Logadóttir sigraði í kvennaflokki. Fréttablaðið/Eyþór Veður Fremur hæg suðaustanátt í dag, úrkomu- lítið víðast hvar og léttir til á Norðurlandi. Snýst í austan golu eða kalda um kvöldið og fer að rigna á Suðausturlandi. sjá síðu 62 Betri ferð fyrir betra verð - vita.is Kynntu þér nýjan sumarbækling 2017 á vita.is stjórnsýsla Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur ekki skilað til fjár- málaráðuneytis skýrslu um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins sem hann átti að vera búinn með í júlí árið 2015. Samt sem áður hefur 7,5 milljónum króna verið varið í gerð skýrslunnar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið gerði samning við Félagsvísinda- stofnun sumarið 2014 um að rann- saka erlenda áhrifaþætti banka- hrunsins. Átti gerð skýrslunnar að kosta tíu milljónir króna og verki að ljúka í júlí 2015. Höfundurinn var Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla íslands. Greiða átti fyrir skýrsluna í fjór- um jöfnum greiðslum. „Greiddar hafa verið 7,5 milljónir vegna verk- efnisins í samræmi við samninginn. Samkvæmt honum er áætluð loka- greiðsla, 2,5 milljónir króna, þegar lokaskýrslu er skilað,“ segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Frétta- blaðsins. Fjármálaráðuneytið veit ekki enn hvenær skýrslan mun berast ráðu- neytinu þrátt fyrir þessa 18 mánaða töf. Tafir á birtingu skýrslna úr fjár- málaráðuneytinu hafa verið gagn- rýndar nokkuð síðustu vikur eftir að tvær skýrslur voru birtar á vef ráðuneytisins eftir áramót sem til- búnar voru fyrir kosningar í október síðastliðnum. Svandís Svavarsdóttir, formaður VG, segir þessa skýrslu augljóslega gerða í pólitískum tilgangi og setur spurningarmerki við að almannafé sé varið á þennan hátt. „Þegar fjár- málaráðherra sér sér fært að mæta til Alþingis eftir frí í Austurríki er margt sem hann þarf að svara fyrir og bætir heldur í þann lista,“ segir Svandís Svavarsdóttir, formaður þingflokks VG. „Fyrst ber að nefna drátt aflandsskýrslunnar en einnig þarf að ræða efni þeirrar skýrslu. Að auki þarf hann að svara fyrir það af hverju skýrslan um skuldalækkun var geymd í ráðuneytinu fram yfir kosningar,“ bætir Svandís við. „Til þess eru margar ástæður, að vinnan við þessa skýrslu hefur tafist, en alls ekki sú, að slegið hafi verið slöku við í rannsókninni. Ein ástæðan er, að beðið var eftir birt- ingu og afhendingu skjala frá Bret- landi. Önnur er, að sumir erlendir viðmælendur voru önnum kafnir og gáfu ekki kost á sér nema með margra mánaða fyrirvara,“ segir í svari Hannesar við fyrirspurn Frétta- blaðsins. Hann segir þriðju ástæð- una vera lélegt aðgengi að skjölum á Íslandi. sveinn@frettabladid.is Ekkert bólar á skýrslu Hannesar um hrunið Hannes Hólmsteinn Gissurarson birti svar við fyrirspurn Fréttablaðsins á bloggsíðu sinni síðdegis í gær. Fréttablaðið/Valli Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor átti að skila skýrslu sumarið 2015 um erlend áhrif bankahrunsins. Skýrslan hefur enn ekki borist. sjávarútvegur Útflutningsverð- mæti grásleppu á liðnu ári varð um 2,1 milljarður. Er það annað árið í röð sem verðmæti grásleppuafurða losar tvo milljarða. Vöruflokkar afurðanna eru þrír. Frosin grásleppa, söltuð grásleppu- hrogn og grásleppukavíar. Kavíar- inn skilaði mestum verðmætum, tæpum 900 milljónum, söltuð hrogn tæpum 700 milljörðum og frosin grásleppa rúmum hálfum milljarði. Gengisþróun og sam- dráttur í veiðum milli ára urðu til þess að heildarverðmæti lækkar milli ára um 6,9%, segir í fréttinni. Aukning varð í sölu á kavíar og söltuðum hrognum, en samdráttur í útflutningi á frosinni grásleppu. Frakkland er langstærsti kaup- andinn á kavíar, en þangað fóru yfir 80% og varð góð aukning milli ára. Svíar keyptu mest þjóða af sölt- uðum hrognum, nálægt helmingi alls sem flutt var úr landi. Kínverjar kaupa bróðurpartinn af gráslepp- unni. – shá Grásleppa gaf tvo milljarða Hrognin eru verðmætasta afurð grá- sleppunnar. Fréttablaðið/JSE atvInna Atvinnuleysi meðal ein- staklinga með háskólamenntun minnkaði milli 2015 og 2016. Í lok desember í fyrra voru tæp- lega 4.800 á atvinnuleysisskrá en af þeim voru 1.119 með háskóla- menntun. Háskólamenntuðum á skrá hafði þá fækkað um 112 frá því í lok desember 2015, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofn- un. Verkfræðingar sem fluttu til Nor- egs í kjölfar hrunsins eru farnir að snúa heim vegna aukinna atvinnu- tækifæra hér. Í lok desember 2016 voru samt 43 verkfræðingar á atvinnuleysisskrá, þar af voru sjö erlendir ríkisborgarar. Tæknifræðingar á atvinnuleysis- skrá í lok desember voru 18, þar af voru fimm erlendir ríkisborgarar. – ibs Tæplega fimm þúsund manns án atvinnu Frakkar kaupa langmest af kavíarnum en Svíar mest af söltuðum hrognum. 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð 0 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 2 8 s _ P 1 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 2 8 -F 7 8 C 1 C 2 8 -F 6 5 0 1 C 2 8 -F 5 1 4 1 C 2 8 -F 3 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 8 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.