Fréttablaðið - 04.02.2017, Síða 4
ÁRA5ÁBYRGÐ
KOMDU OG PRUFAÐU
Margar góðar reynsluakstursleiðir
í nágrenni Mosfellsbæjar.
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 11-15
Opið í dag laugardag 11 - 15
Tökum vel á móti þér!
Rjúkandi Lavazza kaffi á könnunni.
fiat.is
Björgólfur Jóhannsson
forstjóri Icelandair Group
sagði viðbrögð
markaðarins
eðlileg í kjölfar
svartrar afkomu-
viðvörunar í
vikunni. Hluta-
bréf fyrirtækisins
féllu um 24 prósent í
verði og 27 milljarðar af markaðs-
virði flugfélagsins þurrkuðustu út
á einum degi. Björgólfur sagði að
mjög hefði hægst á bókunarinn-
flæði að undanförnu. Lækkað
meðalverð, olíuverð og gengi
krónunnar hefðu einnig haft áhrif.
Brynja Baldursdóttir
framkvæmdastjóri Creditinfo
Lánstrausts
sagði fjölgun
kvenna í stöðum
framkvæmda-
stjóra stærstu
fyrirtækja hafa
verið sáralitla.
Hlutfall kvenna sem
gegndu framkvæmdastjórastöðum
hjá stærstu fyrirtækjum landsins
var níu prósent í fyrra og stóð í
stað frá árinu á undan. Konur áttu
24 prósent stjórnarsæta í stórum
fyrirtækjum í lok árs 2016 og 18
prósent hjá meðalstórum.
Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir
sagði stjórnvöld
verða að grípa
til opinberra
aðgerða til að
stemma stigu
við útbreiðslu
kynsjúkdóma
á Íslandi. Niður-
stöður úr gagnabanka landlæknis-
embættisins sýna að smituðum
hefur fjölgað jafnt og þétt á undan-
förnum árum og á það einkum við
um sárasótt og lekanda.
Þrjú í fréttum
Fall, lykilkonur
og samvinna
240.000
Asíubúar leituðu að beinu flugi frá
Hong Kong til Keflavíkur á síðasta ári.
27
milljarðar af
markaðsvirði
Icelandair
þurrkuðust út
á einum degi
í vikunni.
270
vinnudögum sjálfboðaliða
Umhverfisstofnunar var
varið í fyrra til þess að
fjarlægja lúpínu.
386
milljörðum varði Seðlabanki
Íslands til kaupa á erlendum
gjaldeyri árið 2016.
4.650
metrar er dýpsta borhola á jarðhita-
svæði í heiminum – eða á Reykjanesi
nánar til tekið.
6,9%
framkvæmdastjóra
stærstu fyrirtækja
landsins í fyrra voru
konur.
50
megavött af
raforku þarf fyrir
verksmiðju PCC.
Tölur vikunnar 29.01.2017 Til 04.02.2017
slys Starfsmaður Fiskverkunarinnar
Háteigs fannst látinn í svefnskála
fyrirtækisins á Reykjanesi í gær og
annar var fluttur á Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja til aðhlynningar. Við
rannsókn Vinnueftirlitsins, lög-
reglu og fulltrúa Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja kom í ljós að eitruð gös
höfðu komist inn á kaldavatnskerfi
byggingarinnar með þessum afleið-
ingum. Uppruni gassins er frá niður-
dælingarholu Reykjanesvirkjunar,
var talið staðfest þegar Fréttablaðið
fór í prentun.
Lögreglunni á Suðurnesjum barst
tilkynning um slysið klukkan 7.15
í gærmorgun. Lífgunartilraunir
báru ekki árangur og maðurinn
var úrskurðaður látinn á staðnum.
Félagi hans var útskrifaður af sjúkra-
húsi um miðjan dag.
Vinnueftirlitið stöðvaði vinnu í
nærliggjandi fyrirtækjum, Haustaki
og Stolt Seafarm, vegna slyssins. Í
fréttatilkynningu lögreglu sem barst
fjölmiðlum eftir hádegi kom fram
að á engum tíma stafaði almenn-
ingi hætta af gasmenguninni og að
neysluvatn á Suðurnesjum væri í
góðu lagi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins beindist grunur að djúp-
borunarholu á svæðinu, en hún
var fljótt útilokuð í rannsókninni
og litið til einnar af niðurdælingar-
holum HS Orku á svæðinu.
Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá
Vinnueftirlitinu, vann að rannsókn
málsins í gær. Hann segir að í þessu
vinnurými sem tengist verksmiðju
Háteigs sé sírennsli á neysluvatni.
Vatnið mengast af kolmónoxíði og
brennisteinsvetni sem olli þessu.
„Þetta safnast saman yfir nótt-
ina í hækkandi styrk. Kolmónoxíð
er bráðhættulegt og getur valdið
dauða og brennisteinsvetnið getur
það líka. Þetta er stórundarlegt og
grafalvarlegt mál,“ segir Kristinn en
neitar því að um handvömm sé að
ræða.
„Það hefur myndast yfirþrýstingur
á kerfinu sem hefur gert þetta að
verkum,“ segir Kristinn og vísar þá
til þess að við niðurdælingu er vatni
dælt niður; yfirþrýstingur, eða bak-
þrýstingur, myndast og gufurnar fara
inn í kerfið. Kristinn slær þó þann
varnagla að rannsókn standi yfir og
ótímabært sé að fullyrða um orsakir
slyssins þó að allt bendi í eina átt.
Framhaldsrannsókn er meðal
annars í höndum Vinnueftirlitsins.
Kristinn segir að kallað hafi verið
eftir ýmsum gögnum, teikningum og
fleiru til að átta sig á heildarmynd-
inni. svavar@frettabladid.is
Rannsaka hvað olli slysinu
Maður fannst látinn í svefnskála fyrirtækisins Háteigs í gærmorgun – annar var fluttur á sjúkrahús. Slysinu
olli eitrað gas sem komst inn á kaldavatnskerfi hússins. Grafalvarlegt mál, segir yfirlæknir Vinnueftirlitsins.
Mennirnir sváfu í húsinu með rauða þakinu fyrir miðri mynd. Það stendur 20 metrum frá vinnsluhúsi Háteigs. Fréttablaðið/GVa
Baneitrað
– en lyktarlaust
Kolmónoxíð er lyktar-, bragð- og
litlaus lofttegund og er nokkuð
eðlisléttari en loft.
Eitrunaráhrif kolmónoxíðs stafa
af því að það binst blóðrauða og
hindrar þannig eðlilega öndun.
Innöndun mikils magns af efninu
getur leitt til höfuðverks, svima,
ógleði, þreytu og truflana á sjón
og heyrn.
Í verstu tilfellum veldur inn-
öndun kolmónoxíðs yfirliði og
dauða.
Þetta safnast saman
yfir nóttina í hækk-
andi styrk. Kolmónoxíð er
bráðhættulegt og getur valdið
dauða og brennisteinsvetnið
getur það líka. Þetta er
stórundarlegt og grafalvarlegt
mál.
Kristinn Tómasson,
yfirlæknir hjá
Vinnueftirlitinu
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-0
B
4
C
1
C
2
9
-0
A
1
0
1
C
2
9
-0
8
D
4
1
C
2
9
-0
7
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K