Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 6
Vinnumarkaður Eigandi gisti-
heimilisins Our Guesthouse á Akur-
eyri hafði tvo starfsmenn, stúlkur
frá Póllandi og Ungverjalandi, í
vinnu hjá sér síðastliðið haust án
þess að greiða þeim laun sam-
kvæmt kjarasamningum. Komst
upp um málið í desember við eftir-
grennslan stéttarfélagsins Einingar
Iðju og skattayfirvalda.
Þetta staðfestir Björn Snæbjörns-
son, formaður Einingar Iðju, og
segir að fyrirtækið sé til skoðunar
hjá stéttarfélaginu en getur ekki
farið nánar í málið. „Við gætum
trúnaðar við okkar skjólstæðinga
sem eru starfsmenn fyrirtækis-
ins. Hins vegar get ég staðfest að
við höfum þurft að hafa alvarleg
afskipti af fyrirtækinu og það er
undir smásjá okkar í víðum skiln-
ingi þess orðs,“ segir Björn. „Við
lítum málin alvarlegum augum.“
Önnur kvennanna hafði komið
sem sjálfboðaliði til Íslands í
gegnum síðuna Workaway. Frétta-
blaðið hefur sagt frá fjölda aug-
lýsinga Íslendinga á síðunni, bæði
í ferðaþjónustu og í landbúnaði, en
hundruð erlendra ungmenna koma
til landsins réttindalaus en fá frítt
fæði og húsnæði. Til að mynda gisti
konan í opnu rými inni í íbúð eig-
anda gistiheimilisins.
Konan fór af landi brott um leið
og málið komst upp. Vildi hún ekki
láta innheimta vangoldin laun sín
hjá gistiheimilinu og hefur ekki
spurst til hennar síðan.
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambandsins, segir að
sjálfboðaliðastarfsemi í ferðaþjón-
ustu og eftirlit með starfseminni
sé eilífðarverkefni. „Við vöktum
þessar heimasíður þar sem verið er
að óska eftir sjálfboðaliðum. Margir
aðilar í ferðaþjónustu virðast nýta
sér þetta,“ segir Drífa. „Við höldum
uppi orðið stífu eftirliti og erum að
ná til fólks með því að kíkja í heim-
sóknir á vinnustaði.“
Eigandi gistiheimilisins á Akur-
eyri vildi ekki tjá sig um málið
þegar eftir því var leitað. Bað hann
blaðamann um að fara af gisti-
heimilinu þegar spurst var fyrir
um málið.
sveinn@frettabladid.is
Fékk ekki laun og látin
sofa inni hjá eiganda
Stéttarfélagið Eining Iðja á Akureyri hefur til skoðunar mál tveggja kvenna
sem unnu á gistiheimili á Akureyri. Svo virðist sem þær hafi komið hingað til
lands sem sjálfboðaliðar en verið látnar vinna kauplaust á gistiheimilinu.
Önnur konan bjó í opnu rými á heimili
eigandans. Fréttablaðið/Sveinn
Hins vegar get ég
staðfest að við
höfum þurft að hafa alvarleg
afskipti af
fyrirtækinu
Björn Snæbjörns-
son, formaður
Einingar iðju
Stjórnmál Þingmenn Samfylking-
arinnar leita nú stuðnings hjá öllum
þingmönnum á Alþingi til að for-
dæma tilskipun forseta Bandaríkj-
anna um að banna fólki frá Sýrlandi,
Írak, Íran, Jemen, Lýbíu, Sómalíu og
Súdan að koma til Bandaríkjanna.
Í tillögu til þingsályktunar sem
send hefur verið öllum þingmönn-
um segir að Alþingi skuli fordæma
harðlega tilskipunina.
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, segir að aðgerð
Donalds Trump Bandaríkjaforseta,
sé fordæmalaus og réttlæti að þjóð-
þing Íslendinga fordæmi aðgerðina.
„Við teljum mjög mikilvægt að
þjóðþingið sjálft fordæmi þetta og
sendi skýr skilaboð til Bandaríkj-
anna og heimsins að íslensk þjóð
líði ekki mismunun á grundvelli
trúarbragða og þjóðernis,“ segir
Logi.
Logi hefur ekki áhyggjur af því að
ályktunin kunni að hafa vond áhrif
á samskipti Íslands og Bandaríkj-
anna. „Ég held að það myndi hafa
slæm áhrif á samskipti þjóðanna ef
hann kemst óáreittur upp með þessa
hegðun sína.“
„Við sendum hana á alla þing-
flokka og viljum helst að allir
þingmenn séu á henni. Við höfum
kallað eftir því að þetta sé ekki til-
laga frá Samfylkingunni heldur frá
Alþingi,“ segir Logi Einarsson, for-
maður Samfylkingarinnar. – snæ
Alþingi fordæmi ákvörðun Trumps
Samfélag Þyrlusveit Landhelgis-
gæslunnar og starfsfólks Veður-
stofunnar og almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra nýttu veður-
blíðuna á fjöllum á fimmtudag til
að yfirfara mælitæki og búnað í
grennd við Kötlu og Bárðarbungu.
Sem kunnugt er hefur jarðskjálfta-
virkni verið talsverð á þessum
slóðum að undanförnu og því vilja
vísindamenn fylgjast grannt með
því sem fram fer í jarðskorpunni.
Ákveðið var að kanna athug-
unarstöðina á Hamrinum, ofan
Gráöldu, og sjá hvers vegna hún
sendi ekki lengur upplýsingar til
bækistöðvar. Þegar flogið var yfir
staðinn kom í ljós að allar sólar-
sellurnar voru á kafi í snjó og ís. Þá
hafði vindrella stöðvarinnar fokið
niður. – bb
Nýttu góða veðrið til viðhalds
Sérfræðingar veðurstofunnar og almannavarnadeildar yfirfóru mælibúnað á Grænufjöllum. Mynd/landhelGiSGæSlan
logi einarsson.
formaður Sam-
fylkingarinnar
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
6
_
N
ÝK
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-1
F
0
C
1
C
2
9
-1
D
D
0
1
C
2
9
-1
C
9
4
1
C
2
9
-1
B
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K