Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 12
Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð.
Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla hljóðritun á íslenskri tónlist.
Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska
tónlist og þannig er stutt við nýsköpun hennar.
Hljóðritin skulu kostuð af íslenskum aðilum en mega einnig
vera samstarfsverkefni við erlenda aðila.
Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs.
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, 15. mars og 15. september.
Næsti umsóknarfrestur rennur út 15. mars kl. 17.00.
Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á www.rannis.is.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skila
á rafrænu formi.
Stjórn Hljóðritasjóðs
Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Netfang: hljodritasjodur@rannis.is
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ö
n
n
u
n
Umsóknarfrestur til 15. mars
Hljóðritasjóður
Styrkir úr Vísindasjóði
Krabbameinsfélags Íslands
www.krabb.is
Vísindasjóður Krabbameins-
félags Íslands auglýsir eftir um-
sóknum um styrki úr sjóðnum.
Markmið sjóðsins er að efla
íslenskar rannsóknir á krabba-
meinum með því að styrkja
með fjárframlögum rannsóknir
á orsökum krabbameina, for-
vörnum, meðferð og lífsgæðum
sjúklinga.
Með hliðsjón af því stofnframlagi sem kom
úr sjóði Kristínar Björnsdóttur fyrrverandi
starfsmanns Sameinuðu þjóðanna er sér-
staklega tekið fram að hluti styrkveitinga úr
sjóðnum skal vera til að styðja við rann-
sóknir krabbameina í börnum og unglingum
og aðhlynningu krabbameinssjúkra barna.
Stofnfé Vísindasjóðs Krabbameinsfélags
Íslands er 250 milljónir króna og í samræmi
við ákvæði í stofnskrá sjóðsins mun stjórn
sjóðsins úthluta allt að 100 milljónum króna
til vísindarannsókna og annarra verkefna á
næstu þremur árum. Stjórn sjóðsins mun
veita styrki til smærri verkefna og rannsókna
en einnig til umfangsmeiri vísindarannsókna.
Hámarksupphæð styrks til viðameiri vísinda-
rannsókna er 10 milljónir króna á ári.
Umsóknareyðublað, stofnskrá, úthlutunar-
reglur og aðrar upplýsingar um Vísindasjóð
Krabbameinsfélags Íslands er að finna á
heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands,
krabb.is/visindasjodur. Umsóknir skal
senda rafrænt á visindasjodur@krabb.is.
Umsóknir um styrki vegna vísindarannsókna
verða sendar Vísindaráði Krabbameinsfélags
Íslands til skoðunar, sem fer yfir allar um-
sóknir og veitir stjórn sjóðsins umsögn um
þær, eins og nánar er fjallað um í úthlutunar-
reglum sjóðsins. Umsóknum um styrki vegna
aðhlynningar krabbameinssjúkra barna skal
skila á sama umsóknareyðublaði og fylltir út
þeir reitir sem við eiga. Úthlutun úr sjóðnum
verður í byrjun maí nk. á aðalfundi Krabba-
meinsfélags Íslands.
Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins
1. mars nk. kl. 16:00.
Reykjavík, 4. febrúar 2017
Stjórn Vísindasjóðs
Krabbameinsfélags Íslands
Bandaríkin Ríkisstjórn Donalds
Trump, forseta Bandaríkjanna,
ákvað í gær að beita Írana viðskipta-
þvingunum vegna nýrra eldflauga-
tilrauna þeirra. Ákvörðunin beinist
gegn þrettán einstaklingum og
tólf fyrirtækjum sem annaðhvort
eru írönsk eða tengjast írönskum
stjórnvöldum.
Verða eignir viðkomandi í Banda-
ríkjunum frystar og Bandaríkja-
mönnum verður meinað að stunda
viðskipti við viðkomandi aðila.
„Þessar aðgerðir endurspegla
skuldbindingu Bandaríkjanna gagn-
vart því að framfylgja þvingunarað-
gerðum gegn Írönum vegna eld-
flaugaverkefnis þeirra og tilrauna
þeirra til þess að koma á óreiðu á
svæðinu,“ segir í tilkynningu frá
fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna.
Þá er aðgerðin talin tengjast til-
skipun Trumps um að meina ríkis-
borgurum sjö þjóða í Norður-Afríku
og Mið-Austurlöndum inngöngu í
Bandaríkin. Eitt þeirra ríkja er Íran.
Vegna tilskipunarinnar bönnuðu
írönsk stjórnvöld bandarískum
glímuköppum sem áttu að keppa á
móti í höfuðborginni Teher-
an að koma til landsins.
Sjálfur tjáði Trump
sig um eldflaugatil-
raunir Írana á Twitter í
gær. „Íranar leika sér að
eldinum. Þeir átta sig ekki
á því hversu linur Obama
forseti var í þeirra garð. Það
verð ég ekki,“ skrifaði
Trump og vísaði þar til
forvera síns í starfi.
Írönsk stjórnvöld
svara Trump hins
vegar fullum hálsi.
Ali-Akbar Velayati, utanríkismála-
ráðgjafi æðstaklerksins Khamenei,
sagði að Bandaríkin myndu tapa
þessari deilu. „Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem barnalegur Bandaríkja-
maður hótar Írönum,“ sagði hann
í gær.
Árið 2015 komust Íranar að sam-
komulagi við Bandaríkin, Bretland,
Rússland, Frakkland, Kína, Þýska-
land og Evrópusambandið um að
hætta þróun kjarnorkuvopna gegn
því að viðskiptaþvingunum yrði
aflétt. Ráðamenn í Bandaríkjunum
halda því fram að nýjar tilraunir
brjóti á þessu samkomulagi. Því
neita Íranar. Tilraunirnar eru sagðar
liður í að styrkja varnir ríkisins.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki
komist að niðurstöðu um hvort til-
raunirnar brjóti á samkomulaginu.
Áður en tilkynnt var um nýjar
þvinganir sagði utanríkisráðherra
Írans, Mohammad Javad Zarif, að
hótanir myndu ekki bíta á írönsk
stjórnvöld.
thorgnyr@frettabladid.is
Beita Írana
þvingunum
Nýjar eldflaugatilraunir Írana leggjast illa í Banda-
ríkjamenn. Ríkisstjórnin hefur beitt þvingunum.
Bandaríkjaforseti segir Obama hafa verið of linan.
Íranar leika sér að
eldinum. Þeir átta
sig ekki á því hversu linur
Obama forseti var í
þeirra garð. Það verð
ég ekki.
Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna
Viðbúnaður við Louvre
Þungvopnað lið lögreglunnar í París var við Louvre-safnið í gær. Karlmaður, sem sagður er Egypti á þrítugs-
aldri, reyndi að komast inn í verslunarhluta safnsins. Var hann vopnaður sveðju og ógnaði viðstöddum áður
en franskur hermaður sem var á vakt skaut hann. Nordicphotos/AFp
4 . f e B r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-1
A
1
C
1
C
2
9
-1
8
E
0
1
C
2
9
-1
7
A
4
1
C
2
9
-1
6
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K