Fréttablaðið - 04.02.2017, Síða 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Þá er ótalinn
annar kostn-
aður sam-
félagsins en
sama rann-
sókn reiknar
það svo að
um 6 prósent
tapaðra
vinnustunda í
heiminum
megi rekja til
reykinga. Þar
bætist við
annar kostn-
aðarliður
fyrir sam-
félagið.
Mín skoðun Logi Bergmann
#islenskaoperan · Miðasala: opera.is
HEFUR ÞÚ UPPLIFAÐ ÁSTARSORG?
ÓPERA / LEIKRIT EFTIR POULENC & COCTEAU
FRUMSÝNING 9. FEBRÚAR 2017 Í HÖRPU
LEIKGERÐ OG LEIKSTJÓRN:
BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR
FLYTJENDUR AUÐUR GUNNARSDÓTTIR,
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR OG
EVA ÞYRI HILMARSDÓTTIR
Ef ég væri svona alvöru pistlahöfundur, sem tæki mig hátíðlega, væri ég núna að fara að skrifa pistil um Donald Trump. En vá hvað ég nenni
því ekki. Fer hann ekki bara ef við hættum að tala um
hann?
Í staðinn langar mig að skrifa um annað undarlegt
fyrirbæri: Meistaramánuð og hvernig sumir nálgast
það, sem kallað er að koma sér í form. Hvað sem það
þýðir.
Ef það er eitthvað sem allir elska, þá er það einfalda
leiðin. Einfalda leiðin til að hætta að reykja, einfalda
leiðin til að hætta að borða sykur, léttast, þrífa, læra
eða ala upp börn.
Við bara elskum þetta og erum alltaf til í að prófa
eitthvað sem er bara nógu einfalt. Við vitum alveg
innst inni að þetta virkar ekki en okkur langar bara
svo sjúklega til þess. Af því þetta er svo einfalt. Sérstak-
lega núna, þegar fólk ætlar í einhvers konar panikki að
fara að kolefnisjafna ruglið yfir hátíðirnar í Meistara-
mánuði. Á einfaldan hátt.
Ekki misskilja mig. Einfalt er vissulega gott. Ég vil
hafa hluti einfalda. Það segir sig sjálft. Takið til dæmis
eftir því hvað orðið einfalt hefur á sér miklu þægi-
legri blæ en orðið flókið. Það er vesen og óþægilegt.
Vissulega, svona ef maður hugsar það aðeins, er flókið
líklegra til að virka. En samt …
Þetta er ekki eitthvað sem þessi kynslóð fann upp.
Ef internetið hefði verið komið hér áður fyrr þá hefði
örugglega einhver leitað að þessu: Einfalda leiðin til að
fá sjálfstæði frá Dönum eða einfalda leiðin til að galdra
án þess að verða brenndur á báli.
Ef ég væri að selja eitthvað þá myndi ég leggja
áherslu á að það væri einfalt. Ég held að það sé það
fyrsta sem fólk hugsar um. Helst einfalt og kostar enga
vinnu. Það er fullkomin vara.
Og ég ætla ekki að vera með nein leiðindi út af því.
Þannig höfum við fengið alls konar skemmtilega hluti:
Bumbubanann, kartöfluflysjarann, alls konar hreinsi-
dót. Já, bara allan sjónvarpsmarkaðinn.
Einfalt er betra en erfitt
Helst af öllu viljum við samt einfalda hluti þegar við
þurfum að gera eitthvað erfitt. Eins og grennast. Þá
fyrst erum við til í að gera okkur að algjörum fíflum til
að komast hjá því að leggja eitthvað á okkur.
Æfa í þrjár mínútur á dag og missa 15 kíló. Já, það
hljómar eðlilega. Drekka grænt te og breyta engu
öðru og missa tíu kíló. Já, það er einmitt það sem ég er
tilbúinn til að leggja á mig.
Og hver gæti gleymt megrunarkaramellunum eða
eyrnalokkunum eða plástrunum eða munnspreyinu
eða bara einhverju sem er með orðinu einfalt. Svo
voru líka pillurnar. Ein pilla og sex vatnsglös þrisvar á
dag og þá ertu ekkert svangur. Og núna síðast. Rauð-
vínsglas fyrir svefninn og kílóin fjúka af. Frábært!
Í alvöru. Hvað ætli sé almennt að gerast í höfðinu
á fólki sem heldur að það grennist við það að borða
súkkulaðikaramellur? Sennilega harla lítið en ég ætla
ekki að dæma. Þetta er svo einfalt.
Einfaldur sannleikur
Nú er ég hvorki lærður einkaþjálfari né íþróttakennari
en ég held að það sé í raun búið að rannsaka þetta allt.
Ef þú ætlar að léttast þá þarftu að brenna fleiri hita-
einingum en þú innbyrðir. Sem er vissulega einfalt en
kannski ekki jafn skemmtilegt að æfa í þrjár mínútur
tvisvar í mánuði og borða megrunarkaramellur og
drekka rauðvín þess á milli. En þegar þið hugsið ykkur
aðeins um. Hefur einhver sagt að lífið sé einfalt?
P.s.: Einfalt kemur fyrir 22svar sinnum í þessum
pistli. Bara ef þú varst að pæla í því. Já, eða 23svar með
þessu síðasta.
Einfalda leiðin
Heilbrigðiskerfi í heiminum eyða tæp-lega 1.500 milljörðum Bandaríkja-dala á ári hverju í læknisþjónustu vegna sjúkdóma og kvilla sem tengj-ast reykingum, samkvæmt nýlegri rannsókn Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar WHO.
Talan er vissulega svimandi há. Ef til vill er auð-
veldara að átta sig á umfanginu með því að benda á
að fyrir hverjar 100 krónur sem fara í útgjöld af hvaða
toga sem er, hvar sem er í heiminum, fara tvær krónur
í þennan eina kostnaðarlið. Tæplega ein af hverjum
tíu krónum sem fara í heilbrigðismál á heimsvísu
rennur að endingu í meðferðir og annan kostnað
vegna fylgikvilla reykinga.
Þá er ótalinn annar kostnaður samfélagsins en
sama rannsókn reiknar það svo að um sex prósent
tapaðra vinnustunda í heiminum megi rekja til
reykinga. Þar bætist við annar kostnaðarliður fyrir
samfélagið.
Löngu er orðið þekkt að reykingar valda ýmiss
konar heilsutapi. Reykingafólk er líklegra til að
glíma við hjartasjúkdóma og rannsóknir benda til
að reykingar geti valdið allt að sautján tegundum af
krabbameini. WHO telur að á ári hverju megi rekja
um 12 prósent allra dauðsfalla í aldurshópnum 30 til
69 ára til reykinga.
Í ofangreindum tölum eru ótaldir fylgikvillar
óbeinna reykinga, sem vissulega er erfiðara að festa
hendur á. Haft er fyrir satt að allt að sex milljónir
manna deyi af þeirra völdum á ári hverju.
„Reykingar eru einhver stærsta heilsuvá sem mann-
kynið hefur staðið frammi fyrir,“ segir í skýrslu WHO.
Stofnunin gengur ekki svo langt að leggja til allsherjar
bann við reykingum. En bendir á að reynslan sýni að
ofurskattlagning á tóbaki sé besta leiðin til að berjast
gegn aukinni neyslu.
Hér á Íslandi voru opinber gjöld á tóbak hækkuð
um áramótin; svokallað tóbaksgjald nemur nú
rúmum 480 krónum á hvern pakka. Við bætist síðan
24% virðisaukaskattur. Ef miðað er við að sígarettu-
pakki kosti 1.500 krónur renna 60 prósent verðsins
til ríkisins. Miðað við ráðleggingar WHO er það ekki
nóg. Ljóst er að gjald þetta hrekkur hvergi nærri til að
standa undir þeim mikla þjóðfélagslega kostnaði sem
hlýst af reykingum.
Reykingar eru líka ólíkar mörgum öðrum skað-
völdum, að því leyti að reykingamaðurinn skaðar
ekki einungis sjálfan sig með háttsemi sinni, heldur
einnig aðra gegnum óbeinar reykingar. Kostnaður
sem af hlýst vegna óhófsneyslu greiðist svo úr sam-
eiginlegum sjóðum.
Þau hófsömu borga fyrir hin sem ráða ekki við
neyslu sína. Það er ósanngjarnt. Reykingar eru sjálf-
skaparvíti öfugt við flesta sjúkdóma sem herja á fólk.
Úttekt WHO minnir okkur á skaðsemi tóbaks.
Kannski er ástæða til að banna hreinlega neyslu skað-
valdsins. Sennilega er ekki lengra en ein mannsævi í
að sú verði raunin.
Sjálfskaparvíti
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r18 s k o ð U n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
SKOÐUN
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-0
1
6
C
1
C
2
9
-0
0
3
0
1
C
2
8
-F
E
F
4
1
C
2
8
-F
D
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K