Fréttablaðið - 04.02.2017, Side 40

Fréttablaðið - 04.02.2017, Side 40
Það þarf eitthvert úrræði sem heldur utan um hann og þá sem eru í svipaðri stöðu. Hann lendir milli kerfa og ég kem alls staðar að lokuðum dyrum þegar ég reyni að finna úrræði fyrir hann,“ segir Aldís Þóra um föður sinn sem er með geð- hvarfasýki og framheilaskaða. Hann glímir einnig við fíkn og úrræði fyrir hann eru af skornum skammti. „Þetta lendir á aðstandendum. Ég veit að það eru miklu fleiri þarna í sömu sporum en tala ekki um það, grenja bara í koddann eins og við höfum gert í mörg ár,“ segir Aldís. Faðir Aldísar var að verða fimm- tugur þegar hún fékk forræði yfir honum. Aðdragandinn var nauð- ungarvistun sem endaði með inn- lögn á Kleppi. „Það var enginn annar sem gat tekið það að sér. Ég var í jóla- boði þegar ég fékk símtalið. Það voru allir búnir að fá nóg í fjölskyldunni. Annaðhvort fær lögfræðingur eða einhver úr fjölskyldunni forræðið. Ég tók ábyrgðina í þetta sinn. Það var virkilega erfitt. Ég náði eiginlega engu sambandi við lækninn hans á geðdeild Landspítalans. Ég náði ekki í hann í tvo heila mánuði. Ég hringdi kannski til að leita svara og hann hringdi bara ekki til baka,“ segir Aldís og segist telja þetta algengt hlutskipti aðstandenda. Þeir finni til ábyrgðar gagnvart bjargarlausum ættingjum en finni sig vanmáttuga í samskiptum við geðheilbrigðis- kerfið. „Það er virkilega erfitt fyrir fólk að vera sjálfræðissvipt. Og það er virki- lega erfitt að vera með forræði yfir foreldri sínu. Heilbrigðisstarfsfólk trúði mér ekki og virti mig stundum heldur ekki sem aðstandenda. Ég þurfti alltaf að vera með skjölin á mér og berjast fyrir því að fá að vera látin vita þegar eitthvað kom upp á,“ segir hún. Býr í bílnum Eftir hálfs árs dvöl á Kleppi reyndi Aldís að fá úrræði fyrir föður sinn. „Það er bara ekkert úrræði til sem hann passar inn í því hann er og verður alltaf fíkill. Inni á Kleppi var algjört úrræðaleysi gagnvart honum. Geðhvarfasýki er flókin vegna fjölda ranghugmynda sem margir sjúkling- ar virðast fá og framheilaskaði föður míns leikur stórt hlutverk í hans veikindum vegna þess hve mikil skerðing hefur orðið á siðferðishugs- unum. Samspil geðhvarfasýkinnar og framheilaskaðans er því ekki gott þar sem siðferði hefur auðvitað áhrif á ákvarðanatöku þegar rang- hugmyndirnar sækja að. Hann fær reyndar forðasprautur núna af geð- lyfjum og er í meira jafnvægi en áður en býr í bílnum sínum. Honum tekst ekki að fara eftir reglum sem honum eru settar á sambýlum, félagslegu húsnæði og áfangaheimilum. Ég var hrædd við pabba alla mína barnæsku. Enda hótaði hann okkur og ógnaði og sat um okkur í veik- indum sínum. Ég skildi þetta aldrei þegar ég var lítil, það hefði þurft að greina þetta betur fyrir okkur systk- Var með forræði yfir föður sínum í hálft ár Úrræðaleysi er í málefnum fólks sem glímir bæði við geðsjúkdóma og fíkn að mati að- standenda. Aldís Þóra Steindórsdóttir er tuttugu og fjögurra ára gömul. Á síðasta ári var hún með forræði yfir föður sínum. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is inin. Til að hjálpa okkur að sætta okkur við hlutskipti okkar og bak- grunn. Ég get sett ákveðna hluti í samhengi í dag. Ég veit til dæmis að hann lenti í bílslysi þegar hann var fjórtán ára gamall. Í því hlaut hann framheila- skaða. Hann veikist svo mikið í kringum tvítugsaldur. Þá stekkur hann allt í einu út í sjó og þá er hann tekinn upp á geðdeild. Það er lítið vitað um samspil geðhvarfa og svona framheilaskaða. Mér finnst ég vera á milli kerfa. Mér finnst þessi kerfi ekki tala saman. Ég er í hlutverki aðstandenda en ég er líka í hlutverki ungrar konu sem langar til að klára stúdentspróf og verða heil. Álagið er margra ára og svo þungt. Það getur enginn borið svona byrðar,“ segir Aldís. Kerfið afhendir börnum vandann Aldís hefur frá því hún var barn þurft að standa í miklu stappi við kerfið vegna föður síns en líka vegna móður sinnar sem er heyrnarlaus. „Ég hef verið lengi inni í þessum kerfum og veit því hvað þau tala illa saman. Þetta eru mjög brotin kerfi. Ég var fimm ára þegar barnaverndarkerfið skipti sér fyrst af mér. Ég var á um tíu fósturheimilum þar til ég varð fimm- tán ára. Þegar ég lít til baka verð ég reið því að vandinn var aðeins með- höndlaður með því að taka okkur í burtu í stað þess að hjálpa foreldrum mínum. Þannig var vandanum frest- að þar til að við tókum við honum á fullorðinsaldri. Um leið og ég er sjálf- ráða afhendir kerfið mér vandann sem er þá búinn að vinda upp á sig,“ segir Aldís. Getur ekki byrjað lífið Hvað vill hún? Hvað telur hún að muni gagnast bæði veikum og fjöl- skyldum þeirra? „Mér finnst það blasa við að félagslega og heilbrigðiskerfið verð- ur að vera heild. Ef börn geðsjúkra fengju sálræna aðstoð við hæfi og fast utanumhald, alla bernskuna, Þá væru ekki svona margir veikir og vanmáttugir einstaklingar. Eitt alvarlega veikt foreldri leiðir af sér veik börn, veika afa og ömmu. Öll fjölskyldan veikist vegna álags. Og satt best að segja, þá finnst mér kerfið stundum gera illt verra. Fjöl- skyldan er í gíslingu. Við bíðum öll eftir næsta kasti. Lifum ekki lífinu. Erum bara föst. Ráðin sem ég hef fengið er að loka á hann. Flytja úr landi. Byrja mitt líf. En það er hæg- ara sagt en gert. Sá sem gefur svona ráð, er ekki í þessari stöðu. Ég get ekki byrjað lífið. Draumur minn er að það sé teymi um hverja fjölskyldu sem í er alvar- lega geðsjúkur einstaklingur. Teymi sem heldur utan um alla fjölskyld- una. Ekki bara þann veika. Börnin líka. Aðstandendur. Teymi sál- fræðinga, geðlækna, félagsfræðinga, lækna. Allt tengt saman. Það er til vísir að þessu teymi en það er bara hugsað fyrir þá veiku og þetta varð ekki að neinu eftir hrun. Þetta finnst mér þurfa að gera fyrir utan það að búa til úrræði þar sem þetta veika fólk getur búið.“ Aldís Þóra Steindórsdóttir segir félags- og heilbrigðiskerfi þurfa að vera eina heild og kallar eftir að teymi séu mynduð utan um fjölskyldur. FréttABlAðið/HAnnA Um leið og ég er sjálf- ráða afhendir kerfið mér vandann sem er þá búinn að vinda Upp á sig Aldís Steindórsdóttir heimilt er með úrskUrði dómara að svipta mann tíma bUndið lögræði, til dæmis vegna alvarlegs geðsjúkdóms HVERNIG KEMUR ÞÚ UNDAN SÓLINNI! AF HVERJU AÐ SÆTTA SIG VIÐ SÓLAR SKEMMDIR OG ÓTÍMABÆRAR LITABREYTINGAR VIÐ GETUM LAGAÐ ÁSTAND HÚÐARINNAR Fyrir Eftir PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com Snyrtistofan Hafblik 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r40 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 0 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 2 9 -8 1 C C 1 C 2 9 -8 0 9 0 1 C 2 9 -7 F 5 4 1 C 2 9 -7 E 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.