Fréttablaðið - 04.02.2017, Side 54
| AtvinnA | 4. febrúar 2017 LAUGARDAGUR8
HÚSASMIÐUR
Faxaflóahafnir sf óska að ráða húsasmið til starfa.
Starfið felst í vinnu við ýmis viðhaldsverkefni á
vegum hafnanna.
Starfsmaðurinn munu hafa starfsstöð í Bækistöð
Faxaflóahafna að Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar um starfið gefur
Jón Guðmundsson í síma 5258951.
Verkefnastjóri í Þekkingarsetrinu
Nýheimum á Höfn í Hornafirði
Óskað er eftir öflugum aðila í starf verkefnastjóra í
Þekkingarsetrinu Nýheimum. Þekkingarsetrið er samfélag
fjölmargra stofnana sem starfa undir merki Nýheima.
Starfið er fjölþætt og heyrir undir forstöðumann og stjórn
setursins.
Meginmarkmið Þekkingarsetursins Nýheima er að stuðla
að auknu samstarfi einstaklinga, atvinnulífs, stofnana
og opinberra aðila með sérstaka áherslu á samþættingu
menningar, menntunar, nýsköpunar og rannsókna.
Helstu ábyrgðarsvið:
• Umsjón með stærri og smærri verkefnum
• Undirbúningur, skipulagning, áætlanagerð og eftirfylgni
verkefna í samræmi við stefnu setursins
• Verkefnavinna, þjónusta og samskipti við samstarfsaðila,
samstarfsfólk og hagsmunaaðila.
• Hafa frumkvæði að þróun og mótun verkefna og
rannsókna, svo sem leit að samstarfsaðilum, styrkjasókn
og styrkumsóknagerð.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð samskiptahæfni
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Leiðtogahæfileikar
• Gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði á íslensku
og ensku
Búseta í Sveitarfélaginu Hornafirði er skilyrði
fyrir ráðningu.
Upplýsingar um starfið veitir Hugrún Harpa Reynisdóttir
forstöðumaður Þekkingarsetursins í síma: 892 3757.
Umsóknir skulu merktar „Þekkingarsetur Nýheima” og
berast á rafrænu formi á netfangið:
hugrunharpa@nyheimar.is.
Með umsókn skal fylgja kynnisbréf auk ferilskrár með
yfirliti yfir námsferil og fyrri störf. Afrit prófskírteina þarf að
fylgja umsókn. Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar
næstkomandi og gert er ráð fyrir að
umsækjandi geti hafið störf 1. mars eða eftir samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað.
Áhugaverð
störf á góðum
vinnustað
Upplýsingar um Samgöngustofu má finna á vef stofnunarinnar, www.samgongustofa.is.
samgongustofa.is ı Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
17
-0
39
7
Hjá Samgöngustofu starfa um 140 öflugir starfsmenn sem hlakka til þess að þú bætist í hópinn.
Lagt er upp með jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, frumkvæði og þátttöku, auk þess sem
mötuneytið er frægt fyrir frábæran mat. Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála
sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru
og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.
Fagstjóri fjármáladeildar
Samgöngustofa leitar að fagstjóra í fjármáladeild stofnunarinnar. Við leitum að öflugum einstak-
lingi sem hefur metnað til að sinna krefjandi og fjölbreyttum verkefnum er snúa að fjármálum, s.s.
ýmsum uppgjörum, áætlanagerð, úrvinnslu tölulegra upplýsinga, innra eftirliti o.fl. Nýr starfs-
maður mun taka þátt í stefnumótun og innleiðingu nýrra verkefna og verklags og vinna náið með
stjórnendum sviðsins. Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfniskröfur
• B.Sc í viðskiptafræði eða sambærileg háskólamenntun
• Reynsla og þekking á Navision er kostur
• Mjög góð Excel-kunnátta er skilyrði
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Nákvæm og vönduð vinnubrögð
• Jákvæðni og vinsamlegt viðmót
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar 2017
Hægt er að sækja um starfið rafrænt á www.samgongustofa.is/storf
Nánari upplýsingar veita Dagný Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, og Brynja
Blomsterberg, deildarstjóri fjármáladeildar, í síma 480-6000. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar
á ný. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Bókari í fjármáladeild
Samgöngustofa leitar að bókara í fjármáladeild stofnunarinnar. Við leitum að öflugum einstaklingi
með góða reynslu í bókhaldi, afstemmingum og öðru sem snýr að bókhaldi og uppgjörsvinnu.
Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Mjög góð reynsla og þekking á bókhaldi er skilyrði
• Góð kunnátta á Navision er skilyrði
• Góð færni í Excel og almenn tölvukunnátta
• Nákvæm og öguð vinnubrögð
• Gott viðmót og færni í mannlegum samskiptum
Í boði eru spennandi störf hjá metnaðarfullri stofnun í alþjóðlegu umhverfi. Við bjóðum góða
starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga.
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-7
7
E
C
1
C
2
9
-7
6
B
0
1
C
2
9
-7
5
7
4
1
C
2
9
-7
4
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K