Fréttablaðið - 04.02.2017, Side 96

Fréttablaðið - 04.02.2017, Side 96
Stefán Pálsson skrifar um afdrifa- ríkan fótboltaleik Íþróttamyndir eru sérstök und­irgrein innan kvikmyndasög­unnar og njóta sífellt vinsælda, þótt fæstar þeirra komist í hóp sígildra meistaraverka. Upp í hugann kemur þó Eldvagninn (Chariots of Fire) sem fjallaði um afrek tveggja hlaupagarpa á Ólymp­ íuleikunum 1924. Árið 1982 varð hún fyrsta breska myndin um langt árabil til að hljóta Óskarsverðlaun. Bandaríkjamenn hafa gert fjölmargar eftirminnilegar myndir um vin­ sælustu hópíþróttir sínar á borð við hafnabolta, körfuknattleik, íshokkí og ruðning. Í samanburði við þá flóru alla, mynda þær fáu skikkan­ legu ræmur sem gerðar hafa verið um knattspyrnuna, vinsælustu íþrótt í heimi, furðu rýran flokk. Í hópi þeirra bestu er myndin Escape to Vict­ ory eða Flótti til sigurs eins og hún nefndist í Laugarásbíói árið 1981. Það var stórleikstjórinn John Huston sem stýrði myndinni og var leikarahópurinn skringileg blanda af kunnum Hollywood­stjörnum, svo sem Sylvester Stallone, Michael Caine og Max von Sydow, en einnig gömlu fótboltakempunum Pelé og Bobby Moore. Myndin gerist á árum seinni heimsstyrjaldarinnar í fanga­ búðum þar sem Þjóðverjar halda hermönnum frá ýmsum löndum. Í hópnum er kunnur enskur knatt­ spyrnukappi og út frá því kviknar sú hugmynd hjá stjórnendum þýska hersins að hafa sýningarleik milli stríðsfanganna og þýsks úrvalsliðs. Fangarnir láta til leiðast, enda ætla þeir að nota tækifærið til að flýja. Í ljós kemur að nasistar hyggjast nýta kappleikinn til að sýna fram á yfirburði hins aríska kynstofns. Liði fanganna er hótað öllu illu fyrir leikinn og dómarinn leyfir Þjóðverj­ unum að komast upp með hreinan fantaskap. Leikmennirnir láta þetta yfir sig ganga og áforma flótta um leynigöng úr búningsklefa sínum í leikhléi, en þegar á hólminn er komið verður sigurviljinn yfirsterkari. Þeir snúa aftur til leiks eftir hlé og vinna frægan sigur. Í leiðinni hrífa þeir með sér áhorfendur sem þyrpast inn á völlinn í leikslok og í ringulreiðinni sem myndast tekst leikmönnunum djörfu að leynast í mannfjöldanum og sleppa brott. Flótti til sigurs Liði fanganna er hótað öllu illu fyrir leikinn og dómarinn leyfir Þjóð- verjunum að komast upp með hreinan fantaskap. Saga til næsta bæjar inn Trúsevíts en flestum hinna tókst að flýja úr varðhaldi og leyn­ ast þar til þýskum yfirráðum lauk. Ætla mætti að þessi dramatíska saga hefði strax eftir stríðið komist á allra varir. Viðbrögð sovéskra stjórnvalda voru þó þau að þagga hana niður. Í hugum þeirra var hugmyndin um hugdjarfa fótbolta­ menn sem buðu nasistum birginn ekki endilega til marks um dirfsku, heldur fremur vísbending um óeðlilega samvinnu við hernáms­ liðið. Hvernig datt mönnunum í hug að spila fótbolta við nasista? Það var ekki fyrr en í lok sjötta ára­ tugarins að sovéska kerfið áttaði sig á áróðursgildi sögunnar og farið var að hampa leikmönnunum sem hetjum. Í þeirri mynd varð frásögnin smátt og smátt safaríkari. Leikmennirnir voru sagðir hafa verið handteknir strax að leik loknum, lið­ inu hótað öllu illu í leik­ hléi, dómarinn hafi verið SS­foringi og hundum sigað á fagnandi áhorf­ endur. Eftir að Sovétríkin liðuðust í sundur hafa þjóðernissinnaðir úkra­ ínskir fræðimenn eytt talsverðri orku í að ráðast gegn ýmsu í viðtekinni söguskoðun, einkum varðandi ár seinni heims­ styrjaldarinnar. Hefur tilhneigingin verið sú að gera lítið úr sovéskri samstöðu á hernámsár­ unum. Sagan af örlögum leikmannanna í Start er því þyrnir í augum þeirra. Fyrir vikið hafa úkraínskir sagnfræðingar lagt sig fram um að benda á veilurnar í hefð­ bundnu sögunni um dauðaleikinn 1942: að Þjóðverjar hafi ekki verið viðkvæmir fyrir að tapa í íþróttum fyrir hernumdum þjóðum, að leikur­ inn hafi verið eðlilega dæmdur og að andrúmsloftið á vellinum hafi verið afslappað. Jafnframt leggja þeir mikla áherslu á að skýra að drápin á leik­ mönnunum hafi í raun verið ótengd úrslitunum og tengst öðrum hlutum­ Hvað sem þessum vangaveltum líður, munu þó flestir vera sammála um að það sé engin goðgá að tengja saman þessa tvo atburði: að verkamenn í úkraínsku bakarísliði hafi lagt Þjóð­ verja að velli og að allt liðið sé hand­ tekið rúmlega viku síðar. Og þótt hetjumyndin sem dregin hefur verið upp sé ef til vill aðeins of einföld, þá er það eiginlega alltaf raunin. Þann­ ig fáum við líka bestu og skemmti­ legustu Hollywood­myndirnar. Raunverulegar fyrirmyndir Gleðilegi endirinn var talsvert frá­ brugðinn niðurlagi ungversku kvik­ myndarinnar Két félidő a pokol­ ban eða Tveir leikhlutar í helvíti frá árinu 1962, sem þó var fyrir­ myndin að Flótta til sigurs. Sú saga var látin gerast í Ungverjalandi og knattspyrnukeppnin haldin í til­ efni af afmæli Adolfs Hitler árið 1944. Ungversku leikmannanna bíður dauðadómur, en þeim er sagt að tapi þeir leiknum gætu þeir haldið lífi. Þeir láta ekki beygja sig og breyta stöðunni úr 1:3 í 4:3 sér í vil, en eru allir skotnir í leikslok. Þessi þunglyndislegi söguþráður var innblásinn af atburðum sem áttu sér stað í Úkraínu á árum seinni heimsstyrjaldar. Um er að ræða alræmdasta knattspyrnu­ leik allra tíma, þótt enn í dag sé hann bitbein sagnfræðinga. „Dauðaleikurinn“ nefnist atburður þessi í rússneskum sögubókum og átti sér stað í Kænugarði þann níunda ágúst árið 1942. Borgin var undir stjórn Þjóðverja sem lögðu hana undir sig haustið 1941. Þjóð­ verjar áttu sér ýmsa fylgjendur í Úkraínu, sem töldu stjórn nasista betri kost en kommúnistastjórnina í Moskvu. Margir fögnuðu því komu þýska hersins til Kænugarðs, en sú hrifning hvarf skjótt þegar harð­ stjórn þeirra og morðæði varð ljóst. Í fyrstu miðaðist öll stjórn Þjóð­ verja í Úkraínu við að styðja stríðs­ reksturinn. Allir vinnufærir menn voru skikkaðir til að vinna fyrir hernaðarvélina með einum eða öðrum hætti. Með tímanum ákvað hernámsstjórnin þó að reyna að vinna heimamenn á sitt band með ýmsum hætti, svo sem með því að draga úr matarskömmtun og leyfa á ný eitt og annað sem minnt gat á hefðbundna tilveru, þar á meðal að skipuleggja knattspyrnumót. Komið var á laggirnar deildar­ keppni í Kænugarði með þátttöku liða frá hernámslöndunum en einnig heimamanna. Úkraínskir þjóðernissinnar og samverkamenn nasista stofnuðu félag og sönkuðu að sér leikmönnum. En það voru fleiri í borginni sem höfðu áhuga á fótbolta. Fyrir stríðið hafði Dynamo Kiev verið eitt öflugasta kapplið Úkraínu. Félagið hafði söguleg tengsl við sov­ ésku leyniþjónustuna og var starf­ semi þess því stranglega bönnuð. Fyrrverandi leikmenn félagsins voru tortryggðir af yfirvöldum og áttu erfitt með að fá vinnu. Í þeim hópi var Nikolai Trús evíts, fyrrver­ andi markvörður Dynamo­liðsins, sem hafði verið handtekinn af Þjóð­ verjum fyrst eftir hernámið en sleppt úr haldi eftir að hafa undirritað hollustueið við Hitlers­Þýskaland. Trúsevíts komst í kynni við for­ stjóra eins stærsta brauðgerðarhúss borgarinnar, Kordik að nafni. Kor­ dik þessi var af þýskum ættum og hafði því verið falið að stýra brauð­ verksmiðjunni. Hann var hins vegar gallharður fótboltaáhugamaður og fékk þá hugmynd að verksmiðjan myndi koma sér upp sínu eigin knattspyrnuliði. Trúsevíts var ráðinn til starfa sem ræstitæknir og honum falið að hafa uppi á gömlum liðsfélögum sínum. Smátt og smátt réð brauð­ gerðarhúsið til sín vænan hóp gamalla knattspyrnu­ manna, sem unnu sem verka­ menn að degi til en æfðu fót­ bolta á kvöldin. Liðið bar alþjóðlegt heiti, Start. Sigur og refsing Knattspyrnukeppnin í Kænugarði hófst sumarið 1942 og fljótlega kom í ljós að bakarísverkamennirnir í Start báru höfuð og herðar yfir önnur lið. Rukh, félag samverkamanna nasista, reyndist engin fyrirstaða og Start sigraði 7:2. Skipti þar engu þótt leikmenn Rukh kæmu úthvíldir til leiks og í alvöru knattspyrnubúningum en leik­ menn Start mættu dauðþreyttir úr vinnunni og spiluðu í vinnuskónum. Þýska hernámsliðið hafði á að skipa þokkalegum knattspyrnuflokki sem átti ekki í vandræðum með að sigra Rukh. Fyrir vikið vanmátu Þjóðverj­ arnir tötraklædda leikmenn Start, sem burstuðu þá 5:1. Í kjölfarið var í skyndi ákveðið að leika nýjan leik, til að leiðrétta mistökin. Það var viður­ eignin örlagaríka þann níunda ágúst. Start hafði 3:1 forystu í leikhléi. Þjóð­ verjarnir jöfnuðu í seinni hálfleik, en Start skoraði tvö síðustu mörkin og sigraði 5:3. Átta dögum síðar lék Start lokaleik sinn í mótinu og vann stórsigur. Daginn eftir mættu fulltrúar Gesta po í brauðverk­ smiðjuna, handtóku leikmennina og fluttu í fangabúðir. Fjórir voru drepnir, þar á meðal markvörður­ dómarinn hafi verið SS-foringi og hundum Sigað á fagnandi áhorf endur. 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r52 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 0 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 2 8 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 9 -4 1 9 C 1 C 2 9 -4 0 6 0 1 C 2 9 -3 F 2 4 1 C 2 9 -3 D E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 8 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.