Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 96
Stefán Pálsson
skrifar um afdrifa-
ríkan fótboltaleik
Íþróttamyndir eru sérstök undirgrein innan kvikmyndasögunnar og njóta sífellt vinsælda, þótt fæstar þeirra komist í hóp sígildra meistaraverka. Upp í hugann kemur þó Eldvagninn
(Chariots of Fire) sem fjallaði um
afrek tveggja hlaupagarpa á Ólymp
íuleikunum 1924. Árið 1982 varð
hún fyrsta breska myndin um langt
árabil til að hljóta Óskarsverðlaun.
Bandaríkjamenn hafa gert fjölmargar
eftirminnilegar myndir um vin
sælustu hópíþróttir sínar á borð við
hafnabolta, körfuknattleik, íshokkí
og ruðning. Í samanburði við þá
flóru alla, mynda þær fáu skikkan
legu ræmur sem gerðar hafa verið um
knattspyrnuna, vinsælustu íþrótt í
heimi, furðu rýran flokk. Í hópi þeirra
bestu er myndin Escape to Vict
ory eða Flótti til sigurs eins og hún
nefndist í Laugarásbíói árið 1981.
Það var stórleikstjórinn John
Huston sem stýrði myndinni og var
leikarahópurinn skringileg blanda
af kunnum Hollywoodstjörnum,
svo sem Sylvester Stallone, Michael
Caine og Max von Sydow, en einnig
gömlu fótboltakempunum Pelé og
Bobby Moore. Myndin gerist á árum
seinni heimsstyrjaldarinnar í fanga
búðum þar sem Þjóðverjar halda
hermönnum frá ýmsum löndum. Í
hópnum er kunnur enskur knatt
spyrnukappi og út frá því kviknar
sú hugmynd hjá stjórnendum þýska
hersins að hafa sýningarleik milli
stríðsfanganna og þýsks úrvalsliðs.
Fangarnir láta til leiðast, enda ætla
þeir að nota tækifærið til að flýja.
Í ljós kemur að nasistar hyggjast
nýta kappleikinn til að sýna fram
á yfirburði hins aríska kynstofns.
Liði fanganna er hótað öllu illu fyrir
leikinn og dómarinn leyfir Þjóðverj
unum að komast upp með hreinan
fantaskap. Leikmennirnir láta þetta
yfir sig ganga og áforma flótta um
leynigöng úr búningsklefa sínum í
leikhléi, en þegar á hólminn er komið
verður sigurviljinn yfirsterkari. Þeir
snúa aftur til leiks eftir hlé og vinna
frægan sigur. Í leiðinni hrífa þeir
með sér áhorfendur sem þyrpast inn
á völlinn í leikslok og í ringulreiðinni
sem myndast tekst leikmönnunum
djörfu að leynast í mannfjöldanum
og sleppa brott.
Flótti til
sigurs
Liði fanganna
er hótað
öllu illu fyrir
leikinn og
dómarinn
leyfir Þjóð-
verjunum að
komast upp
með hreinan
fantaskap.
Saga
til næsta
bæjar
inn Trúsevíts en flestum hinna
tókst að flýja úr varðhaldi og leyn
ast þar til þýskum yfirráðum lauk.
Ætla mætti að þessi dramatíska
saga hefði strax eftir stríðið komist
á allra varir. Viðbrögð sovéskra
stjórnvalda voru þó þau að þagga
hana niður. Í hugum þeirra var
hugmyndin um hugdjarfa fótbolta
menn sem buðu nasistum birginn
ekki endilega til marks um dirfsku,
heldur fremur vísbending um
óeðlilega samvinnu við hernáms
liðið. Hvernig datt mönnunum í
hug að spila fótbolta við nasista?
Það var ekki fyrr en í lok sjötta ára
tugarins að sovéska kerfið áttaði sig á
áróðursgildi sögunnar og farið var að
hampa leikmönnunum sem hetjum.
Í þeirri mynd varð frásögnin smátt
og smátt safaríkari. Leikmennirnir
voru sagðir hafa verið handteknir
strax að leik loknum, lið
inu hótað öllu illu í leik
hléi, dómarinn hafi verið
SSforingi og hundum
sigað á fagnandi áhorf
endur. Eftir að Sovétríkin
liðuðust í sundur hafa
þjóðernissinnaðir úkra
ínskir fræðimenn eytt
talsverðri orku í að ráðast
gegn ýmsu í viðtekinni
söguskoðun, einkum
varðandi ár seinni heims
styrjaldarinnar. Hefur
tilhneigingin verið sú
að gera lítið úr sovéskri
samstöðu á hernámsár
unum. Sagan af örlögum
leikmannanna í Start er
því þyrnir í augum þeirra.
Fyrir vikið hafa úkraínskir
sagnfræðingar lagt sig
fram um að benda á veilurnar í hefð
bundnu sögunni um dauðaleikinn
1942: að Þjóðverjar hafi ekki verið
viðkvæmir fyrir að tapa í íþróttum
fyrir hernumdum þjóðum, að leikur
inn hafi verið eðlilega dæmdur og að
andrúmsloftið á vellinum hafi verið
afslappað. Jafnframt leggja þeir mikla
áherslu á að skýra að drápin á leik
mönnunum hafi í raun verið ótengd
úrslitunum og tengst öðrum hlutum
Hvað sem þessum vangaveltum líður,
munu þó flestir vera sammála um að
það sé engin goðgá að tengja saman
þessa tvo atburði: að verkamenn í
úkraínsku bakarísliði hafi lagt Þjóð
verja að velli og að allt liðið sé hand
tekið rúmlega viku síðar. Og þótt
hetjumyndin sem dregin hefur verið
upp sé ef til vill aðeins of einföld, þá
er það eiginlega alltaf raunin. Þann
ig fáum við líka bestu og skemmti
legustu Hollywoodmyndirnar.
Raunverulegar fyrirmyndir
Gleðilegi endirinn var talsvert frá
brugðinn niðurlagi ungversku kvik
myndarinnar Két félidő a pokol
ban eða Tveir leikhlutar í helvíti
frá árinu 1962, sem þó var fyrir
myndin að Flótta til sigurs. Sú saga
var látin gerast í Ungverjalandi og
knattspyrnukeppnin haldin í til
efni af afmæli Adolfs Hitler árið
1944. Ungversku leikmannanna
bíður dauðadómur, en þeim er
sagt að tapi þeir leiknum gætu þeir
haldið lífi. Þeir láta ekki beygja sig
og breyta stöðunni úr 1:3 í 4:3 sér
í vil, en eru allir skotnir í leikslok.
Þessi þunglyndislegi söguþráður
var innblásinn af atburðum sem
áttu sér stað í Úkraínu á árum
seinni heimsstyrjaldar. Um er að
ræða alræmdasta knattspyrnu
leik allra tíma, þótt enn í dag
sé hann bitbein sagnfræðinga.
„Dauðaleikurinn“ nefnist atburður
þessi í rússneskum sögubókum
og átti sér stað í Kænugarði þann
níunda ágúst árið 1942. Borgin var
undir stjórn Þjóðverja sem lögðu
hana undir sig haustið 1941. Þjóð
verjar áttu sér ýmsa fylgjendur í
Úkraínu, sem töldu stjórn nasista
betri kost en kommúnistastjórnina
í Moskvu. Margir fögnuðu því komu
þýska hersins til Kænugarðs, en sú
hrifning hvarf skjótt þegar harð
stjórn þeirra og morðæði varð ljóst.
Í fyrstu miðaðist öll stjórn Þjóð
verja í Úkraínu við að styðja stríðs
reksturinn. Allir vinnufærir menn
voru skikkaðir til að vinna fyrir
hernaðarvélina með einum eða
öðrum hætti. Með tímanum ákvað
hernámsstjórnin þó að reyna að
vinna heimamenn á sitt band með
ýmsum hætti, svo sem með því að
draga úr matarskömmtun og leyfa
á ný eitt og annað sem minnt gat
á hefðbundna tilveru, þar á meðal
að skipuleggja knattspyrnumót.
Komið var á laggirnar deildar
keppni í Kænugarði með þátttöku
liða frá hernámslöndunum en
einnig heimamanna. Úkraínskir
þjóðernissinnar og samverkamenn
nasista stofnuðu félag og sönkuðu að
sér leikmönnum. En það voru fleiri í
borginni sem höfðu áhuga á fótbolta.
Fyrir stríðið hafði Dynamo Kiev
verið eitt öflugasta kapplið Úkraínu.
Félagið hafði söguleg tengsl við sov
ésku leyniþjónustuna og var starf
semi þess því stranglega bönnuð.
Fyrrverandi leikmenn félagsins
voru tortryggðir af yfirvöldum og
áttu erfitt með að fá vinnu. Í þeim
hópi var Nikolai Trús evíts, fyrrver
andi markvörður Dynamoliðsins,
sem hafði verið handtekinn af Þjóð
verjum fyrst eftir hernámið en sleppt
úr haldi eftir að hafa undirritað
hollustueið við HitlersÞýskaland.
Trúsevíts komst í kynni við for
stjóra eins stærsta brauðgerðarhúss
borgarinnar, Kordik að nafni. Kor
dik þessi var af þýskum ættum og
hafði því verið falið að stýra brauð
verksmiðjunni. Hann var hins vegar
gallharður fótboltaáhugamaður og
fékk þá hugmynd að verksmiðjan
myndi koma sér upp sínu eigin
knattspyrnuliði. Trúsevíts var ráðinn
til starfa sem ræstitæknir og
honum falið að hafa uppi á
gömlum liðsfélögum sínum.
Smátt og smátt réð brauð
gerðarhúsið til sín vænan
hóp gamalla knattspyrnu
manna, sem unnu sem verka
menn að degi til en æfðu fót
bolta á kvöldin. Liðið bar
alþjóðlegt heiti, Start.
Sigur og refsing
Knattspyrnukeppnin í
Kænugarði hófst sumarið
1942 og fljótlega kom í ljós
að bakarísverkamennirnir
í Start báru höfuð og herðar
yfir önnur lið. Rukh, félag
samverkamanna nasista,
reyndist engin fyrirstaða og
Start sigraði 7:2. Skipti þar
engu þótt leikmenn Rukh
kæmu úthvíldir til leiks og í alvöru
knattspyrnubúningum en leik
menn Start mættu dauðþreyttir úr
vinnunni og spiluðu í vinnuskónum.
Þýska hernámsliðið hafði á að skipa
þokkalegum knattspyrnuflokki sem
átti ekki í vandræðum með að sigra
Rukh. Fyrir vikið vanmátu Þjóðverj
arnir tötraklædda leikmenn Start,
sem burstuðu þá 5:1. Í kjölfarið var í
skyndi ákveðið að leika nýjan leik, til
að leiðrétta mistökin. Það var viður
eignin örlagaríka þann níunda ágúst.
Start hafði 3:1 forystu í leikhléi. Þjóð
verjarnir jöfnuðu í seinni hálfleik,
en Start skoraði tvö síðustu mörkin
og sigraði 5:3. Átta dögum síðar
lék Start lokaleik sinn í mótinu og
vann stórsigur. Daginn eftir mættu
fulltrúar Gesta po í brauðverk
smiðjuna, handtóku leikmennina
og fluttu í fangabúðir. Fjórir voru
drepnir, þar á meðal markvörður
dómarinn
hafi verið
SS-foringi
og hundum
Sigað á
fagnandi
áhorf
endur.
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r52 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
9
-4
1
9
C
1
C
2
9
-4
0
6
0
1
C
2
9
-3
F
2
4
1
C
2
9
-3
D
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K