Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 104
Listaverkin
Brandarar
Engill eftir Kötlu
Sturludóttur og
sjálfsmynd eftir
Fanneyju Nínu
Gísladóttur.
Mynd: Katla Sturludóttir HaMar Mynd/Fanney nína GíSladóttir
Steini: Hvers lags hundur er þetta?
Geiri: Þetta er lögregluhundur.
Steini: Ekki sýnist mér hann nú
líkjast neinum lögregluhundi.
Geiri: Nei, það er vegna þess að
hann er leynilögregluhundur.
Mamma: Af hverju viltu ekki fara í
skólann, Ágústa mín?
Ágústa: Vegna þess að í hvert sinn
sem kennarinn veit ekki svarið við
einhverju þá spyr hann mig.
Sjáðu afmælistertuna þína sem ég
var að skreyta, finnst þér hún ekki
flott?
Jú, þú ert mjög listræn en ekki sér-
lega góð í reikningi.
Karlmaður kom á bílaverkstæði
með klesstan bíl.
Hvernig vildi þetta óhapp til? spurði
viðgerðarmaðurinn.
Ja, ég ætlaði að bakka út úr bíl-
skúrnum mínum í morgun og var
bara búinn að gleyma því að ég
bakkaði inn í hann í gær.
Það var nýbúið að ráða nýjan safn-
vörð á listasafnið og yfirmaðurinn
kom til hans.
Jæja, hvernig gengur?
Mjög vel, þakka þér fyrir. Ég er þegar
búinn að selja eitt verk eftir Rem-
brandt og tvö eftir Picasso, bara í
dag!
Ásdís Gyða Atladóttir er sex ára
og gengur í Kársnesskóla. Uppá-
haldsfagið hennar er mynd-
mennt en hvernig finnst henni
skemmtilegast að leika sér? Að
teikna og lita er skemmtilegast.
Hvað horfir þú helst á í sjón-
varpinu? Ég horfi helst á Hvolpa-
sveitina og Gló mögnuðu.
Áttu sérstök áhugamál? Ég er í
Myndlistarskóla Kópavogs einu
sinni í viku í vetur og svo fer ég
oft í hesthúsið og á hestbak með
afa og ömmu. Á sumrin finnst
mér skemmtilegast að skreppa í
flugtúr á Ómægod. (TF-OMG)
Ef þú værir sögupersóna í bók,
hver myndir þú helst vilja vera?
Ég myndi vilja vera Rauðhetta
því hún er skemmtilegust.
Hvað er það fyndnasta sem þú
hefur lent í? Þegar ég datt á rass-
inn og flaug á hausinn á tramp-
ólíninu hjá Sóldísi frænku minni.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Pitsa með osti og ananas er
uppáhaldsmaturinn minn.
Áttu einhver gæludýr? Já, ég á
átta dýr en þau dreifast á nokkur
heimili og heita Spotti, Keli,
Kátur, Lappi, Damon, Lúna,
Skotta og Belja.
Hvað langar þig mest að verða
þegar þú verður stór? Ég ætla að
verða ballerínukennari.
Á átta dýr sem dreifast
á nokkur heimili
Ásdís Gyða Atladóttir fer oft í hesthúsið með afa og ömmu á
veturna og á sumrin finnst henni skemmtilegast að fara í flugtúr.
„ef ég væri sögupersóna í bók vildi ég helst vera rauðhetta því hún er skemmtilegust,“ segir Ásdís Gyða.
Fréttablaðið/eyþór ÁrnaSon
Bragi Halldórsson
235
„Þekki þið svona orðatening?“ spurði Lísaloppa. „Nei,“ sagði
Konráð. „En hann virkar spennandi.“ Konráði fannst allar
nýjar þrautir sem hann hafði ekki séð áður vera spennandi.
„En þið, Kata og Róbert,“ spurði Lísaloppa. „Viljið þið ekki
líka reyna að leysa þennan orðatening?“ Kata horfði
áhugalaus út í bláinn. „Það er varla þess virði, Róbert þykist
vita svarið fyrirfram,“ sagði hún fýld. Róbert ætlaði að fara
að segja eitthvað, en hætti við. Það var ómögulegt að þau
Kata væru alltaf að rífast um gáturnar. „Jæja, við Konráð
leysum þá bara orðateninginn,“ sagði Lísaloppa.
„En hvernig þraut er orðateningur,“ sagði Konráð. „Við
þurfum að raðað þessum stöfum þannig í reitina,“ sagði
Lísaloppa. „Að fram komi orð í allar línur hvort sem lesið er
lóðrétt eða lágrétt. Fyrsta orðið er nafn einnar af dætrum
Ægis, næsta orð þýðir illt umtal, svo karlmannsnafn og loks
nafn dýrs.
á
a
r
s
á
a
r
s
a
i
b
n
a
f
i
n
NiNja kaffivél
29.995 KRstK
Eins og hafa kaffihús hEima!
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r60 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
9
-3
C
A
C
1
C
2
9
-3
B
7
0
1
C
2
9
-3
A
3
4
1
C
2
9
-3
8
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K