Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 112
Stjórnmál og
hagSmunaaðilar
eiga það til að rífa lýð-
ræðið í Sundur og það er
ekki gott.
LeikList
Andaðu
HHHHH
eftir Duncan Macmillan
Iðnó
Leikfélagið Fljúgandi fiskar
Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjáns-
son og Hera Hilmarsdóttir
Leikstjóri: Þórey Sigþórsdóttir
Þýðing: Hera Hilmarsdóttir
Hreyfingar: Alicja Ziolko
Lýsing: Kjartan Darri Kristjánsson
Leikfélagið Fljúgandi fiskar frum-
sýndi tiltölulega nýtt breskt leik-
rit í Iðnó síðastliðinn sunnudag. Í
Andaðu leitast breska leikskáldið
Duncan Macmillan við að skoða
samband ungra einstaklinga og
leggur alla veröldina undir á sama
tíma.
Hugmyndin um barneignir er
fyrst nefnd í IKEA, ekki endilega
mest viðeigandi staðsetningin,
viðbrögðin láta ekki á sér standa.
Konan og maðurinn bera engin
nöfn en eru ósköp venjulegt ungt
fólk að finna sinn stað í veröldinni.
Hún er doktorsnemi og hann er
fremur misheppnaður tónlistar-
maður. Skötuhjúin komast fljótlega
að því að lífið lætur illa að stjórn.
Stundum er hreinlega ómögulegt
að finna hlutunum réttan tíma og
farveg. En geta þau borið ábyrgð á
því að fæða barn inn í þennan heim
sem er að umhverfishruni kominn?
Andaðu er maraþonverk fyrir
leikara en Þorvaldur Davíð Krist-
jánsson og Hera Hilmarsdóttir
standa ein á tómu sviðinu í nær
tvo tíma. Orðaskiptin eru snörp
og tilfinningarússíbaninn spannar
nánast allan tilfinningaskalann. En
þegar allt kemur til alls er verkið
yfirskrifað, þ.e. það er bæði of langt
og skortir málefnalegan fókus, sér-
staklega síðustu þrjátíu mínút-
urnar. Hera þýðir texta Macmillans
nokkuð vel en herslumuninn vantar
til að finna rétta tóninn. Einnig er
breytingin á titlinum afleit, en upp-
haflega er verkið kallað Lungu, og
staðfæringin óþarfi.
Aftur á móti er leikur þeirra
beggja virkilega góður. Þorvaldur
er trúverðugur sem örlítið mis-
heppnaði ungi maðurinn sem gerir
sitt besta til að styðja kærustuna
sína. Náttúrulegar hreyfingar hans
og einlægt augnaráð gefa þessum
ósköp venjulega manni dýpt. Hera
er að sama skapi góð og vonandi
eigum við eftir að sjá hana meira
á íslensku leiksviði. Stundum fór
móðursýkin aðeins yfir strikið en
leikur Heru er skínandi þegar heift-
arleg sorg skellur á parinu. Örvænt-
ingu og þögn þeirra beggja er virki-
lega vel komið til skila, samleikur
þeirra er líka eftirtektarverður.
Umgjörðin er nánast engin sem
gerir vinnu leikaranna ennþá mark-
verðari. Áhorfendur sitja á stólum
sem stillt hefur verið upp í hring
á gólfinu og umkringja leiksviðið.
Þessi lausn er bæði skynsamleg og
áhugaverð en þess væri óskandi að
leikstjórn Þóreyjar Sigþórsdóttur
hefði verið aðeins lágstemmdari.
Þó að sviðshreyfingarnar eftir Alic-
jiu Ziolko séu stundum ágætar þá
er þeim algjörlega ofaukið í sýning-
unni og verða stundum hreinlega
fyrir leikurunum. Kjartan Darri
Kristjánsson sér um lýsinguna en
hún er djörf að því leytinu til að
engar ljósabreytingar eru gerðar
á allri sýningunni heldur er unga
parið undir smásjá allan tímann.
Sviðsetning Fljúgandi fiska er
virðingarvert framtak og fleiri leik-
hópar mættu taka þau sér til fyrir-
myndar. Andaðu er fínasta tæki-
færi fyrir áhorfendur til að sjá unga
og spennandi leikara takast á við
krefjandi hlutverk með takmörkuðu
prjáli, bara fínum leik.
Sigríður Jónsdóttir
NiðurstAðA: Slagkraftinn vantar í
annars ágætri sýningu.
Eitt barn, eitt par, einn heimur
Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Hera
Hilmarsdóttir í hlutverkum sínum í
Andaðu sem er sýnt í Iðnó um þessar
mundir. MynD/KrIStín BogADóttIr
Franska kvikmyndahá-tíðin stendur nú sem hæst og fram til þess 10. febrúar hér í Reykja-vík. Það eru Franska sendiráðið og Alliance
française í Reykjavík, í samstarfi
við Háskólabíó, Institut français og
kanadíska sendiráðið, sem standa
að baki hátíðinni en þar gefst fólki
kostur á að sjá fjölda áhugaverðra
mynda frá frönskum málsvæðum.
Alls eru sýndar ellefu myndir á
hátíðinni af ólíkum toga þannig að
allir ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Á meðal aðalmynda í ár er
kanadíska myndin My Internship
in Canada (Guibord s’en va-t-en
guerre) en einn af leikurunum,
Irdens Exantus, er staddur hér á
landi að kynna myndina. Irdens
Exantus hefur hlotið mikið lof fyrir
leik sinn í myndinni sem hann
segir vera pólitíska háðsádeilu sem
sé óneitanlega eilítið óvenjulegt á
okkar tímum.
„Ég leik ungan hugsjónamann
frá Haítí sem kemur til Kanada til
þess að starfa sem lærlingur hjá
óháðum kanadískum þingmanni.
En svo kemur upp sú staða að þessi
óháði þingmaður stendur allt í einu
frammi fyrir því að það er hans
atkvæði sem ræður því hvort Kan-
ada fer í stríð í Afganistan eða ekki.
Lærlingurinn sem kom til hans til
þess að læra meira um stjórnmál í
þróuðu lýðræðisríki er skyndilega
kominn inn í hringiðu svona stórra
atburða. En svo eru líka alltaf hags-
munaaðilar í öllum málum þannig
að það er sitthvað sem blandast inn
í þetta.“
Myndin er pólitísk háðsádeila,
sem gerist í hinu frönskumælandi
fylki Québec, en það form verður
að teljast fremur óvenjulegt í kvik-
myndum dagsins í dag. Irdens Exan-
tus segir að það eigi sér eflaust eðli-
lega skýringu. „Þorri fólks í Kanada
að minnsta kosti lítur ekki á stjórn-
mál sem eitthvað fyndið. Það er
ákveðinn ótti við að fjalla af léttúð
um það sem er alvarlegt og nálgunin
í þessari mynd er óneitanlega frekar
frumleg.“
Aðspurður hvort myndin snúist
um það landslag stjórnmálanna í
Kanada þá segir Irdens Exantus að
það sé í raun ekki aðalviðfangsefnið.
„Fyrst og fremst snýst þetta um það
að velja rétt. Að sjá til þess að lýð-
ræðið hafi eðlilegan framgang. Að
setja sig inn í sjónarmið allra sem
láta sig málið varða og þar hafa allir
eitthvað til síns máls en það er erfitt
að vega og meta hvaða ákvörðun er
rétt þegar hagsmunaðilar úr ólíkum
áttum eru allir að berjast fyrir sínu
án þess að það fari fram einhver
almennileg og eðlileg umræða.
Stjórnmál og hagsmunaaðilar eiga
það til að rífa lýðræðið í sundur og
það er ekki gott. Það er allt bara rétt
eða rangt og ekkert þar á milli.“
Irdens Exantus segir að hann
hafi alls ekki verið pólitískur áður
en hann tók að sér hlutverkið en
það hafi þó breyst. „Ég spáði lítið í
stjórnmál en þegar ég tók að mér
hlutverkið þá fannst mér að ég
þyrfti að setja mig inn í þetta og las
mér því til um stjórnmál. Það er líka
hluti af því að skoða þær áskoranir
sem við stöndum frammi fyrir sem
þjóð.
En ég er líka stoltur af því að vera
Kanadamaður, sérstaklega núna
þegar við stöndum frammi fyrir því
sem er að gerast í Bandaríkjunum.
Þannig að í samanburðinum við
Bandaríkin í dag þá finnst mér líka
satt best að segja að við höfum sitt-
hvað til þess að vera stolt af hjá
okkur og vonandi getum við verið
öðrum góð fyrirmynd.“
Fyrst og fremst snýst þetta um að velja rétt
irdens exantus er ungur kvikmyndaleikari frá kanada sem er hingað kominn til þess að taka þátt í
frönsku kvikmyndahátíðinni með pólitíska háðsádeilu um hversu erfitt það getur reynst að velja rétt.
Irdens Exantus segist vera stoltur af því að vera Kanadamaður, ekki síst í ljósi þess sem er að gerast í stjórnmálunum í Bandaríkjunum. FréttABLAðIð/EyÞór
Atriði úr kvikmyndinni My Internship in Canada sem er sýnd á Frönsku kvikmyndahátíðinni um þessar mundir.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
4 . f e b r ú A r 2 0 1 7 L A u G A r D A G u r68 M e N N i N G ∙ f r É t t A b L A ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
8
-F
C
7
C
1
C
2
8
-F
B
4
0
1
C
2
8
-F
A
0
4
1
C
2
8
-F
8
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K