Fréttablaðið - 25.02.2017, Síða 2
Skiptust á skipsbjöllum
Guðmundur Hallvarðsson, formaður Hollvinasamtaka Óðins, tók í gær á móti skipsbjöllu úr breska togaranum Arctic Corsair úr höndum Victors
Whilden, fyrrverandi sjómanns frá Hull. Á móti fékk Whilden skipsbjölluna úr varðskipinu Óðni sem í þorskastríðinu klippti trollið aftan úr Arc-
tic Corsair. Á sjóminjasafni í Hull er unnið að sýningu sem varpa á ljósi á sameiginlega sögu þjóðanna tveggja. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Veður
Allhvöss eða hvöss suðvestan- og
vestanátt og él, en dregur víða úr vindi
seinnipartinn og léttir til norðan- og
austanlands. Hiti í kringum frostmark.
sjá síðu 42
Dublin
Páskaferð | 13. apríl | 4 nætur
Frábært verð frá: 69.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í herbergi á O‘Callaghan Mont Clare
með morgunmat.
Verð án Vildarpunkta: 79.900 kr.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
LögregLumáL Lögreglurannsókn
á mögulegu mansali innan Félags
heyrnarlausra olli félaginu veruleg-
um fjárhagsskaða. Daði Hreinsson,
framkvæmdastjóri félagsins, segir í
grein í blaði félagsins að helmingi
færri happdrættismiðar hafi verið
seldir síðasta haust en þurfi til að
félagið geti veitt góða þjónustu.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst er rannsókn málsins ekki lokið.
Í maí greindi Fréttablaðið frá því
að lögreglan hefði til rannsóknar
vinnumansalsmál innan Félags
heyrnarlausra. Rússnesk kona, sem
komið hefði hingað til starfa til
að selja happdrættismiða, dveldi í
Kvennaathvarfinu á meðan málið
væri til rannsóknar.
Heimildir Fréttablaðsins hermdu
að konan hefði þurft að borga 1.000
dollara við komuna til landsins án
þess að fá atvinnuleyfi. Á tveggja
mánaða tímabili hefði hún fengið
um 20 þúsund krónur í laun og var
rukkuð um skutl á vegum vinnuveit-
anda síns í þau hverfi þar sem henni
var gert að vinna, allt að 3.000 krón-
ur í hvert skipti. Hún hefði komið
hingað tvisvar með sama hætti.
Rannsókn lögreglu beindist meðal
annars að því hvort fleiri þolendur
væru í málinu.
Markaðs- og fjáröflunarstjóri
félagsins var tengiliður konunnar
við félagið og hýsti hana á meðan
á sölunni stóð. Manninum var sagt
upp eftir að málið komst í hámæli.
Þá kom í ljós að maðurinn hefði
farið fram hjá reglum félagsins um
að sölumenn fengju 25 prósent
söluþóknun á hvern seldan miða,
en vegna þess að konan fékk gistingu
hjá manninum borgaði hann henni
15 prósent söluþóknun.
Í pistli framkvæmdastjórans í
Döffblaðinu, sem kom út í síðustu
viku, segir að vegna málsins hafi síð-
asta ár verið afar erfitt fyrir starfsfólk
Félags heyrnarlausra og stjórn þess.
„Eins og flest ykkar vitið fékk Félag
heyrnarlausra á sig síðasta vor órétt-
mæta ásökun og mannorðshnekki
um mansal, og það í fréttum á aðal-
fundardegi Félags heyrnarlausra.“
Félagið ákvað að auglýsa einungis
eftir íslenskum sölumönnum fyrir
næstu happdrættissölu, sem fram
fór síðasta haust.
„Niðurstaðan var algjört hrun
á happdrættissölunni sem búist
var við enda flestir heyrnarlausra í
vinnu annarsstaðar og lítill áhugi
döff Íslendinga að selja happdrætt-
ismiða.“
Félagið hefur nú brugðið á það
ráð að fá til sín fimm sölumenn frá
Tékklandi.
„Er því ljóst að við förum aftur í
sama far og áður sem bar auðvitað
bestan árangur sölunnar að fá til
aðstoðar við okkur erlenda duglega
sölumenn sem selja hér alla daga,
hvernig sem viðrar,“ segir í pistli
framkvæmdastjórans.
snaeros@frettabladid.is
Mansalsmálið lamaði
fjárhag heyrnarlausra
Félag heyrnarlausra réð fimm Tékka til að rétta við happdrættis miðasölu sem
hrundi er lögregla hóf rannsókn á vinnumansalsmáli tengdu sölunni. Fram-
kvæmdastjóri félagsins segir ásakanirnar óréttmætar en rannsókninni er ólokið.
stjórnsýsLa Stjórnvöld tryggja Per-
sónuvernd ekki nægjanlegt fé til að
rækja skyldur sínar. Þetta er mat
ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, sem
telur íslenska ríkið því brjóta gegn
ákvæðum Evróputilskipunar. ESA
gefur íslenskum stjórnvöldum tvo
mánuði til að bæta úr.
ESA segir Persónuvernd hafa skort
fé í áraraðir. Þáverandi innanríkis-
ráðherra hafi ýjað að þessu 2013 er
hann sagði stofnunina ekki hafa ráð
á frumkvæðisrannsóknum.
Fréttablaðið leitaði viðbragða frá
innanríkisráðuneytinu við bréfi ESA
en fékk ekki svör. – jhh
Persónuvernd er
sögð í fjársvelti
Félag heyrnarlausra seldi 6.000 happdrættismiða eftir að málið komst upp en Daði
segir þá þurfa að vera 11 til 12 þúsund talsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bandaríkin Tveir nánustu sam-
starfsmenn Donalds Trump, þeir
Steve Bannon og Reince Priebus,
segjast hafa óbilandi trú á leiðtoga
sínum og leggja ómælda vinnu í að
hrinda stefnu hans í framkvæmd.
Þeir hafa hingað til verið taldir
andstæðir pólar í liði Trumps. Prie-
bus er kerfismaður úr innsta hring
Repú blikanaflokksins en Bannon
hefur verið utangarðsmaður í
flokknum, kemur úr fjölmiðlum og
er harður áróðursmeistari.
Á stjórnmálaráðstefnu Repú-
blikanaflokksins, sem hófst í vik-
unni, segjast þeir hins vegar starfa
mjög náið saman og vart geta án
hvor annars verið.
Hann segist samt reikna með því
að glíma Trumps og stjórnar hans
við fjölmiðlana muni harðna: „Og
það er vegna þess að þetta eru fjöl-
miðlar fyrirtækja og alþjóðavæð-
ingar, sem eru harðlega andsnúnir
efnahagslegri þjóðernisstefnu eins
og þeirri sem Trump aðhyllist,“
sagði hann.
Bannon segir að strax á fyrsta
mánuðinum hafi komið í ljós að
stefna Trumps og stjórnar hans
hverfist um þrjú lykilatriði. Eitt
er fullveldi og öryggi þjóðarinnar,
annað er efnahagsleg þjóðernis-
stefna og hið þriðja er að afbyggja
stjórnkerfið, sundurlima það og
saxa niður. – gb
Trump mun
standa við
öll loforðin
Steve Bannon og Reince Priebus.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Helga Þórisdóttir,
forstjóri Persónu-
verndar
Bar auðvitað bestan
árangur sölunnar að
fá til aðstoðar við okkur
erlenda duglega sölumenn
sem selja hér alla daga,
hvernig sem
viðrar.
Daði Hreinsson,
framkvæmdastjóri
Félags heyrnarlausra
2 5 . f e B r ú a r 2 0 1 7 L a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
5
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
4
F
-B
8
3
8
1
C
4
F
-B
6
F
C
1
C
4
F
-B
5
C
0
1
C
4
F
-B
4
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
4
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K