Fréttablaðið - 25.02.2017, Side 8

Fréttablaðið - 25.02.2017, Side 8
Dómur í Guðmundar- og Geir- finnsmálinu féll í Hæstarétti árið 1980. Sævar Ciesi elski var dæmdur í sautján ára fangelsi, Kristján Viðar Viðarsson var dæmdur í sextán ára fangelsi, Tryggvi Rúnar Leifsson var dæmdur í 13 ára fangelsi, Guðjón Skarphéðinsson í tíu ára fangelsi og Erla Bolladóttir var dæmd í þriggja ára fangelsi. Að afplán un lokinni fór Sæv ar tvisvar fram á endurupp töku en var synjað. Í fyrra skiptið árið 1994 en í seinna skiptið árið 1999. Þá fór Erla Bolladóttir fram á end urupp- töku árið 2000 sem var ekki heldur fallist á. Kaflaskil urðu í málinu árið 2011 þegar Ögmundur Jónasson, þáver- andi innanríkisráðherra, skipaði starfshóp til þess að fjalla um Guð- mundar- og Geirfinnsmálið eftir að birt voru ný gögn í Íslandi í dag á Stöð 2. Þessar nýju upplýsingar voru dagbókarfærslur Tryggva Rúnars og sjónvarpsviðtal við Gísla Guð- jónsson réttarsálfræðing. „Það sem er sláandi við þessar dagbækur, þó þær fari ekki eins langt aftur í tímann og æskilegt væri til að gefa okkur mynd af yfirheyrslum og upphafi rannsóknar málsins, þá er greinilegt að hann talar eins og saklaus maður,“ sagði Gísli um dag- bækurnar. Tók hann jafnframt fram að það væri tímabært að hefja rann- sókn málsins að nýju. Hópurinn hóf síðan störf í lok október 2011 og var áætlað að skila áfangaskýrslu undir lok apríl ári seinna. Það reyndist ekki unnt en þess í stað skilaði hópurinn stöðuskýrslu um vinnu hópsins til ráðherra og óskaði jafnframt eftir fresti til að skila áfangaskýrslu. Starfshópnum var veittur frestur til 1. nóvember 2012 og aftur til 15. febrúar 2013 en tæplega fimm hundruð blaðsíðna skýrslu starfs- hópsins var loks skilað í seinni hluta mars 2013. Niðurstaða sálfræðilegs mats þeirra Gísla Guðjónssonar og Jóns Friðriks Sigurðssonar, sem birt var í skýrslunni, var að hafið væri yfir allan skynsamlegan vafa að fram- Tryggingastofnun Laugavegi 114 | 105 Reykjavík Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is Eftir 1. mars 2017 er eingöngu hægt að sækja um endurhæfingarlífeyri rafrænt í gegnum Mínar síður á tr.is. Viðskiptavinir geta fengið aðstoð við að sækja um í þjónustumiðstöð TR við Laugaveg og hjá umboðum um land allt. Nánari upplýsingar á tr.is. Endurhæfingarlífeyrir Sigur í augsýn eftir baráttu í áratugi Þrisvar sinnum áður hafa sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu krafist endurupptöku án árangurs. Kaflaskil urðu í málinu eftir sjónvarpsþátt á Stöð 2. Réttarsálfræðingur sagði tímabært að rannsaka málin upp á nýtt eftir að hafa séð dagbækur sakbornings. Börn Sævars Ciesielski afhenda innanríkisráðuneytinu gögn í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. FréttaBlaðið/GVa 3. októBer 2011 Stöð 2 segir frá nýjum gögnum í Guðmundar-og Geirfinnsmál- inu. Dagbókum Tryggva Rúnars Leifssonar. Gísli Guðjónsson rétt- arsálfræðingur tjáir sig um málið í fyrsta skipti. 7. októBer 2011 Ögmundur Jónasson, þáverandi innanríkisráðherra, kynnir starfshóp sem kannar Guðmundar- og Geir- finnsmálin að nýju. 14. Janúar 2013 Fréttir af því að starfshópi innan- ríkisráðuneytis um Guðmundar- og Geirfinnsmál berist enn skjöl frá lögreglu sem tengjast rannsókn málanna. 21. marS 2013 Ráðherra fær skýrslu nefndar um Guðmundar- og Geirfinnsmál. Niður- staðan kynnt í kjölfarið. Nefndin mælir með endurupptöku málanna. 30. marS 2013 erla Bolladóttir segist ætla að leggja fram kæru gegn lögreglu- manni sem hún segir hafa nauðgað sér á meðan hún sætti gæsluvarðhaldi í Síðu- múlafangelsinu. 6. apríl 2013 Skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sýnir að 80% þjóðarinnar vilja að Guðmundar- og Geir- finnsmálin verði tekin upp að nýju. 10. maí 2013 Ríkissaksóknari hættir rannsókn á kæru Erlu vegna nauðgunar. Hún sættir sig við niðurstöðuna. 19. Júní 2014 Erla Bolladóttir fer formlega fram á endurupptöku. 1. októBer 2014 Sigríður Friðjónsdóttir ríkissak- sóknari lýsir sig vanhæfa til að svara erindi endurupptökunefndar um endurupptöku. Davíð Þór Björg- vinsson settur ríkissaksóknari. 1. Júní 2016 Settur ríkissaksóknari skilar endur- upptökunefnd umsögn sinni. Segir rök fyrir því að taka upp málin að nýju. 14. Júní 2016 Tveir menn eru handteknir í tengsl- um við morðið á Guðmundi Einarssyni sem hvarf árið 1974. Endurupptöku- nefnd þótti tilefni til að mennirnir yrðu yfirheyrðir vegna nýs vitnisburðar í málinu. 10. áGúSt 2016 Hörður Jóhannes- son þáverandi aðstoðaryfir- lögregluþjónn segist í samtali við RÚV furða sig á því að sakborningar í Guðmundar- og Geir- finnsmálum, sem hafi skáldað sögur í gæsluvarðhaldi vikum saman, séu teknir trúanlegir. 24. FeBrúar 2017 Endurupptökunefnd úrskurðar um endurupptökukröfu. Atburðarás síðustu ára í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is burður og játningar Erlu Bolla- dóttur, Sævars Ciesielski, Kristjáns Viðars Viðarssonar, Tryggva Rúnars Leifssonar, Alberts Klahn Skafta- sonar og Guðjóns Skarphéðins- sonar í Guðmundar- og Geirfinns- málinu voru óáreiðanlegar. Eftir að niðurstaða nefndar- innar var gerð opinber var krafist endurupptöku málsins. Ragnar Aðalsteinsson, sem krafðist endur- upptöku fyrir Erlu Bolladóttur og Guðjón Skarphéðinsson, sagði ekk- ert mál af þessari stærðargráðu hafa farið fyrir endurupptökunefnd til þessa. „Við erum að tala um gríðar- legt skjalamagn, þúsundir og aftur þúsundir blaðsíðna,“ sagði Ragnar. Málið tafðist þegar ríkissaksókn- ari, sem bar að veita endurupptöku- nefnd umsögn um kröfuna, lýsti sig vanhæfan vegna tengsla við einn af rannsakendum málsins. Davíð Þór Björgvinsson var svo settur ríkis- saksóknari í málinu í október 2014 og skilaði umsögn í júní 2015. Í júní 2016 dró svo til tíðinda þegar greint var frá því að tveir menn hefðu verið handteknir í tengslum við morðið á Guðmundi Einarssyni. Endurupptökunefnd þótti tilefni til að mennirnir yrðu yfirheyrður vegna nýs vitnisburð- ar i málinu. Var gerð húsleit hjá sambýliskonu annars mannsins í tengslum við handtökurnar. Hand- tökurnar voru byggðar á nýjum vitnisburði sem embætti sérstaks saksóknara hafði undir höndum. Við erum að tala um gríðarlegt skjala- magn, þúsundir og aftur þúsundir blaðsíðna. Ragnar Aðalsteinsson 17 ára fangelsi hlaut Sævar Ciesielski í Hæstarétti fyrir morðin á Guðmundi Einars- syni og Geirfinni Einarssyni. Hvarf Guðmundar Einarssonar var tilkynnt þann 29. janúar 1974 til lögreglunnar en síðast sást til hans í Hafnarfirði aðfaranótt 27. janúar 1974 eftir dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Í skýrslu starfshóps innanríkisráðuneytisins kemur fram að leit stóð til 3. febrúar 1974 en skilaði engum árangri. Gögn lögreglunnar í Keflavík benda til þess að það hafi verið eiginkona Geirfinns sem sá hann síðast um klukkan hálfellefu þriðjudaginn 19. nóvember 1974, áður en hann fór að heiman. Talið er að tæpum tveimur sólarhring- um síðar hafi vinnuveitandi hans tilkynnt hvarf hans til lögreglu. Leit hófst að Geirfinni en um leið hófst viðamikil sakamálarannsókn að því er virðist vegna upplýsinga lögreglu um dularfullt stefnu- mót sem Geirfinnur átti að eiga í Hafnarbúðinni. Hvorki hafa jarðneskar leifar Guðmundar né Geirfinns fundist. Dregið var úr rannsókn lög- reglunnar í Keflavík sumarið 1975. Starfshópurinn segir að í gögnum lögreglunnar í Keflavík sé ekkert sem gefi beinlínis til kynna að Geirfinnur Einarsson hafi tengst nokkru saknæmu né að hvarf hans hafi borið að með saknæmum hætti. Í desember 1975 hóf rann- sóknarlögreglan í Reykjavík á ný rannsókn á hvarfi Guðmundar Einarssonar. Samkvæmt máls- gögnum hafði lögreglunni borist til eyrna að Sævar Ciesielski væri viðriðinn hvarf Guðmundar. Þá voru Erla Bolladóttir og Sævar í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að svokölluðu póstsvikamáli. Í framhaldi af framburðum sem Erla og Sævar gáfu voru Kristján Viðar Viðarsson, Tryggvi Rúnar Leifsson og Albert Klahn Skafta- son úrskurðaðir í gæsluvarðhald dagana fyrir jól 1975. Í lok árs 1977 var Albert sak- felldur fyrir að tálma rannsókn á morðinu á Guðmundi, Erla var fundin sek um rangar sakargiftir sem leiddi til handtöku fjögurra saklausra einstaklinga og að tálma rannsókn lögreglu. Guðjón var fundinn sekur um að hafa orðið Geirfinni að bana ásamt þeim Kristjáni Viðari og Sævari, Tryggvi Rúnar var dæmdur fyrir að hafa svipt Guðmund lífi ásamt þeim Kristjáni Viðari og Sævari. Þeir Kristján Viðar og Sævar voru sak- felldir fyrir að hafa banað bæði Guðmundi og Geirfinni. Margra ára meðferð málsins í réttarkerfinu 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 2 5 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 4 F -F 3 7 8 1 C 4 F -F 2 3 C 1 C 4 F -F 1 0 0 1 C 4 F -E F C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.