Fréttablaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 16
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r16 s p o r t ∙ f r É t t a b L a ð i ð
Laugardagur
12.25 Leeds - Sheff Wed Sport
14.25 Bayern - Hamburg Sport 2
14.50 Chelsea - Swansea Sport
14.55 Aston Villa - Derby Sport 4
15.05 Víkingur R - FH Sport 3
17.20 Watford - West Ham Sport
18.00 Honda Classic Golfstöðin
Sunnudagur
13.20 Tottenham - Stoke Sport
15.10 Atletico - Barcelona Sport 2
16.00 Upphitun: Man. - S’ton Sport
16.25 Man. Utd - S’ton Sport
18.00 Honda Classic Golfstöðin
19.40 Villarreal - Real M. Sport
20.30 Lakers - Spurs Sport 2
Coca-Cola bikar kvenna
Úrslitaleikur
L 13.30 Stjarnan - Fram Laugard.h.
Coco-Cola bikar karla
Úrslitaleikur
L 16.00 Valur - Afturel. Laugard.h.
Um helgina
sport
Tilbúnar í slaginn á móti Þjóðverjunum í dag
Stelpurnar í Ragnarökum keppa á Seltjarnarnesinu Hjólaskautaat er ein nýjasta íþróttin í íslensku íþrótta-
flórunni. Íslenska liðið Ragnarök fær góða heimsókn frá Þýskalandi um helgina þegar liðið mætir Karlsruhe
RocKArollers. Leikurinn fer fram í Hertz höllinni á Seltjarnarnesi og hefst klukkan 17.00 í dag. Á Vísi er viðtal
við Alex Steinþórsdóttur sem segir frá liðinu sínu, liðsfélögunum og íþróttinni . FRéTTABLAðið/STeFán
njarðvík - KR 80-81
Stigahæstir: Logi Gunnarsson 20, Myron
Dempsey 18, Björn Kristjánsson 17 - Philip
Alawoya 28, Jón Arnór Stefánsson 15, Pavel
Ermolinskij 14/11 fráköst/11 stoðs.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Valur - FH 20-19
Markahæstir: Anton Rúnarsson 5/4, Sveinn
Aron Sveinsson 4, Orri Freyr Gíslason 3 -
Óðinn Þór Ríkharðsson 6, Ágúst Birgisson 5,
Ásbjörn Friðriksson 3/2.
Haukar - Afturelding 28-29
Markahæstir: Adam Haukur Baumruk 8,
Daníel Þór Ingason 5 - Elvar Ásgeirsson 7,
Ernir Hrafn Arnarson 5, Gunnar Malmquist
Þórsson 5/3, Mikk Pinnonen 5.
Coca Cola-bikar karla
Undanúrslitaviðureignir
fótboLti Það lifir enginn á fornri
frægð er oft sagt. Það fékk Ítalinn
Claudio Ranieri að reyna í lok vik-
unnar er hann var rekinn frá Leices-
ter City aðeins 298 dögum eftir að
hann gerði liðið að Englandsmeist-
urum. Það þykir eitt mesta afrek í
knattspyrnusögunni.
Það reiknuðu fáir með því að
Öskubuskuævintýri Leicester-
manna myndi halda áfram á þess-
ari leiktíð en að sama skapi var
ekki reiknað með því að liðið yrði í
harðri fallbaráttu þegar vel er liðið
á febrúar-mánuð. Leicester er í dag
aðeins einu stigi frá fallsæti.
Magnaðir í Meistaradeildinni
Þrátt fyrir ömurlegt gengi liðsins í
úrvalsdeildinni hefur liðinu gengið
ótrúlega vel í Meistaradeildinni.
Það er stórfurðulegt. Liðið flaug í
gegnum riðlakeppnina, vann sinn
riðil og hélt þess utan hreinu í fimm
fyrstu leikjum sínum í riðlakeppn-
inni. Liðið er komið í 16-liða úrslit
og á fínan möguleika á að fara áfram
eftir að hafa tapað 2-1 á útivelli gegn
Sevilla.
Í gær bárust þær fréttir að eldri
leikmenn liðsins hefðu fundað með
eiganda liðsins. Lýst yfir vantrausti á
stjórann sem var svo rekinn nokkr-
um klukkutímum síðar. Það þótti
mörgum lélegt. Að liðið væri ekki til
í að standa með stjóranum sínum í
gegnum ólgusjóinn. Þess í stað var
skipstjóranum kastað í hafið.
Gary Lineker, fyrrverandi leik-
maður Leicester og stjórnandi
Match of the day á BBC, var æva-
reiður út í sitt gamla félag og lét
menn þar á bæ heyra það.
„Þetta er mjög sorglegt. Þetta er
óútskýranlegt og óafsakanlegt. Það
finnst líka mörgum sem elska fót-
bolta. Ég felldi tár í gær fyrir Clau-
dio, félagið og fótboltann,“ sagði
Lineker dramatískur.
„Svona er nútímafótbolti. Það
sem gerðist á síðustu leiktíð var
einstakt. Skortur á þakklæti eig-
endanna er ótrúlegur en við munum
aldrei gleyma síðasta tímabili.“
Mourinho sýndi stuðning
Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, er
nú ekki mjög virkur á samfélags-
miðlum en hann skellti sér á Instag-
ram. Henti þar inn mynd af sér og
Ranieri. Sagði þar að svona væri
nútímafótbolti og Ranieri mætti
ekki hætta að brosa. Það væri ekki
hægt að þurrka út hans einstaka
árangur. Mourinho þekkir stöðuna
en hann var rekinn frá Chelsea á
miðju tímabili eftir að hafa gert
liðið að meisturum árið 2014.
Það sem vinnur aftur á móti ekki
með Ranieri, og styður málstað eig-
enda Leicester, er sú staðreynd að
titilvörn Leicester er sú lélegasta
í sögunni. Á sama tíma í fyrra var
liðið með 53 stig á toppnum en í dag
er liðið með aðeins 21 stig. Liðið var
þá búið að tapa þremur leikjum en
töpin eru fjórtán í dag.
Staða liðsins er viðkvæm og
hættuleg. Eðlilega vill ekkert félag
falla en þrátt fyrir fallhlífagreiðslur
er tekjutapið mikið í næstu deild
fyrir neðan. Það er þess utan ekkert
grín að komast aftur upp.
Í nútímafótbolta er ekkert pláss
fyrir tilfinningar og árangur síðasta
tímabils gefur ekkert nokkrum
mánuðum síðar. Ekki einu sinni þó
svo þú sért stjórnandi mestu Ösku-
buskusögu knattspyrnusögunnar.
Hollusta við þjálfarann virðist einn-
ig vera á undanhaldi ef mið er tekið
af þessari atburðarrás.
henry@frettabladid.is
Kónginum hent á dyr
Leicester City rak á fimmtudag stjóra félagsins, Claudio Ranieri. Ákvörðun
eiganda Leicester kom mörgum á óvart og gerði fleiri hreinlega bálreiða.
Claudio Ranieri er farinn í leit að nýju
ævintýri. noRDiCpHoToS/geTTy
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Skíðagleraugu
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af skíðagleraugum á
góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!
Cébé hlaupagleraugu
kr. 21.900,-
Red Bull Lesmo
með vandaðri Fire Race linsu
kr. 14.950,-
Red Bull Parabolica
með hágæða Zeiss linsu
kr. 43.900,- Auka þokulinsa fylgir með.
Red Bull Boavista
með hágæða Zeiss linsu
kr. 28.800,-
Red Bull Rascasse
með hágæða Zeiss linsu
kr. 28.800,-
2
5
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
4
F
-B
3
4
8
1
C
4
F
-B
2
0
C
1
C
4
F
-B
0
D
0
1
C
4
F
-A
F
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
4
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K