Fréttablaðið - 08.03.2017, Page 8
Ef þú ert að leita að rúmgóðum bíl er Golf Variant Metan svarið. Hann er umhverfisvænn, fær frítt í stæði, gengur bæði fyrir metani
og bensíni og kemur þér allt að 1.300 km á áfyllingunni. Skiptu yfir í Golf Variant Metan og láttu fara vel um þig og þína.
www.volkswagen.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Golf Variant Trendline 1.4 TGI Metan beinskiptur:
3.190.000 kr.
Sjálfskiptur: 3.390.000 kr.
Spar á krónurnar
– örlátur á kílómetrana.
5 ára ábyrgð
Kim Jong-Nam, hálf-
bróðir einræðis
herrans í Norður-
Kóreu, deyr á
flugvellinum í Kúala
Lúmpúr þar sem hann
ferðaðist með vegabréf
skráð á nafnið Kim Chol. Lögreglan í Malasíu handtekur víetnamska konu, Doan Thi Hu-
ong (til vinstri), mann að nafni
Farid Bin Jalaluddin (í
miðju), indónesíska
kærustu hans, Siti
Aisha (til hægri við
hann), og norðurkór-
eska efnafræðinginn
Ri Jong Cho (hér til
hægri).
Leitað er að sjö manns til við-
bótar í tengslum við rannsókn á
málinu. Allir eru þeir norður-kór-
eskir, þar á meðal Hyon Kwang
Song, starfsmaður
sendiráðsins.
Kang Chol, sendi-
herra Norður-Kór-
eu í Malasíu, segir
að Norður-Kóreu-
stjórn geti ekki
treyst niðurstöðum
krufningar og sakar Malasíustjórn
um að eiga í leynilegu samstarfi
við Suður-Kóreu.
✿ Atburðarásin í kjölfar morðsins á Kim Jong-Nam
Najib Razak, for-
sætisráðherra
Malasíu, svarar
með því að
segja Chol sýna
ókurteisi.
Rannsókn leiðir
í ljós að tauga-
eitrið VX varð
Kim að bana.
Leyniþjónusta Suður-Kóreu
slær því fram að Kim Jong-Un,
einræðisherra Norður-Kóreu,
hafi látið myrða hálfbróður
sinn.
Aisyah og Huong
eru formlega ákærðar fyrir
morðið á Kim. Þær eiga yfir
höfði sér dauðadóm.
Malasía hættir að leyfa
Norður-Kóreubúum að koma til
landsins án vegabréfsáritunar.
Um þúsund Norður-Kóreubúar
starfa í Malasíu.
Ri Jong Chol sleppt úr haldi
og sendur til Norður-Kóreu.
Lögregla hefur ekki nægar
sannanir til að ákæra hann.
Chol sendiherra
rekinn frá
Malasíu.
Norður-Kórea
bregst við
með því að
reka sendiherra
Malasíu, Moha-
mad Nizan Mohamad
(til vinstri), úr landi.
Norður-Kórea bannar
malasískum ríkisborgurum að
yfirgefa landið, þar á meðal
þremur stjórnarerindrekum og
skyldfólki þeirra.
Najib, forsætisráðherra Malasíu,
segir að þarna sé Norður-Kórea
í raun að halda malasískum
ríkisborgurum í gíslingu, en
grípur til sams konar aðgerða
gegn norðurkóreskum ríkis-
borgurum í Malasíu.
LJÓSMYNDIR: AP OG LÖGREGLAN Í MALASÍU
NORÐUR-KÓREA Bandaríkin hafa sent
til Suður-Kóreu búnað til að skjóta
upp flugskeytum. Einnig hafa þau
sent þangað búnað til að koma þar
upp öflugum flugskeytavörnum.
Bandarísk og suðurkóresk stjórn-
völd skýrðu frá þessu í gær, daginn
eftir að Norður-Kórea skaut fjórum
flugskeytum á loft, sem öll höfnuðu
í hafinu skammt frá Japan.
Norður-Kóreustjórn er að vonum
harla ósátt við þetta en bæði Kína
og Rússland hafa einnig mótmælt
þessum hernaðarframkvæmdum
Bandaríkjanna í Suður-Kóreu.
Flugskeytatilraunir Norður-Kóreu
hafa sömuleiðis fengið hörð við-
brögð og hefur Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna verið kallað saman, að
kröfu Japans og Bandaríkjanna, og er
stefnt á fund í dag.
Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap-
ans, sagði framferði Norður-Kóreu
vera afar hættulegt og Boris Johnson,
utanríkisráðherra Bretlands, skorar
á Norður-Kóreu að hætta að ögra
umheiminum með þessum hætti.
Hann sagði flugskeytatilraunirnar
vera brot á fjölmörgum ályktunum
Öryggisráðsins.
Öryggisráðið hefur undanfarin ár
sent frá sér þó nokkrar ályktanir þar
sem hernaðarbrölt Norður-Kóreu,
einkum tilraunir með flugskeyti og
kjarnorkusprengjur, er fordæmt og
refsiaðgerðir samþykktar.
Það hafði meðal annars þau áhrif
að í síðasta mánuði skýrði Kína-
stjórn frá því að öllum innflutningi
á kolum frá Norður-Kóreu verði
hætt. Þetta segja Kínverjar gert til
að uppfylla refsiákvæði í ályktun
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
frá því í haust.
Áhrifin á efnahag Norður-Kóreu
verða væntanlega mikil, því allt
upp undir 40 prósent af útflutnings-
tekjum landsins hafa komið af kola-
sölu, og megnið af því hefur farið til
Kína.
Þessi ákvörðun Kínastjórnar
gæti því hæglega orðið upphafið að
endalokum margra áratuga einræðis-
stjórnar í Norður-Kóreu, sem Kim
Jong-Un fékk í arf frá föður sínum og
afa, þeim Kim Jong-Il og Kim Il-Sung.
Morðið á Kim Jong-Nam, hálf-
bróður núverandi leiðtoga landsins,
í Malasíu í síðasta mánuði hefur
Spenna magnast vegna
tilburða Norður-Kóreu
Bandaríkin senda flugskeytabúnað til Suður-Kóreu. Öryggisráðið kallað saman
til að ræða flugskeytatilraunir Norður-Kóreu. Morðið á hálfbróður Kim Jong-Un
eykur spennuna og Norður-Kórea bannar Malasíumönnum að yfirgefa landið.
Malasískur lögreglumaður lokar innganginum að sendiráði Norður-Kóreu í Kúala
Lúmpúr. Sendiráðsstarfsmenn mega ekki yfirgefa svæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
enn frekar aukið á spennuna milli
Norður-Kóreu og umheimsins.
Nýjustu vendingar í þeim málum
er ákvörðun Norður-Kóreu um að
banna malasískum ríkisborgurum
að yfirgefa landið, sem Malasíustjórn
svaraði svo í sömu mynt með því að
banna norðurkóreskum ríkisborg-
urum að yfirgefa Malasíu.
gudsteinn@frettabladid.is
8 . M A R S 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
7
-1
C
2
C
1
C
6
7
-1
A
F
0
1
C
6
7
-1
9
B
4
1
C
6
7
-1
8
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K