Fréttablaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Það hlýtur að
vera krafa
þjóðar sem
lætur sig
farsæld, líf og
öryggi með-
borgara sinna
varða að
ráðamenn
geri sitt til
þess að bjarga
mannslífum
þegar það er
gerlegt.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og
glæsileik
i
endalaus
t úrval af
hágæða
flísum
Finndu okkur
á facebook
Þegar á reynir hefur þessi þjóð oftar en ekki haft þann háttinn á að standa saman. Blessunarlega, því saman getum við staðið af okkur storma, stórhríð og grábölvað mótlæti sem engin sála getur staðið af sér ein og óstudd. Við erum
fámenn þjóð og návígi okkar við þá sem glíma við
erfiðleika því mikið og efalítið er það ein helsta for-
senda þessarar samkenndar. Þar sem ógæfan heggur
þá heggur hún okkur nærri.
Því miður er það þó þannig að við sem samfélag
gerum greinarmun á ógæfu og ógæfu, veikindum
og veikindum. Á þetta benti Gunnar Hrafn Jónsson,
þingmaður Pírata, í afar athyglisverðri grein hér í
Fréttablaðinu um síðustu helgi. Gunnar Hrafn hefur
frá unglingsaldri glímt við sjúklegt þunglyndi sem er
að sönnu lífshættulegur sjúkdómur en engu að síður
eru viðbrögð samfélagsins allt önnur en ef sjúk-
dómurinn væri af öðrum toga en geðrænum. Árlega
falla tugir einstaklinga fyrir eigin hendi, eða öllu
heldur fyrir þessum erfiðu sjúkdómum, en þrátt fyrir
það virðast þeir sem veikjast af geðsjúkdómum vera
settir aftar á merina en aðrir.
Gunnar Hrafn leggur áherslu á að til þess að bæta
úr þessu þurfi stjórnvöld að grípa strax til aðgerða
og Alþingi að lyfta sér upp yfir flokkspólitík. Það eru
því mikil vonbrigði að sjá Óttar Proppé heilbrigðis-
ráðherra vísa til stjórnarsáttmála, minna á stjórnar-
kreppu og hafna því að málaflokkurinn sé í lama-
sessi. Ástandið er þó þannig að með endurbótum
og raunverulegu forvarnarstarfi gætum við mögu-
lega bjargað tugum mannslífa á viku. Ef þetta væri
spurning um fólk sem hefði týnst á fjöllum þá væri
án efa búið að kalla út björgunarsveitirnar okkar
fyrir löngu. En hversu slæmt þarf ástandið að vera
til þess að heilbrigðisráðherra taki ákvörðun um að
kalla út björgunarsveitirnar fyrir geðsjúka? Hver er
viðbragðstími ráðherra gagnvart þessu neyðarkalli?
Það eitt að tryggja að bráðamóttaka geðdeildar
Landspítalans sé opin allan sólarhringinn, alla daga
ársins en ekki aðeins á skrifstofutíma gæti mögu-
lega bjargað fjölda mannslífa. Mannslífa sem eru
búin að gera nóg af því að bíða og þurfa ekki á því að
halda að bíða eftir aðgerðaáætlunum eins ágætar og
jafnvel nauðsynlegar og þær geta verið. Því auðvitað
þurfa að koma til róttækar endurbætur á þessum
málaflokki innan heilbrigðiskerfisins en á meðan
mannslíf eru í hættu er auðvitað ekki forsvaranlegt
að gera þá kröfu til sjúklinga að þeir haldi sig við
brýnustu neyð á skrifstofutíma.
Óttarr Proppé hefur tækifæri til þess að vera ráð-
herra málaflokksins og fólksins sem þarf á honum
að halda, fremur en ráðherra ríkisstjórnarinnar. En
til þess þarf hann að finna hjá sér hugrekki til þess
að berja í ríkisstjórnarborðið og grípa til aðgerða án
tafar og svara neyðarkalli þeirra sem glíma við geð-
sjúkdóma. Það hlýtur að vera krafa þjóðar sem lætur
sig farsæld, líf og öryggi meðborgara sinna varða að
ráðamenn geri sitt til þess að bjarga mannslífum
þegar það er gerlegt. Þetta er neyðarkall.
Neyðarkall
Rammarimmurnar
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
fyrrverandi iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, tilkynnti á
Facebook á dögunum að hún
hefði fengið vinnu og gengið til
liðs við bandarísku hugveituna
Atlantic Council þar sem hún
mun starfa sem sérfræðingur í
orkumálum. Í frétt á síðu hug-
veitunnar er lýst mikilli ánægju
með ráðninguna og vísað til mik-
ilvægis umhverfis sjónarmiða.
Ragnheiður Elín hafi verið
leiðandi í íslensku samfélagi þar
sem endurnýjanlegir orkugjafar
og sjálfbærni í orkumálum séu
stórir póstar. Líklega hafa for-
svarsmenn Atlantic Council
lítið heyrt af málum tengdum
rammaáætlun á síðasta kjör-
tímabili. Falli Jón Gunnarsson
af þingi í næstu kosningum veit
hann hvar hann gæti sótt um.
Biðlaunin búin
Þótt það sé ánægjuefni fyrir
Ragnheiði Elínu að hafa
fengið vinnu þá er það ekki síður
ánægjulegt fyrir skattgreiðendur
að biðlaunatíminn sé senn á
enda. Alþingismenn sem hætta
eiga enda rétt á biðlaunum í þrjá
mánuði hafi þeir setið á þingi í
eitt kjörtímabil en í sex mánuði
hafi þeir setið í tvö eða fleiri. Það
má því reikna með tíðum til-
kynningum um að hinn og þessi
þingmaðurinn hafi fundið sér
starf þegar líður að maí. Þangað
til njóta fallnir þingmenn frísins.
snaeros@frettabladid.is
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r10 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
Uppræting hins kynskipta vinnumarkaðar er eitt af stóru verkefnunum í baráttunni fyrir jafnri stöðu og jöfnum möguleikum kvenna og karla. Þetta er
ofarlega í huga í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Við þurfum að beina auknum kröftum að því að
vinna gegn einni af stærstu ástæðunum fyrir launamun
kynjanna, sem er mikil kynjaskipting á vinnumarkaði.
Það þekkja flestir að konur eru í miklum meirihluta í
uppeldis- og umönnunarstörfum á meðan karlar eru í
verk- og tæknigreinum.
Við búum í samfélagi þar sem hugmyndir um hlutverk
kynjanna og staðalímyndir eru rótgrónar. Þessi sýn sam-
félagsins og einstaklinganna hefur talsverð áhrif á náms-
og starfsval ungra kvenna og karla.
Þegar við horfum á börnin okkar og barnabörnin vaxa
úr grasi erum við örugglega öll sammála um að þessu
unga fólki séu allir vegir færir. Að allir hafi möguleika
til að gera það sem þeir vilja í lífinu. Það sem hins vegar
gleymist í umræðunni er sú staðreynd að náms- og starfs-
val stýrist meðal annars af kynferði einstaklinga.
Ef þeir sem starfa í ákveðinni starfsstétt eru að miklum
meirihluta af öðru kyninu takmarkar það líkurnar á því
að einstaklingar af hinu kyninu velji sér þann starfs-
vettvang. Þetta þýðir að valmöguleikarnir eru færri og
takmarka frelsi einstaklingsins.
Við verðum að vinna að fjölbreyttum langtímaaðgerð-
um á öllum stigum skólakerfisins og á vinnumarkaðnum
í heild til að breyta þessu. Því vil ég fagna framtakinu
#kvennastarf sem er átak í niðurbroti úreltra hugmynda
um náms- og starfsval kynjanna og til að benda ungu
fólki á möguleikana sem eru fólgnir í fjölbreyttu náms-
og starfsvali.
Það er þó einnig vert að benda á mikilvægi foreldra
í þessum efnum. Rannsóknir sýna að foreldrar hafa
mikil áhrif á náms- og starfsval. Í sumum tilfellum geta
þeir verið aðaláhrifavaldurinn. Það er mikilvægt að
stuðningur sé fyrir hendi þegar börnin okkar vilja fara
óhefðbundnar leiðir og ekki síður að þau séu upplýst um
alla náms- og starfsmöguleika.
Upprætum kynskiptan
vinnumarkað
Við þurfum
að beina
auknum
kröftum að
því að vinna
gegn einni af
stærstu
ástæðunum
fyrir launa-
mun
kynjanna,
sem er mikil
kynjaskipt-
ing á vinnu-
markaði.
Elín Björg
Jónsdóttir
formaður BSRB
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
7
-1
7
3
C
1
C
6
7
-1
6
0
0
1
C
6
7
-1
4
C
4
1
C
6
7
-1
3
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K