Fréttablaðið - 08.03.2017, Qupperneq 20
Útlit er fyrir harðnandi samkeppni og miklar breytingar í íslenskri fataverslun. Munar þar mestu um sam-drátt í sölu, samhliða
aukinni netverslun, og komu H&M
hingað til lands. Hagar loka fjórum
tískuvöruverslunum á þessu ári og
læstu í fyrra dyrum þriggja til við-
bótar. Eigendur Next á Íslandi vilja
fækka fermetrum sínum í Kringl-
unni en stjórnendur verslunarmið-
stöðvarinnar vinna nú að framtíðar-
skipulagi byggingarinnar í samstarfi
við erlenda sérfræðinga. Þá eiga for-
svarsmenn Smáralindar í viðræðum
við önnur erlend vörumerki í fata-
verslun.
„Við erum svo sannarlega með
augun á boltanum og gerum okkur
grein fyrir því að það munu eiga sér
stað miklar breytingar á næstunni,“
segir Guðjón Auðunsson, forstjóri
fasteignafélagsins Reita, eiganda
Kringlunnar.
Vilja pláss við H&M
Af samtölum blaðamanns við sér-
fræðinga á sviði verslunar, sem vildu
ekki láta nafns síns getið, að dæma er
ljóst að koma H&M mun jafnvel hafa
meiri áhrif á innlenda fataverslun en
áður var gert ráð fyrir. Þeir benda á
að sænski fatarisinn ætlar sér að
opna þrjár verslanir; í Smáralind,
Kringlunni og á Hafnartorgi í mið-
borg Reykjavíkur, á næstu tveimur
árum. Fyrirtækið hafi í öllum til-
vikum tryggt sér verslunarrými á
besta stað en að einnig þurfi að horfa
til þess hversu stóra hlutdeild H&M á
nú þegar af markaðinum hér heima
vegna ferða Íslendinga til útlanda.
Samkvæmt upplýsingum Markað-
arins er talsverð ásókn í verslunar-
rými í Kringlunni og Smáralind sem
eru staðsett nálægt H&M. Dæmi eru
um að fyrirtæki sem eru nú þegar í
byggingunum vilji komast nær versl-
ununum. Að þeirra mati sé ákjósan-
legt að vera sem næst versluninni
sem útlit er fyrir að verði með mestu
veltuna.
Fataverslanir hér á landi eru marg-
ar reknar með sérleyfissamningum
um erlend vörumerki og þeim fylgir
viðbótarálagning ofan á innkaups-
verð. Einn viðmælandi Markaðar-
ins segir erlenda heildsala nú þurfa
að lækka álagninguna, og innlendar
fataverslanir að ná betra innkaups-
verði, ætli þær að keppa við verð-
lagningu og vöruflokka H&M. Annar
viðmælandi, með áratugareynslu af
smásöluverslun, orðaði það svo að
stjórnendur Regins fasteignafélags,
sem á Smáralindina og var fyrst
íslenskra fyrirtækja til að semja um
opnun H&M, og síðar Kringlunnar,
hafi hent napalmsprengjum inn í
verslanamiðstöðvarnar tvær.
Til viðbótar við komu H&M
hefur velta íslenskrar fataverslunar
dregist saman. Eins og kom fram í
Fréttablaðinu í byrjun mars dróst
hún saman um tólf prósent í janúar
á milli ára. Fataverslun virðist vera
Fataverslanir glíma við
aukna netverslun og
komu H&M hingað
Miklar breytingar eru í vændum í íslenskri fataverslun. Salan hefur dregist
saman og H&M verður opnað á árinu. Hagar loka fjórum verslunum á þessu ári
og læstu þremur í fyrra. Eigendur Next á Íslandi vilja færri fermetra í Kringlunni.
Forsvarsmenn Smáralindar ræða við eigendur annarra erlendra vörumerkja.
Framkvæmdastjóri Smáralindar segir eigendur fyrirtækisins eiga í viðræðum við erlend vörumerki í fataverslun. Fréttablaðið/anton brink
eini angi verslunar á Íslandi sem
hefur ekki náð vopnum sínum eftir
hrun og það þrátt fyrir kaupmáttar-
aukningu almennings, styrkingu
krónunnar og niðurfellingu tolla
á fatnaði og skóm. Á sama tíma
hefur sprenging orðið í afgreiddum
sendingum hjá Íslandspósti. Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri Sam-
taka verslunar og þjónustu (SVÞ),
sagði í samtali við Fréttablaðið að
menn þar á bæ klóri sér í höfðinu
yfir þessari þróun.
breyta next í kringlunni
Árni Sv. Mathiesen, stjórnarfor-
maður Dagsólar, móðurfélags Next
á Íslandi, staðfestir í samtali við
Markaðinn að fyrirtækið eigi í við-
ræðum við forsvarsmenn Kringl-
unnar um að eina verslun Next hér
á landi minnki úr 1.700 fermetrum
í um þúsund. Ekki hafi verið tekin
ákvörðun um hvort verslunin muni
einnig flytja innan Kringlunnar.
„Auðvitað eru menn alltaf á tánum
og við þurfum sífellt að vera vak-
andi fyrir nýjungum. En við sjáum
til dæmis að unga fólkið sem er að
byrja að versla í dag er með allt aðra
sýn á innkaup heldur en þeir sem
eru eldri og óhræddari við að nota
tölvutæknina. Það er margt sem við
sem kaupmenn þurfum að líta til í
umhverfi okkar,“ segir Árni.
„Niðurstaðan er sú að við munum
horfa til þess að laga til í fermetrum
hjá okkur og fá hentugri sölufer-
metra og betri nýtingu. Við höfum
verið að skoða þau mál út frá
ákveðnu hagræðingarsjónarmiði.
Það er allt opið í því. Við höfum
verið að horfa á það vegna þess að
við viljum breyta húsnæðinu sem
við erum í og fá hlutfallslega fleiri
sölufermetra en við erum með í
dag og það getur kallað á það að við
þurfum að fara í annað pláss þarna í
húsnæðinu. Það er ekki komið það
langt að það sé rétt að vera með yfir-
lýsingar um það.“
Við erum að sækjast
eftir ákveðnum
vörumerkjum og með H&M
tókst okkur það.
Sturla Gunn-
ar Eðvarðsson,
framkvæmdastjóri
Smáralindar
Niðurstaðan er sú
að við munum
horfa til þess að laga til í
fermetrum hjá okkur og fá
hentugri sölufermetra og
betri nýtingu.
Árni Sv. Mathiesen,
stjórnarformaður
NEXT á íslandi
H&M, með ákvörð-
un sinni um inn-
komu inn á íslenska markað-
inn, hefur auðvitað mikil
áhrif.
Guðjón Auðunsson,
forstjóri fasteigna-
félagsins Reitir
Haraldur
Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r6 MarkaðuriNN
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
7
-1
2
4
C
1
C
6
7
-1
1
1
0
1
C
6
7
-0
F
D
4
1
C
6
7
-0
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K