Fréttablaðið - 08.03.2017, Side 25
Mottumars
8. mars 2017
Kynningarblað Kickup | Toyota |
Ólafur segir að það hafi verið
mikið áfall að greinast með sjúk-
dóminn, ekki síst vegna þess að
einn vinnufélagi hans hafði fengið
krabbamein í háls og látist í kjöl-
farið. „Manni bregður mikið við
svona fréttir. Ég fékk að heyra
það í síma frá lækninum mínum
að ég væri með krabbamein og
þyrfti að koma í frekari meðferð,“
segir Ólafur. „Ég eiginlega brotn-
aði niður við þessar fréttir,“ segir
hann.
Hann leitaði til læknis eftir að
hafa verið með óþægindi í háls-
inum í að minnsta kosti sex mán-
uði. „Ég kíkti upp í mig og sá að
ég var með einhvern hnút í hálsin-
um,“ segir hann. „Ég pantaði tíma
hjá lækni og hann tók sýni. Síðan
hringdi hann og tilkynnti mér að
þetta væri krabbamein. Þetta var
í ársbyrjun 2006 og ég fór strax í
uppskurð og síðan í geislameðferð
sem lauk í maí sama ár. Ég var frá
vinnu í níu mánuði en hóf síðan
störf að nýju. Að vísu fékk ég gigt
upp úr krabbameininu en ég fór að
finna til í liðum þegar ég var í með-
ferðinni,“ segir Ólafur. „Sömuleið-
is greindist ég með sykursýki og
þarf að sprauta mig daglega,“ bætir
hann við.
Þetta er ekki allt. Ólafur hefur
bæði farið í hjartaþræðingu og upp-
lifað blóðtappa í höfði frá því hann
greindist með krabbameinið. Það
hefur því gengið á ýmsu í lífi hans.
Hann hafði alltaf verið hraust-
ur áður. Ólafur var stórreykinga-
maður. Hann var fjórtán ára þegar
hann byrjaði að reykja. Ég reykti
alltaf mjög mikið. Árið 1977 hætti
ég reykingum í átta ár en fór þá að
fikta aftur, því miður. Ég reykti
tvo pakka á dag allt þangað til ég
greindist með krabbameinið. Þá
hætti ég sem betur fer, annars væri
ég líklega dauður. Það eina góða
við að greinast var að ég hætti að
reykja,“ segir Ólafur.
„Þeir tóku bæði æxlið og eitla í
kringum það. Ég á þessum lækn-
um mikið að þakka, bæði Þórarni
Sveinssyni krabbameinslækni og
Hannesi Hjartarsyni skurðlækni.
Ég á þeim líf mitt að launa og er
þeim þakklátur. Að vísu er ég með
hálf ónýta munnvatnskirtla síðan
og sömuleiðis hefur bragðskynið
breyst. En ég er á fótunum og get
unnið og það er fyrir öllu,“ segir
Ólafur bjartsýnn. Starfsþrekið er
þó ekki það sama og áður. „Ég fer
tvisvar á ári í lækniseftirlit til ör-
yggis. Það er stór skellur að veikj-
ast og erfið lífsreynsla. Mér finnst
erfitt að sjá á eftir vinum mínum
sem hafa farið úr þessum sjúkdómi.
Svo bið ég fólk að hætta reyking-
um, þær eru stórhættulegar, helst
að byrja aldrei,“ segir Ólafur.
Fékk krabbamein í háls eftir reykingar
Ólafur Vilhjálmsson rafvirki segist þakka fyrir að vera á lífi í dag. Hann greindist með krabbamein í hálsi árið 2006. Ólafur vill kenna
reykingum um sjúkdóminn en hann hafði reykt tvo pakka á dag frá unga aldri. Hann hvetur fólk til að drepa í rettunni eða byrja aldrei.
Elín
albertsdóttir
elina@365.is
Ólafur Vilhjálmsson hefur náð sér eftir að hann fékk krabbamein í háls árið 2006. Hann er þakklátur læknunum og finnst frábært að geta verið í fullri vinnu.
MynD/anTOn brinK
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
7
-1
2
4
C
1
C
6
7
-1
1
1
0
1
C
6
7
-0
F
D
4
1
C
6
7
-0
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K