Fréttablaðið - 08.03.2017, Side 28
Ef hægt er að venja börn og unglinga á tóbak
eru talsverðar líkur á að þau verði háð því og
þá eru tóbaksfyrirtækin komin með framtíðarvið-
skiptavini. Ég á sjálf drengi sem eru að komast á
unglingsaldurinn og óttast tilhugsunina um að félög-
um þeirra þyki svalt að nota rafsígarettur.
Lára G. Sigurðardóttir
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Ef hægt er að venja börn og unglinga á tóbak eru talsverðar líkur á að þau verði háð því og þá eru tóbaksfyrirtækin komin með framtíðarviðskiptavini,“ segir Lára.
„Stutt er síðan rafsígarettur komu
fram á sjónarsviðið en upphafleg-
ur tilgangur þeirra var að hjálpa
fólki við að hætta að reykja. Hins
vegar eru þær orðnar að eins konar
tískuvöru sem við þurfum að vera á
varðbergi gagnvart. Við vitum enn
ekki hver langtímaáhrif af notkun
þeirra eru. Sumir telja að þær gefi
frá sér saklausa vatnsgufu en til
eru rannsóknir sem sýna að í raf-
sígarettum leynist krabbameins-
valdandi efni og ýmsir málmar sem
ekki er hollt að anda að sér,“ segir
Lára G. Sigurðardóttir, læknir og
fræðslustjóri Krabbameinsfélags-
ins. Hún telur eðlilegt að setja regl-
ur um rafsígarettur.
„Háværar raddir hafa verið gegn
frumvarpi um tóbaksvarnir sem
nú liggur fyrir þinginu. Við lestur
frumvarpsins kemur fram að það
standi ekki til að banna rafsígarett-
ur heldur gera þær löglegar því eins
og staðan er í dag er bannað að selja
nikótínvökva í þær. Þó vitum við að
nikótínvökvar eru til sölu í sumum
sælgætisverslunum og víðar. Frum-
varpið er lagt fram til að vernda
ungdóminn fyrir rafsígarettum og
að neytendur þeirra viti hvaða efni
þær innihalda.“
Rafsígarettur með nammibragði
Lára bendir á að Krabbameinsfé-
lagið hafi tekið undir að fólk noti
rafsígarettur í staðinn fyrir sígar-
ettur, hafi því ekki tekist að hætta
reykingum með öðrum hætti. „Við
höfum litið svo á að líklega sé skárra
að nota rafsígarettur en sígarettur
en það er ekki eðlilegt að ungmenni
séu byrjuð að neyta þeirra. Fjórð-
ungur barna í 10. bekk hefur próf-
að rafsígarettur, helmingur fram-
haldsskólanema en einungis fimm
prósent fullorðinna,“ segir hún en
þessar sláandi tölur koma fram í ís-
lenskum rannsóknum.
Hægt er að fá rafsígarettur með
mismunandi bragði, svo sem hlaup-
kallabragði og gúmmíbangsabragði
sem höfðar sérstaklega til barna.
„Auglýsingaherferðir erlendis eru
eins og þegar sígarettan var mark-
aðssett á sínum tíma. Þær beinast
sérstaklega að ungu fólki. Ef hægt
er að venja börn og unglinga á tóbak
eru talsverðar líkur á að þau verði
háð því og þá eru tóbaksfyrirtæk-
in komin með framtíðarviðskipta-
vini. Ég á sjálf drengi sem eru að
komast á unglingsaldurinn og óttast
tilhugsunina um að félögum þeirra
þyki svalt að nota rafsígarettur,“
segir Lára.
Nikótín í sáðvökva
Nikótín örvar svæði í heilanum sem
eykur dópamínframleiðslu en það
hjálpar okkur að líða vel og slaka
á. Lára segir að þessum áhrifum
Nikótín mælist í sáðvökva
Fjórði hver karlmaður á aldrinum 18-24 ára notar munntóbak daglega og helmingur menntaskólanema hefur
prófað rafsígarettur. Lára G. Sigurðardóttir, læknir og fræðslustjóri Krabbameinsfélagsins, segir erfitt fyrir
ungmenni að venja sig af nikótíni. Fólk fær aðstoð við að hætta reykingum í samstarfi við Reyksímann.
megi líka ná fram með því að borða
góðan mat, vera í góðum félags-
skap, hreyfa sig eða stunda kyn-
líf. Hún segir áhyggjuefni hversu
margir ungir karlmenn á aldrinum
18-24 ára noti munntóbak, eða 23%.
„Munntóbaksnotkun hefur aukist
undanfarin ár. Unglingar og ungt
fólk gerir sér ekki grein fyrir því
hversu háð það getur orðið munn-
tóbaki. Þeir sem byrja að nota tóbak
ætla sér ekki að nota það ævilangt.
Um 90% þeirra sem geta ekki hætt
að nota tóbak byrjuðu að nota það
fyrir tvítugt. Langflestir sem nota
tóbak segjast hins vegar vita betur,
að þeir vildu vera lausir við það en
erfitt sé að hætta.“
Munntóbak getur valdið krabba-
meini í munnholi, vélinda og brisi
og nú eru vísbendingar um að það
auki einnig líkur á krabbameini
í blöðruhálskirtli. Í munntóbaki
hafa fundist 28 krabbameinsvald-
andi efni.
„Margir gera sér ekki grein
fyrir að nikótínið breiðist um allan
líkamann. Það fer út í blóðrásina og
t.d. í sáðvökva karlmanna.“
Innt eftir því hvers vegna ungt
fólk byrji að nota tóbak þótt það viti
um skaðsemi þess segir Lára það
vera í eðli mannsins að fylgja hvert
öðru. „Við speglum gjarnan hegð-
un hvert annars, sérstaklega þegar
við erum ung og að fóta okkur í líf-
inu. Í fyrsta sinn sem fólk prófar
munntóbak eða tekur smók af síg-
arettu kúgast það og kastar jafnvel
upp því líkaminn er að senda skila-
boð um að þetta sé eitur sem ætti
að forðast. Við höfum ríka aðlögun-
arhæfni og þess vegna geta menn
haldið áfram að nota tóbak. Sem
betur fer eru sígarettur á undan-
haldi en notkun á munntóbaki og
rafsígarettum er líklega tísku-
bylgja eins og er, sem vonandi varir
ekki lengi,“ segir Lára.
Keppni í að hætta
Krabbameinsfélagið stendur nú
fyrir átakinu Hættu nú alveg. „Við
bjóðum fólki upp á aðstoð við að
hætta að reykja í samstarfi við
Reyksímann þar sem hjúkrunar-
fræðingar gefa góð ráð. Sumum
tekst að hætta reykingum upp á
eigin spýtur en árangurinn er oft-
ast betri ef fólk leitar sér aðstoð-
ar fagfólks,“ segir Lára. Spurð
hvers konar ráð dugi segir hún
það gefa góða raun að ákveða dag
til að hætta að reykja, auka vatns-
drykkju, hreyfa sig reglubundið,
segja öðrum frá áformunum og svo
geti ýmis lyf komið að gagni. Lára
vonar að sem flestir taki þátt í átak-
inu því til mikils sé að vinna, lengra
og betra líf eða líf án tóbaks.
mottumarS Kynningarblað
8. mars 20174
365.is Sími 1817
Tryggðu þér áskrift á aðeins 333 kr. á dag9.990 kr. á mánuði
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
6
-F
9
9
C
1
C
6
6
-F
8
6
0
1
C
6
6
-F
7
2
4
1
C
6
6
-F
5
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K