Fréttablaðið - 08.03.2017, Side 46

Fréttablaðið - 08.03.2017, Side 46
Hágæða amerísk heilsurúm sem auðvelt er að elska Sofðu rótt í alla nótt ára s. 511 1100 | www.rymi.is ...fyrir alla muni SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR Það er mikið at fyrir frumsýninguna.  Allt er að smella saman og bæði tilhlökkun og spenna í loftinu,“ segir Pálína Jónsdóttir, leik- ari og leikstjóri, sem í kvöld frum- sýnir í New York eigin leikgerð og leikstjórn á Gestaboði Babette eftir samnefndri sögu hinnar dönsku skáldkonu Karen Blixen. Pálína er að ljúka þriggja ára meistaranámi í leikstjórn frá Col- umbia-háskólanum í New York, fyrst Íslendinga, og útskrifast í maí. Sýningin í kvöld er meistara- og útskriftarverkefni hennar frá School of the Arts. „Sagan Gestaboð Babette plantaði sér í hugarfylgsni mitt og hjarta fyrir löngu og nú ákvað ég að leysa þá þrá úr læðingi að búa til sviðsverk úr henni, nýta þetta tækifæri til fulls og ýta þannig sjálfri mér eins langt og ég kæmist,“ lýsir Pálína og segir söguna sameina mörg af hennar áhugamálum, þar á meðal matar- gerðarlist. „Á sínum tíma, meðan ég var að safna fyrir náminu, stofnaði ég veitingastað að Lónkoti í Skagafirði og bjó til mat úr blómum. Það var dálítið villt hugmynd og þar leystist mikill sköpunarkraftur úr læðingi,“ rifjar hún upp. „Ég naut þess að vera í hlutverki kokksins og gestgjafans og leika við skynfæri gesta minna sem gáfu mér svo margt til baka svo sköpun mín þar varð víxlverkandi. Matur er efnið sem Babette skapar Sagan var geymd í hugarfylgsninu Pálína Jónsdóttir leikkona frumsýnir eigin leikgerð á Gestaboði Babette eftir sögu Karenar Blixen í kvöld við 4. stræti í New York. Það er meistaraverkefni henn- ar í leikstjórn við Columbia-háskóla. Pálína ákvað að nýta tækifæri sem skapaðist með vali á meistaraverkefni, útbúa leikgerð úr uppáhaldssögu og leikstýra henni. listaverk sitt úr og ég hef kappkostað að búa til leikhúsalkemíu sem sýnir inn í dýrðarfyrirbæri heimsins. Fyrir utan hina listrænu áskorun sem ég hef sett sjálfri mér er ég með hápólitískt verk í höndunum sem mótmælir kreddutrú og íhaldsemi, hatri og útlendingafordómum. Þegar ég lít til baka sé ég að ég vel mér ávallt forgengileg efni til að skapa úr, því bæði matargerðarlist og leiklist eru listform augnabliks- ins. Ég veit líka að innri upplifun og jafnvel uppljómum er stundarfyrir- bæri sem þó hefur þann magnaða kraft að lifa með manni á vit nýrra uppgötvana og sýnar á lífið. Það er þessi kraftur sem knýr mig áfram í þjónustu minni við listina.“ Sýningin Gestaboð Babette verð- ur í The Connelly Theater á 4. stræti í New York-borg fram til 11. mars. „Það er ekkert leikhús enn við skól- ann en það breytist á næsta ári því ný bygging er að rísa þar eftir Renzo Piano, einn af bestu arkitektum samtímans,“ segir Pálína. „En ég er líka mjög ánægð með að vera með sýningu í leikhúsi niðri í bæ á leik- hússenunni sem þar er.“ Pálína  flutti til New York árið 2004 með dóttur sína, Uglu Hauks- dóttur, sem  lauk  þar námi í kvik- myndaleikstjórn síðasta vor. „Hún var ári á undan mömmu sinni,“ segir Pálína glaðlega. Sjálf kveðst hún hafa byrjað á að fara á krefjandi sumarnámskeið við Columbia- háskólann sumarið 2009 hjá leik- stjóranum Anne Bogart og hennar kompaníi, þar sem áhersla var lögð á líkamlegar aðferðir í leiklistar- sköpun.  „Ég kom úr hreyfilist því ég var í listdansi bæði í Listdans- skóla Þjóðleikhússins og í Listahá- skóla Lyon í Frakklandi þar sem ég stundaði framhaldsnám áður en ég fór í leiklistarnám heima. Og þetta námskeið hjá Anne Bogart olli bara umpólun hjá mér. Það var eins og að ganga inn um réttar dyr inn í rétt herbergi. Mér fannst svo gott að hitta fólk sem bjó ekki til leiklist út frá orðinu einu saman heldur líkam- anum öllum.“ Pálína kveðst hafa ákveðið að  hella sér í meistaranámið þó dýrt væri. Fyrir utan að safna fyrir því og taka námslán hafi hún fengið góðan styrk frá skólanum og verið verðlaunuð á 2. ári fyrir frammi- stöðu sína sem kom í formi pen- ingastyrks. „Svo fékk ég líka ríflegan stuðning frá sjóði Leifs Eiríkssonar svo þetta peningapúsl er nálægt því að komast saman,“ segir hún. En ætlar hún að búa þarna úti eftir að námi lýkur? „Ég er með búsetu- og vinnuleyfi í Bandaríkjunum auk þess sem ég ætla að ganga inn í SDC leikstjórafélagið hér. Ég mun halda áfram að starfa á alþjóðlegum vett- vangi.“ Um leiKsýNiNGUNa GestaBoð BaBette Sýningin skoðar samband á milli trúarlegra afturhaldsafla og hins alþjóðalega frjálsa heims, með áherslu á frelsi og sköpunarkraft ein- staklingsins, sem birtist hér í mynd stríðshrjáðs útlendings sem með ást sinni og list endurreisir staðnað og trénað samfélag. Sýningin er listrænn viðburður sem beitir háværri pólitískri rödd til að ávarpa hið hörmulega ástand flóttamanna sem varir í heiminum í dag. Við beinum sjónum okkar sérstaklega að stöðu pólitískra og stríðshrjáðra múslima sem var bönnuð koma til Bandaríkjanna eftir að nýkjörinn forseti landsins tók við völdum. Aðalleikkona sýningarinnar er upprunnin frá Íran. Þaðan flúði hún ung að árum, ásamt fjölskyldu sinni, til Bandaríkjanna eftir langan tíma þjáningar og óvissu um framtíð sína. Á leiksviðinu í New York mun hún fara með hlutverk flótta- og listakonunnar Babette. Pálína Jónsdóttir Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is éG er með háPóli­ tísKt verK í höNd­ UNUm sem mótmælir Kred­ dUtrú oG íhaldsemi, hatri oG útleNdiNGafordómUm. 8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r18 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð menning 0 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 7 -0 8 6 C 1 C 6 7 -0 7 3 0 1 C 6 7 -0 5 F 4 1 C 6 7 -0 4 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.