Fréttablaðið - 08.03.2017, Síða 46
Hágæða amerísk heilsurúm
sem auðvelt er að elska
Sofðu rótt í alla nótt
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
...fyrir alla muni
SMÁVÖRUHILLUR OG SKÁPAR
Það er mikið at fyrir frumsýninguna. Allt er að smella saman og bæði tilhlökkun og spenna í loftinu,“ segir Pálína Jónsdóttir, leik-
ari og leikstjóri, sem í kvöld frum-
sýnir í New York eigin leikgerð og
leikstjórn á Gestaboði Babette eftir
samnefndri sögu hinnar dönsku
skáldkonu Karen Blixen.
Pálína er að ljúka þriggja ára
meistaranámi í leikstjórn frá Col-
umbia-háskólanum í New York,
fyrst Íslendinga, og útskrifast í maí.
Sýningin í kvöld er meistara- og
útskriftarverkefni hennar frá School
of the Arts.
„Sagan Gestaboð Babette plantaði
sér í hugarfylgsni mitt og hjarta fyrir
löngu og nú ákvað ég að leysa þá þrá
úr læðingi að búa til sviðsverk úr
henni, nýta þetta tækifæri til fulls
og ýta þannig sjálfri mér eins langt
og ég kæmist,“ lýsir Pálína og segir
söguna sameina mörg af hennar
áhugamálum, þar á meðal matar-
gerðarlist.
„Á sínum tíma, meðan ég var
að safna fyrir náminu, stofnaði ég
veitingastað að Lónkoti í Skagafirði
og bjó til mat úr blómum. Það var
dálítið villt hugmynd og þar leystist
mikill sköpunarkraftur úr læðingi,“
rifjar hún upp. „Ég naut þess að vera
í hlutverki kokksins og gestgjafans
og leika við skynfæri gesta minna
sem gáfu mér svo margt til baka svo
sköpun mín þar varð víxlverkandi.
Matur er efnið sem Babette skapar
Sagan var geymd
í hugarfylgsninu
Pálína Jónsdóttir leikkona frumsýnir
eigin leikgerð á Gestaboði Babette eftir
sögu Karenar Blixen í kvöld við 4. stræti í
New York. Það er meistaraverkefni henn-
ar í leikstjórn við Columbia-háskóla.
Pálína ákvað að nýta tækifæri sem skapaðist með vali á meistaraverkefni, útbúa leikgerð úr uppáhaldssögu og leikstýra henni.
listaverk sitt úr og ég hef kappkostað
að búa til leikhúsalkemíu sem sýnir
inn í dýrðarfyrirbæri heimsins.
Fyrir utan hina listrænu áskorun
sem ég hef sett sjálfri mér er ég með
hápólitískt verk í höndunum sem
mótmælir kreddutrú og íhaldsemi,
hatri og útlendingafordómum.
Þegar ég lít til baka sé ég að ég vel
mér ávallt forgengileg efni til að
skapa úr, því bæði matargerðarlist
og leiklist eru listform augnabliks-
ins. Ég veit líka að innri upplifun og
jafnvel uppljómum er stundarfyrir-
bæri sem þó hefur þann magnaða
kraft að lifa með manni á vit nýrra
uppgötvana og sýnar á lífið. Það er
þessi kraftur sem knýr mig áfram í
þjónustu minni við listina.“
Sýningin Gestaboð Babette verð-
ur í The Connelly Theater á 4. stræti
í New York-borg fram til 11. mars.
„Það er ekkert leikhús enn við skól-
ann en það breytist á næsta ári því
ný bygging er að rísa þar eftir Renzo
Piano, einn af bestu arkitektum
samtímans,“ segir Pálína. „En ég er
líka mjög ánægð með að vera með
sýningu í leikhúsi niðri í bæ á leik-
hússenunni sem þar er.“
Pálína flutti til New York árið
2004 með dóttur sína, Uglu Hauks-
dóttur, sem lauk þar námi í kvik-
myndaleikstjórn síðasta vor. „Hún
var ári á undan mömmu sinni,“
segir Pálína glaðlega. Sjálf kveðst
hún hafa byrjað á að fara á krefjandi
sumarnámskeið við Columbia-
háskólann sumarið 2009 hjá leik-
stjóranum Anne Bogart og hennar
kompaníi, þar sem áhersla var lögð
á líkamlegar aðferðir í leiklistar-
sköpun. „Ég kom úr hreyfilist því
ég var í listdansi bæði í Listdans-
skóla Þjóðleikhússins og í Listahá-
skóla Lyon í Frakklandi þar sem ég
stundaði framhaldsnám áður en ég
fór í leiklistarnám heima. Og þetta
námskeið hjá Anne Bogart olli bara
umpólun hjá mér. Það var eins og
að ganga inn um réttar dyr inn í rétt
herbergi. Mér fannst svo gott að
hitta fólk sem bjó ekki til leiklist út
frá orðinu einu saman heldur líkam-
anum öllum.“
Pálína kveðst hafa ákveðið
að hella sér í meistaranámið þó
dýrt væri. Fyrir utan að safna fyrir
því og taka námslán hafi hún fengið
góðan styrk frá skólanum og verið
verðlaunuð á 2. ári fyrir frammi-
stöðu sína sem kom í formi pen-
ingastyrks. „Svo fékk ég líka ríflegan
stuðning frá sjóði Leifs Eiríkssonar
svo þetta peningapúsl er nálægt því
að komast saman,“ segir hún. En
ætlar hún að búa þarna úti eftir að
námi lýkur? „Ég er með búsetu- og
vinnuleyfi í Bandaríkjunum auk
þess sem ég ætla að ganga inn í SDC
leikstjórafélagið hér. Ég mun halda
áfram að starfa á alþjóðlegum vett-
vangi.“
Um leiKsýNiNGUNa GestaBoð BaBette
Sýningin skoðar samband á milli trúarlegra afturhaldsafla og hins
alþjóðalega frjálsa heims, með áherslu á frelsi og sköpunarkraft ein-
staklingsins, sem birtist hér í mynd stríðshrjáðs útlendings sem með ást
sinni og list endurreisir staðnað og trénað samfélag. Sýningin er listrænn
viðburður sem beitir háværri pólitískri rödd til að ávarpa hið hörmulega
ástand flóttamanna sem varir í heiminum í dag. Við beinum sjónum
okkar sérstaklega að stöðu pólitískra og stríðshrjáðra múslima sem var
bönnuð koma til Bandaríkjanna eftir að nýkjörinn forseti landsins tók
við völdum.
Aðalleikkona sýningarinnar er upprunnin frá Íran. Þaðan flúði hún
ung að árum, ásamt fjölskyldu sinni, til Bandaríkjanna eftir langan tíma
þjáningar og óvissu um framtíð sína. Á leiksviðinu í New York mun hún
fara með hlutverk flótta- og listakonunnar Babette.
Pálína Jónsdóttir
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
éG er með háPóli
tísKt verK í höNd
UNUm sem mótmælir Kred
dUtrú oG íhaldsemi, hatri
oG útleNdiNGafordómUm.
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r18 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð
menning
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
7
-0
8
6
C
1
C
6
7
-0
7
3
0
1
C
6
7
-0
5
F
4
1
C
6
7
-0
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K