Fréttablaðið - 10.03.2017, Síða 2
Slakað á við gongið
Það getur verið notalegt að slaka á í vatni við gong-hljóma. Sú er að minnsta kosti skoðun þessara gesta gong-slökunar í Nauthólsvík. Hér sést jóga-
kennarinn Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir spila á umrætt gong af mikilli snilld. Allnokkrir voru mættir til að taka þátt. Fréttablaðið/SteFán
Veður
Gengur í austan hvassviðri eða storm
með talsverðri rigningu í dag, en
hægara og úrkomulítið norðvestan til.
sjá síðu 24
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimiliFrá Svíþjóð
Opið virka daga kl. 11-18
Lokað laugardaginn 11. mars
grillbudin.is
Grillbúðin
Þráðlaus kjöthitamælir
6.990
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegar maturinn er tilbúinn
Fyrir grill og ofna
Er frá Þýskalandi
heilbrigðismál Hlutfall þeirra sem
voru fíknir í ólögleg vímuefni og
leituðu sér lækninga á Sjúkrahúsinu
Vogi fór á rúmlega tíu árum úr 18,5
prósentum af sjúklingahópnum í
49 prósent árið 2006. Sú staða hefur
síðan lítið breyst og helmingur
þeirra sem leita á Vog á hverju ári á
við vandamál að stríða vegna fíknar
í ólögleg vímuefni.
Á tímabilinu frá 1994 til 2006,
fjölgaði tilfellunum úr tæplega 300 á
hverju ári í 907. Síðan hefur fjöldi til-
fella lítið breyst og hlutfallið haldist
það sama. Sjúkdómsgreiningar þar
sem vandinn er bundinn við lyf, sem
jafnframt eru vímuefni, hafa verið
um 500 síðustu fimm árin, eða um
30 prósent.
Þetta kemur fram í nýútgefnu árs-
riti meðferðarsviðs SÁÁ 2016, en höf-
undur þess er Þórarinn Tyrfingsson,
forstjóri Sjúkrahússins Vogs.
Þórarinn segir frá því hversu mikil
breytingin var frá þeim tíma er SÁÁ
var stofnað og byrjaði að bjóða
áfengis- og vímuefnasjúklingum
meðferð – þá var áfengi vímuefnið
sem nær allir notuðu og áttu í vanda
með. Á því voru þó vissulega fáeinar
undantekningar. Einstaka sjúklingar
voru fíknir í tvö vímuefni eða fleiri.
„Síðan þá hafa fleiri og fleiri sjúkl-
ingar komið til meðferðar sem kalla
má fjölfíkla, eða eru háðir fleiri en
einu vímuefni, auk tóbaks. Mikil
aukning varð á þessu á árunum
1983 til 1985 og svo aftur frá 1996 til
2000. Á Sjúkrahúsinu Vogi forðast
læknar að nota fjölfíklagreininguna
í vímuefnagreiningunni en greina
þess í stað og nefna öll þau vímuefni
sem sjúklingurinn er fíkinn í. Með
þessu verða vímuefnagreiningarnar
nákvæmar og samanburðarhæfari
milli ára,“ segir Þórarinn.
Í tölfræði SÁÁ fær helmingur sjúkl-
inganna á Vogi aðeins eina vímuefna-
greiningu, en árið 2015 fengu þrír af
hverjum fjórum áfengisgreiningu,
þrettán prósent fengu kannabis-
greiningu og um tólf prósent lyfja-
greiningu. Einn af hverjum fjórum
sjúklingum á Vogi var fíkinn í þrjú
eða fleiri vímuefni á Vogi árið 2015,
en hafa ber í huga að þeir hafa notað
miklu fleiri vímuefni en þeir greinast
fíknir í, bætir Þórarinn við.
„Vegna þess hversu algengt er að
sjúklingar séu háðir fleiri en einu
vímuefni er mikilvægt að greina
hvaða vímuefni veldur mestum
vanda hjá þeim.“ svavar@frettabladid.is
Flestir á Vogi hafa
notað mörg vímuefni
Á áratug fjölgaði þeim
sem notuðu ólögleg
vímuefni úr 18,5% í 49%.
Þetta sýnir gagnabanki
Vogs. Áfengi er rauði
þráðurinn en fjórðungur
sjúklinga sækir í þrjú eða
fleiri vímuefni sem þeir
eru fíknir í – sýna tölur
ársins 2015.
Frá tæru áfengi í
fjölfíkn
l Sú var tíðin að þeir sem leituðu
sér meðferðar vegna áfengis-
og vímuefnasjúkdóms á Íslandi
notuðu nær eingöngu áfengi.
l Um og eftir seinni heimsstyrj-
öldina fóru fáeinir áfengissjúkl-
ingar að nota lækningalyf sem
jafnframt voru vímuefni, bæði
örvandi lyf (amfetamín og
skyld lyf) og róandi ávanalyf.
l Árið 1961 komu benzodía-
sepam-lyfin [kvíðastillandi/
svefnlyf] á markað. Notkun
róandi ávanalyfja jókst mikið í
kjölfarið og sjúklingar sem mis-
notuðu þessi lyf fóru að leita
sér meðferðar í vaxandi mæli.
l Árið 1968 komu kannabisefni
til Íslands og fljótlega upp úr
því komu kannabisfíklar til
meðferðar og sumir þeirra
höfðu notað LSD [ofskynjunar-
efni].
áfengissýki hefur lengi verið helsta viðfangsefnið á Vogi. Fréttablaðið/Heiða
Tækni Facebook opnaði í gær fyrir
nýja viðbót við Messenger-skila-
boðaforrit sitt. Viðbótin nefnist
Messenger Day og svipar mjög til My
Story-fídussins á Snapchat.
Með Messenger Day munu not-
endur þannig geta bætt við myndum
og myndböndum yfir daginn sem
eyðast eftir sólarhring. Hægt er að
velja að deila efninu með ákveðnum
eða jafnvel öllum vinum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Facebook hermir eftir Snapchat. Í
ágúst síðastliðnum var boðið upp
á fídusinn Stories í ljósmyndaforriti
Facebook, Instagram, og í febrúar
fyrir ári var slíkt hið sama gert með
skilaboðaforritið WhatsApp. Sú við-
bót nefndist Status.
Sjálfur tjáði Mark Zuckerberg,
eigandi Facebook, sig um þessa nýju
áherslu á ljósmyndir í símtali með
greiningaraðilum í nóvember. Sagð-
ist hann hafa trú á því að myndavélin
yrði það tæki sem helst yrði notað til
að deila upplifun með vinum í fram-
tíðinni. – þea
Hermir eftir
Snapchat á ný
ferðaþjónusTa Fyrstu komur
skemmtiferðaskipa til Akraness
verða í sumar. Fyrsta skipið sem
hefur boðað komu sína þangað
er Le Boreal. Það er ellefu þúsund
brúttótonna skip með 264 farþega
og 139 manna áhöfn.
Frá þessu er greint á vef Faxaflóa-
hafna en jafnframt að á dögunum
hafi Faxaflóahafnir fengið bókun
um 14 komur til Akraness frá skip-
inu To Callisto. Það er lítið skip sem
var smíðað árið 1963. Skipið getur
tekið 34 farþega og áhöfnin er jafn-
an 16 til 18 manns. Áformað er að
komur skipsins til Akraness raðist
nokkuð jafnt yfir sumarmánuðina.
Þar sem þetta er í fyrsta skipti
sem skemmtiferðaskip koma til
hafnar á Akranesi meta starfs-
menn Faxaflóahafna það svo að
um stórtíðindi sé að ræða – bæði
fyrir sveitarfélagið sjálft og Faxa-
flóahafnir. – shá
Skagamenn fá
sín fyrstu skip
Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri
Facebook. Fréttablaðið/ePa
Með Messenger Day
munu notendur þannig geta
bætt við myndum og mynd-
böndum yfir daginn sem
eyðast eftir sólarhring.
1 0 . m a r s 2 0 1 7 f Ö s T u D a g u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
A
-F
0
4
4
1
C
6
A
-E
F
0
8
1
C
6
A
-E
D
C
C
1
C
6
A
-E
C
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K