Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 32
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Kristjánsdóttir lést á Landspítalanum við Hringbraut, deild 11E, mánudaginn 6. mars, umvafin ást. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóna Helga Hauksdóttir Inga Guðný Hauksdóttir Bernharð Antoniussen Einar Birgir Hauksson Kristín Óskarsdóttir Edda Kristín Hauksdóttir Anna Karen Hauksdóttir Agnar Hansson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og virðingu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Snæbjargar Snæbjarnardóttur söngkonu, söngkennara og kórstjóra, Fellsmúla 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Krabbameinsdeild 11E á Landspítalanum, starfsfólki Karitas sem og starfsfólki Múlabæjar fyrir einstaka umhyggju og vináttu. Ólöf S. Pálsdóttir Snæbjörn Óli Jörgensen Anna María Elíasdóttir Guðrún Birna Jörgensen Halldór Þ. Ásmundsson Snæbjörg, Harpa María, Kaj Arnar, Hildur Ása og Maríanna Erla Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð, hlýju og fallegar kveðjur vegna andláts Dags Jónssonar vatnsveitustjóra, Heiðvangi 80, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11b, 11e og heimahlynningar Landspítalans. Þórdís Bjarnadóttir Vera Dagsdóttir Páll Fannar Pálsson Vaka Dagsdóttir Bjarni Guðmundsson Vala Dagsdóttir Vala, Jón Kári og Sigurlaug Jónsbörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför Guðnýjar Magnúsdóttur Silfurgötu 9, Ísafirði. Vilberg V. Vilbergsson Rúnar H. Vilbergsson Tamila Gámez Garcell Sara Vilbergsdóttir Gísli Guðmundsson Bryndís Vilbergsdóttir Garðar Erlingsson Svanhildur Vilbergsdóttir Hjörtur Svavarsson Ylfa Mist og Haraldur, Viðar Hákon og Hanna, Guðný, Vilberg, Bjartur Dagur, Björg, Sólrún, Vilberg Samúel og barnabarnabörn. 241 f.Kr. Rómverjar binda enda á fyrsta púnverska stríðið með því að sökkva flota Karþagómanna. 1118 Gelasíus 2. verður páfi. 1629 Karl 1. Englandskonungur leysir breska þingið upp og hefur ellefu ára harðstjórnina þar sem ekkert þing situr. 1649 Karl 10. Gústaf er útnefndur eftirmaður Kristínar Svía- drottningar. 1804 Bandaríkin kaupa Louisiana af Frökkum. 1906 Námaslys í Courrieres-kolanámunum kostar 1.099 kolanámumenn lífið, það er mannskæðasta kolanámuslys sem orðið hefur í Evrópu. 1933 Jarðskjálfti í Kaliforníu verður 120 manns að bana á Long Beach. 1944 Flugfélagið Loftleiðir er stofnað. Merkisatburðir Leikarinn Corey Haim lést úr lungna- bólgu á þessum degi árið 2010, aðeins 38 ára að aldri. Corey hóf leiklistarferilinn aðeins tíu ára gamall þegar hann lék Larry í kanadísku seríunni The Edison Twins sem var í loftinu frá 1982 til 1986. Árið 1986 landaði hann hlutverki í kvikmyndinni Lucas þar sem hann lék á móti Charlie Sheen og Winonu Ryder. Þaðan í frá var leiðin greið á leiklistarbrautinni og lék hann í myndum á borð við The Lost Boys, License to Drive og Anything for Love. Hann var mikill hjartaknúsari og um tíma fékk hann yfir tvö þúsund aðdá- endabréf á viku frá æstum unglings- stúlkum. Lífið lék þó ekki við Corey í einka- lífinu og ánetjaðist hann áfengi og fíkniefnum snemma á ferlinum. Hann smakkaði fyrst áfengi á setti Lucas árið 1985 og prófaði marijúana ári seinna. Það leiddi til þess að hann notaði kókaín í eitt og hálft ár og síðar krakk. Corey reyndi margoft að losa sig við vímuefnadjöfulinn en lítið gekk. Þegar lögregla fór í gegnum eigur hans eftir andlátið fann hún ýmis lyf á heimili hans sem leikarinn hafði fengið frá mismunandi læknum, þar á meðal Valíum, Víkódín og Xanax. Þ etta g e r ð i st 1 0 . m a r s 2 0 1 0 Corey Haim lést úr lungnabólgu Þetta er blanda af málverk-um, vatnslitamyndum  og teikningum. Þarna eru ný verk í bland við gömul – elstu verkin eru frá 1999 og þau yngstu eru frá þessu ári. ég byggi verkin á litum sem ég vinn sjálfur úr umhverfinu. Ég vinn þetta úr ýmsum jarðefnum frá mismunandi stöðum – bæði héðan frá Íslandi og víða að úr heiminum. Þetta eru staðir sem hafa orðið á vegi mínum á ferðalögum vítt og breitt, staðir sem hafa heillað mig og ég hef ákveðið að taka með mér og bókstaflega mála með. Þetta eru mest megnis steinefni og leirefni sem ég læt vinna og bý til litaduft úr – sem verður svo olíu- og vatnslitir,“ segir myndlistar- maðurinn Kristján steingrímur sem opnar einkasýningu í Berg Contemp- orary á laugardaginn. sýningin er eins og Kristján segir unnin á tuttugu ára tímabili. Hér er ekki um yfir- litssýningu að ræða heldur margþætta nálgun Kristjáns að sama viðfangsefninu – það er að segja stöðum og minningum – en hann notar brot úr stöðunum sem hann minnist bókstaflega sem efnivið í verkin. Henta efni frá einhverjum sérstökum stöðum betur en önnur í þessa vinnslu? „Já, það eru náttúrulega mismunandi litir í umhverfinu. Litarefni eru auðvitað búin til með svipuðum hætti – þau eru ýmist jarðefni eða úr jurtaríkinu. allir litir eru með einum eða öðrum hætti ættaðir úr þessu umhverfi. Íslenskir litir eru kannski meira í grátónum, þó að auð- vitað séu til sterkir litir í íslenskri náttúru. að auki er ég að sýna teikningar sem eru unnar frá sömu stöðum. Ég bæði ljósmynda þessa mismunandi staði og síðan tek ég efni með mér. Ég hef verið að rýna í efnið og stækka upp litlar agnir frá þessum stöðum og teikna þá upp – gera þá sýnilega í gegnum víðsjá.“ Eru öll verkin unnin á sama hátt? „Það eru ekki alveg öll verkin frá þessum tutt- ugu árum unnin svona – elstu verkin eru unnin með hefðbundnum olíulitum á striga. en þau fjalla líka um staði sem ég upplifði á sínum tíma og og vísað er til með staðsetningarhnitum sem ég setti inn á málverkin. Þannig getur sýningar- gesturinn notað gPs-hnit og leitað uppi viðkomandi stað. málverkið er orðið að vegvísi fyrir áhorfandann og verkið í raun ferðalagið á staðinn.“ Og eru þetta margir staðir? „Já, þeir skipta tugum. Ég er reyndar að sýna bara lítið brot af þessu á þessari sýningu og mest verk sem unnin eru úr jarðefnum hér á landi. en ég hef ferðast töluvert um heiminn og nota þá tækifærið til að afla mér hráefnis í verk. staðirnir eru of tilfallandi áfangastaðir frekar en að þeir séu hugsaðir með málverk í huga.“ Eru einhverjir sérstakir staðir sem þú ert að vinna með á sýningunni í meira uppáhaldi en aðrir? „Í raun og veru ekki – en garðar, lystigarðar í ýmsum borgum, heilla mig mikið og suma þeirra heim- sæki ég oft. Ég er með á sýningunni eitt- hvað af teikningum úr nokkrum görðum. en ég hef reyndar búið til liti úr mold úr almenningsgörðum frá nokkrum heims- álfum sem ég notaði til að mála með mál- verk. Þessi verk voru sýnd í Listasafni asÍ 2008.“ sýning Kristjáns verður opnuð klukk- an fimm á morgun, laugardag, í Berg Contemporary, en galleríið er til húsa á Klapparstíg. stefanthor@frettabladid.is Minningar úr ferðalögum Myndlistarmaðurinn Kristján Steingrímur opnar einkasýningu á morgun, laugardag. Á sýningunni vinnur hann með minn- ingar sínar frá stöðum sem hann hefur heimsótt. Nokkur verkanna eru máluð með litum unnum úr steinefnum frá nokkrum staðanna. Kristján ferðast mikið og á því nóg af efnivið til að moða úr. Fréttablaðið/anton brinK Þetta eru staðir sem hafa orðið á vegi mínum á ferðalögum vítt og breitt, staðir sem hafa heillað mig og ég hef ákveðið að taka með mér og bókstaflega mála með. 1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r20 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð i ð tímamót 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K _ N Ý.p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 B -1 C B 4 1 C 6 B -1 B 7 8 1 C 6 B -1 A 3 C 1 C 6 B -1 9 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.