Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 18
mma Sunna Rannveig Davíðsdóttir, sem kallar sig Sunnu „Tsunami“, æfir af krafti þessa dagana fyrir annan atvinnumannsbardaga sinn sem fer fram þann 25. mars næstkomandi. Hún hefur fengið góða aðstoð við æfingarnar þar sem hin skoska Joanne „JoJo“ Calderwood hefur æft með henni síðustu daga. JoJo barðist hjá Invicta-bardaga- sambandinu á sínum tíma en er nú komin í UFC þar sem hún er í sjöunda sæti í strávigt kvenna. Sunna kepp- ir í Invicta og stefnir sömu leið og Calderwood. Því er ekki ónýtt að fá aðstoð og leiðsögn frá þeirri skosku. Ég settist niður með þeim báðum í glæsilegum húsakynnum Mjölnis í Öskjuhlíðinni og ræddi við þær um lífið í bardagaheiminum. Eru svipaðar týpur „Ég var að vonast til að keppa á sama bardagakvöldi og Gunnar Nelson í London en það gekk því miður ekki upp. Ég var mjög vonsvikin yfir að komast ekki inn þar og það sem er erfitt í þessum bransa er að vita ekki hvenær maður berst næst. Þetta er atvinnan manns sem maður treystir á,“ segir Calderwood sem var þó hæst- ánægð með að koma til Íslands og hún átti ekki til orð til að lýsa því hversu hrifin hún væri af æfingaaðstöðunni í Öskjuhlíðinni. Sunna og Calderwood virðast ná mjög vel saman, þær voru ekkert ragar við að tala fallega hvor um aðra og skiptust á að roðna við hrósið. „Við erum svipaðar týpur. Rólegar og glaðar stelpur. Við náðum strax vel saman,“ segir JoJo og brosir en þær eiga það sameiginlegt að vera báðar ákaflega viðkunnanlegar. „JoJo hjálpaði mér þegar ég barðist á sínum tíma í Skotlandi. Var í horninu hjá mér og mamma hennar kom sér- staklega til þess að greiða á mér hárið fyrir bardagann,“ segir Sunna og báðar hlæja dátt er þær rifja þessa skemmti- legu stund upp. Sunna er til fyrirmyndar Þær stöllur eiga ýmislegt sameigin- legt. Til að mynda er Calderwood fyrsta skoska atvinnukonan í MMA og Sunna sú fyrsta íslenska. Eins og áður segir er Calderwood búin að feta þá slóð sem Sunna er nú á. Hefur hún einhver góð ráð fyrir okkar konu? „Ég var mjög glöð þegar ég heyrði að Sunna væri komin í Invicta. Það er frábært bardagasamband sem kemur mjög vel fram við fólkið sitt. Það kom mér ekkert á óvart að Sunna færi þar inn enda mjög góð bardagakona. Hún er sjálfri sér til sóma og er góður full- trúi Íslands. Ef ég ætti að gefa henni góð ráð þá væri það að halda áfram að vera hún sjálf og æfa áfram af krafti eins og hún hefur alltaf gert. Mikil- vægast af öllu er að vera glöð og njóta vegferðarinnar,“ segir Calderwood og þær hlæja svo í kór. Sunna segist hafa lært mikið af hinni skosku stöllu sinni. „Hún er frábær fyrirmynd,“ segir Sunna og JoJo skýtur því inn að nú megi Sunna tala íslensku svo hún verði ekki of vandræðaleg. Sunna er fljót að hafna því. Glaður bardagamaður er hættu- legur bardagamaður „Hún hefur kennt mér að vera alltaf jákvæð og njóta. Njóta hverrar stund- ar. Glaður bardagamaður er hættuleg- ur bardagamaður. JoJo er frábær bar- dagakona og ég var löngu byrjuð að fylgjast með henni áður en hún kom til Íslands og við kynntumst. Höggin hennar eru svo mögnuð og hún er með allt vopnabúrið. Hún átti flottan Muay Thai-feril áður en hún fór í MMA og er ansi mögnuð.“ Þær eru frumherjar í sínum löndum en hvað er það við blandaðar bardaga- listir, eða MMA, sem þeim finnst vera svona heillandi? Af hverju berjast þær? Þakklát fyrir tækifærin „Við elskum að berjast,“ segir Sunna ákveðin og JoJo tekur svo við. „Heim- urinn getur verið erfiður staður af mörgum ástæðum. Það eru tilfinn- ingar, fólk er úttaugað af ýmsum ástæðum og annað. Bróðir minn dró mig með í þetta og ég fékk fljót- lega bakteríuna. Ég get slökkt á mér og slakað á þegar ég æfi. Ég er mjög þakklát fyrir þau tækifæri sem ég hef fengið. Ég sá þetta ekki fyrir,“ segir Calderwood. Sunna kinkar kolli áður en hún tekur við keflinu á ný. „Maður byrjar á því að kýla púð- ana og svo tengist maður fólki. Þá fer maður að glíma við fólk sem maður er búinn að kynnast. Maður kynnist miklu af góðu fólki í þessum heimi. Þetta verður svo að lífsstíl. Við elsk- um hann báðar. Maður fær að æfa um allan heim og kynnast mörgu fólki. Það skiptir ekki máli hvað er að gerast í lífinu. Maður skilur allt eftir í dyragættinni þegar maður gengur inn í æfingasalinn og það er góð til- finning. Það eru allir jafnir í æfinga- salnum.“ Gæti komist fljótt í UFC Calderwood líst vel á standið á Sunnu og efast ekki um að hún eigi eftir kom- ast eins langt og hún vill. Sunna hefur ekki farið leynt með að hún stefnir á að keppa fyrir UFC. „Tækifærið gæti komið hvenær sem er. Það myndi henta henni vel að vera í UFC því hún er alltaf tilbúin og alltaf í æfingu. Í UFC vantar oft andstæðing með skömmum fyrirvara. Sunna gæti alltaf stokkið inn og ég veit að hún yrði tilbúin. Hún gæti þess vegna dottið inn í UFC eftir næsta bardaga sinn hjá Invicta,“ segir Calderwood en gætu þær hugsað sér að mæta hvor annarri í búrinu? „Ég myndi alls ekki vilja mæta henni,“ segir Sunna en spurningin virtist koma flatt upp á þær og greini- lega er takmarkaður áhugi hjá þeim vinkonunum að mætast. „Ég hef verið aðdáandi þinn lengi og elska hvernig þú berst. Ég hafði lesið um þig og horft á þig löngu áður en við hittumst. Það var því mikill heiður að hitta þig loksins og ég er svo ánægð með að við séum góðir vinir. Alltaf þegar við hittumst er eins og við höfum síðast sést í gær,“ segir Sunna og JoJo kinkar kolli vinalega. Prófa allt einu sinni Það eiga klárlega fleiri stelpur eftir að feta í fótspor þeirra í framtíðinni en hvaða ráð gefa þær þeim stelpum sem eru að spá í að fara í MMA? „Bara drífa sig í æfingasalinn og byrja að æfa. Ég þekkti engan þegar ég byrjaði. Maður á að gera það sem maður vill gera í lífinu,“ segir Sunna og Calderwood segir mikilvægt að prófa allt einu sinni. „Ekki vera hrædd við að prófa nýja hluti. Þú veist aldrei hvernig það gæti endað.“ henry@frettabladid.is Vinkonurnar elska að berjast Sunna Rannveig Davíðsdóttir og Joanne Calderwood eru fyrstu atvinnubardagakonurnar í sínum heima- löndum. Þær tala vel hvor um aðra og Calderwood telur að Sunna geti barist hjá UFC-bardagasambandinu. Vinkonur. JoJo og Sunna æfa saman í tíu daga í æfingahúsnæði Mjölnis. Sunna verður tilbúin fyrir næsta bardaga. Fréttablaðið/StEFán Ekkert gefið eftir. Sunna og Calderwood taka hraustlega á því. Þær hafa verið að æfa tvisvar á dag síðustu daga og þeim finnst fátt skemmtilegra en að æfa. Fréttablaðið/StEFán Það myndi henta Sunnu vel að vera í UFC því hún er alltaf tilbúin og alltaf í æfingu. Ég veit að hún yrði klár fyrir UFC. Joanna Calderwood 1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r18 s p o r T ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 B -2 1 A 4 1 C 6 B -2 0 6 8 1 C 6 B -1 F 2 C 1 C 6 B -1 D F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.