Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 27
Við gerum þjónustusamninga við fiskeldisfyrirtækin. Starfsmenn þeirra geta þá einbeitt sér að fiskeldinu og við sjáum um tæknimálin. For the world’s best fishfarmer STRONGER TOGETHER hampidjan.is // fjardanet.is // vonin.com KVÍAR FUGLANET KASTNÆTUR ÞVOTTASTÖÐ FISKELDISPOKAR FESTINGAR OG ANKERISBÚNAÐUR Bjarni Einarsson tæknistjóri segir að Tölvur og Net hafi upphaflega verið stofnað árið 2013 á Tálknafirði til að þjónusta fiskeldisfyrirtæki. Í fyrstu var hann eini starfsmaðurinn en fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt og þar eru nú sjö starfsmenn. „Við erum sérhæfð í að setja upp og þjónusta háþróaðan tæknibúnað fyrir fiskeldisfyrirtæki, eins og neðan- sjávarmyndavélar, neðansjávar- ljós, súrefnismæla og almennt internetsamband sem þarf að vera til staðar til að tengja þennan búnað. Einnig leggjum við ljós- leiðaralagnir út í kvíar,“ útskýrir Bjarni en Tölvur og Net þjónustar fiskeldisfyrirtæki um allt land þótt skrifstofan sé flutt til Reykjavíkur. „Við gerum þjónustusamninga við fiskeldisfyrirtækin. Starfsmenn þeirra geta þá einbeitt sér að fullu að fiskeldinu og við sjáum um að tæknimálin gangi snurðulaust fyrir sig,“ segir hann. Fyrirtækið sinnir einnig inn- flutningi á búnaði fyrir fiskeldi frá viðurkenndum aðilum, eða allt frá ljósum og upp í fóðurpramma. „Í fyrra seldum við t.d. tvo fóður- pramma til Arnarlax,“ segir Bjarni. Tæknimál og myndavélar Bjarni segir fyrirtækið sinna fjölbreyttum verkefnum, eins og FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 1 0 . m a r s 2 0 1 7 „Við erum sérhæfð í að setja upp og þjónusta háþróaðan tæknibúnað fyrir fiskeldisfyrirtæki.“ Háþróuð tækniþjónusta fyrir fiskeldisfyrirtæki Fyrirtækið Tölvur og Net er sérhæft í háþróaðri tækniþjónustu fyrir fiskeldi. Tölvur og Net er með umboð fyrir helstu merki á þessu sviði, svo sem OxyGard, Oxymat og steinvik. auka matarlyst þeirra. Það skiptir því miklu máli að hafa þessi tæki og að þau virki sem skyldi.“ Stigið inn á ný svið Tölvur og Net hafa nýlega aukið við þjónustuna og eru nú í sam- starfi við skoskt þjónustufyrirtæki sem sér um bólusetningar fyrir fiskeldisfyrirtæki. Að sögn Bjarna getur orðið mikið rask við bólu- setningar, oft vanti mannskap og réttan búnað. „Við útvegum teymi sem bólusetur annaðhvort handvirkt eða með þeim tækjum og tólum sem þarf. Við sjáum um þetta frá A til Ö,“ segir hann.   Nánari upplýsingar fást á heima- síðunni www.ton.is að setja upp myndavélakerfi og neðansjávarlýsingu í sjókvíum. „Flest fiskeldisfyrirtæki eru með myndavélakerfi svo hægt sé að fylgjast með fóðrun á fisknum. Ef myndavélarnar bila getur vöxtur- inn á fleiri tonnum af eldisfiski breyst og það getur munað um nokkur prósent á ári. Neðansjávar- ljós hægja á kynþroska fiskanna og 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 B -0 8 F 4 1 C 6 B -0 7 B 8 1 C 6 B -0 6 7 C 1 C 6 B -0 5 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.