Fréttablaðið - 10.03.2017, Side 44

Fréttablaðið - 10.03.2017, Side 44
Ekki klæða þig í! Þetta virðist vera eitt heitasta trendið um þessar mundir. NORDICPHOTOS/GETTY Þessi sást með jakkann hangandi af öxlunum fyrir utan sýningu Lavin í París. Kendall Jenner er alltaf með puttann á tískupúlsinum. Trendbiblía Glamour er komin út – marsblaðið sem boðar nýtt tísku- tímabil með stæl. Forsíðuna prýðir fyrirsætan Meghan Collison, sem er ein heitasta fyrirsætan um þessar mundir þar sem hún gengur pallana fyrir öll stærstu tískuhúsin á tískuvikunum. Forsíðutakan fór fram hér a landi en ljósmyndarinn Kári Sverriss er á bak við linsuna. Þetta er fyrsta sinn sem Kári myndar forsíðu íslenska Glamour en hann á heiðurinn af tveimur tískuþáttum í blaðinu. Silja Magg er svo með einn tískuþátt svo alls eru þrír tískuþættir í þessu sér- staka tískublaði. Tískuheimurinn hefur undanfarið verið að sýna á sér pólitískari hlið þar sem kvennabaráttan er í forgrunni. Hér heima er umræðan einnig á svip- uðum nótum þar sem ný ríkisstjórn Íslands hefur sett jafn- réttismál á stefnu- skrána, en sitt sýnist hverjum. Í nýjasta tölublaðinu er að finna ítarlega umfjöllun um hvort launa- munur kynjanna sé óheppileg tilviljun eða óréttlæti sem ber að útrýma. Þetta og margt, margt fleira í nýjasta tölublaði Glamour! Trendbiblía Glamour er lent! Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku. l Facebook l Instagram l Twitter Þegar skoðaðar eru myndir frá nýafstaðinni tískuviku í París má sjá að nýjasta tískubólan er að klæða sig ekki almennilega í jakkann heldur láta hann frekar hvíla á olnbog- unum. Nú er spurning hvort trendið muni ryðja sér rúms hérna heima. Svona mætti ein tískuskvísan á sýningu Elie Saab á tísku- vikunni í París. Þessi tíska hentar kannski ágætlega í heitu veðri. 1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r32 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð Lífið 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 B -1 2 D 4 1 C 6 B -1 1 9 8 1 C 6 B -1 0 5 C 1 C 6 B -0 F 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.