Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 10
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Audi Q2 #ótaggandi Spáflúnkunýr Audi Q2 gjörbreytir hugmyndum þínum um bíla og ögrar skilgreiningaáráttunni. Útbúinn eins og þú hugsar hann,mætir hann á malbikið eða mölina, fullur sjálfstrausts en #ótaggandi. Verð frá 4.990.000 kr. #allravega? #blikkboli? #skarpur? atvinnulíf Nýsköpunarfyrirtækið geoSilica á Ásbrú í Reykjanesbæ er að leggja lokahönd á framkvæmdir til að sextánfalda framleiðslugetu fyrir- tækisins. GeoSilica framleiðir kísil- steinefni úr jarðhitavatni frá Hellis- heiðarvirkjun, náttúrulegt steinefni í vökvaformi sem er selt á markaði fyrir heilsuvörur. Metsala hjá fyrir- tækinu undanfarna mánuði kallaði á framkvæmdir. Ágústa Valgeirsdóttir, verkefna- og viðskiptaþróunarstjóri geoSil- ica, segir að þegar sé byrjað að selja kísilsteinefni geoSilica hjá Amazon í Bandaríkjunum, og er fyrirtækið í viðræðum við nokkra aðra aðila um dreifingu á vörum fyrirtækisins erlendis – til dæmis í Finnlandi og Þýskalandi. „Hlutirnir eru að gerast hratt hjá okkur. Við viljum tryggja að þegar okkur berst stór pöntun þá getum við brugðist við henni, sérstaklega frá erlendum mörkuðum. Við erum í raun að búa í haginn fyrir fram- tíðina,“ segir Ágústa. Kísilsteinefnið, fyrsta vara geoSi- lica, kom fyrst á markað í lok árs 2014. Haustið 2012 hafði fyrir- tækið fengið verkefnastyrk Tækni- þróunarsjóðs, til að hefja vinnu við rannsóknir og þróun á vörunni. Sama ár hófst starfsemi við Hellis- heiðarvirkjun til að nýta skiljuvatn virkjunarinnar. Sú starfsemi hefur farið fram í samstarfi við Orku nátt- úrunnar, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, en einnig fékkst styrkur frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og fleirum. Fyrirtækið hefur nú komið upp fjórum átta þúsund lítra tönkum sem tryggir fyrirtækinu næga framleiðslu- getu bæði fyrir íslenskan og erlendan markað. Laga þurfti tankana að framleiðsluaðferðum geoSilica. „Framleiðslan okkar er öll á Hellis- heiði. Þar erum við með ný tæki sem við fjárfestum í líka og allt verður klárt á mánudaginn. Við erum við hliðina á skiljustöðinni á Hellisheiði og fáum vökvann beint frá virkjun- inni – þegar við fáum hráefni okkar þá er það 120 gráðu heit gufa, sem fer í gegnum varmaskipti og er kæld. Í þessum tönkum bíður vatnið áður en við hefjum framleiðslu,“ segir Ágústa og bætir við að framleiðslugetan fyrir stækkun hafi verið um þúsund lítrar á tíu til fimmtán dögum. „Það er svo fyrirtækið Pharma- Arctica á Grenivík sem tappar á fyrir okkur. Þetta er eina fyrirtækið á Íslandi sem er með lyfjavottaða ferla hjá sér og sér um frágang á mjög miklu af fæðubótarefnum, húð- vörum og slíku hér á landi. Gæða- ferlarnir hjá okkur krefjast þess að þau á Grenivík sjái um þennan hluta framleiðslunnar,“ segir Ágústa. Markaðurinn fyrir heilsuvörur er gríðarstór. Kísillinn (silica) sem geoSilica framleiðir í vökvaformi mætir því harðri samkeppni sem ríkir á markaði fyrir fæðubótarvörur. Hins vegar sér fyrirtækið tækifæri í því að bjóða 100% náttúrulegt stein- efni, en slíkar vörur eru ekki algengar í dag – hvað þá á drykkjarformi sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr. „Það eru margir að spá í uppruna vörunnar og hvernig hún nýtist við inntöku í líkamanum. Þar teljum við okkur vera sterk í samkeppni,“ segir Ágústa. svavar@frettabladid.is Sextánfalda framleiðslugetuna Fyrirtækið geoSilica svarar aukinni eftirspurn með því að margfalda framleiðslugetuna við Hellisheiðar- virkjun. Selur á Amazon og stefnir á markað í Finnlandi og Þýskalandi. Höfuðstöðvarnar á Ásbrú. Háskólaverkefni fór á flug l geoSilica var stofnað árið 2012 af Fidu Abu Libdeh og Burkna Pálssyni, ásamt Ögnum ehf., út frá lokaverk- efnum Fidu og Burkna í orku- og umhverf- istækni- fræði við Háskóla Íslands. l geoSilica hefur þróað tveggja þrepa fram- leiðsluaðferð á kísilsteinefni sínu. Í fyrra skrefinu er styrkur kísils í skiljuvatninu aukinn margtugfalt án þess að breyta efnasamsetningu þess að öðru leyti. Í seinna skrefinu er skiljuvatninu smám saman skipt út fyrir hreint grunn- vatn af svæðinu þannig að lokaafurðin er mjög smásær kísill í hreinu grunnvatni. l Í lok árs 2014 kom á markað fyrsta varan frá geoSilica en það er hágæða 100% náttúru- legt íslenskt kísilsteinefni í vökvaformi, tilbúið til inntöku. Samfélag Guðrún Hafsteinsdóttir var endurkjörin formaður Samtaka iðnaðarins á aðalfundi í gær. Guð- rún verður því formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2018. Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetu og var kosið um fjögur sæti. Þeir sem setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára eru Katrín Pétursdóttir í Lýsi, Lárus Andri Jónsson í Rafþjón- ustunni, Ragnar Guðmundsson hjá Norðuráli og Sigurður R. Ragnars- son hjá Íslenskum aðalverktökum. – jhh Guðrún kjörin formaður á ný mannréttindi Forstjóri Útlend- ingastofnunar, borgarstjóri og dómsmálaráðherra undirrituðu í gær samning um þjónustu Reykja- víkurborgar við allt að 200 hælis- leitendur. Samningurinn felur í sér stækkun á samningi sömu aðila frá 2015 sem kvað á um þjónustu borg- arinnar við allt að 90 einstaklinga. Í tilkynningu segir að Útlend- ingastofnun telji samkomulagið vera mikilvægan lið í því að treysta stoðir móttökukerfis umsækjenda um vernd hér á landi. – jhh Þjónusta fleiri hælisleitendur Guðrún Haf- steinsdóttir, for- maður Samtaka iðnaðarins. Kísillinn sem geoSilica framleiðir er nauðsynlegur fyrir bein. 1 0 . m a r S 2 0 1 7 f Ö S t u d a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 A -F F 1 4 1 C 6 A -F D D 8 1 C 6 A -F C 9 C 1 C 6 A -F B 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.