Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 6
Heimsferðir bjóða sérferð til Gardavatnsins í lok apríl. Gardavatnið er stærsta stöðuvatn Ítalíu. Það liggur í skjóli Alpanna í norðri, í suðri tekur Pósléttan við og er staðurinn margrómaður fyrir náttúrufegurð og fjölbreytni. Fjöll og hamraveggir, vínviður, ólífutré og annar fjölbreyttur gróður, litlar bryggjur, baðstrendur og rómantískir göngustígar meðfram vatninu, ásamt smábæjum með gömlum miðbæjarkjörnum sem iða af mannlífi. Þetta ásamt angan af góðum mat og drykk er það sem einkennir lífið við Gardavatnið. Í næsta nágrenni eru fjölskyldu- og skemmtigarðar, vatnasport og útivistar möguleikar, söfn og sögulegar minjar. Boðið verður upp á léttar gönguferðir og siglingar um Gardavatnið á meðan á dvöl stendur. Gardavatnið er staður sem allir elska og þangað er hægt að koma aftur og aftur og uppgötva nýja og spennandi staði í hverri ferð. Dvalið verður í bænum Malcesine á norðausturströnd vatnsins og gist í 4 nætur á Hotel Diana*** skammt frá miðbænum. Í bænum setur Scaligero kastalinn sterkan svip sinn á bæinn og í bakgrunni gnæfir fjallið Monte Baldo. Möguleiki er að taka kláfinn uppá topp fjallsins en þaðan er óviðjafnanlegt útsýni yfir eina rómuðustu náttúruperlu Norður-Ítalíu. Bærinn er einstaklega skemmtilegur með þröngum hellulögðum strætum, litlum veitingastöðum, kaffihúsum og spennandi sérverslunum og er mikið eftirlæti ferðamanna. Góðar samgöngur eru frá höfninni í Malcesine um Gardavatnið vítt og breitt. Frá kr. 114.995 m/morgunmat o.fl. Netverð á mann frá kr. 114.995 m.v. 2 í herbergi m/morgunmat alla daga og kvöldverði 20. apríl. Frá kr. 114.995 m/morgunmat o.fl. Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 80 72 5 GARDAVATNIÐ 20. apríl í 4 nætur SVÍÞJÓÐ Lögreglan í Stokkhólmi hefur beðið um aðstoð frá öðrum lögregluumdæmum í Svíþjóð vegna vopnaðra átaka milli glæpagengja í borginni. Átök eru milli sex glæpa- gengja í norðurhluta borgarinnar og sex í suðurhlutanum. Það sem af er þessu ári hafa átta manns verið skotnir til bana í 17 skotárásum og 14 hafa særst, samkvæmt frétt sænska sjónvarpsins. Að undanförnu hefur hand- sprengjum verið fleygt mörgum sinnum að fasteignum og bílum. Sænska sjónvarpið hefur það eftir fulltrúa Stokkhólmslögreglunnar að glæpagengin séu í góðu sam- bandi við vopnasala á Balkanskaga sem útvegi þeim handsprengjur. Fjöldi skotvopna er í umferð og nýlega hefur lögreglan lagt hald á 17 Kalashnikov-riffla. Lögreglan í Stokkhólmi rann- sakar nú alls 47 morð og 57 morð- tilraunir. Talið er að í mörgum til- fellum séu morðin í tengslum við fíkniefnaviðskipti auk þess sem um hefndaraðgerðir sé að ræða. Lögreglan rannsakar jafnframt önnur afbrot í Stokkhólmi sem tengjast glæpagengjum. Um er að ræða 436 alvarleg afbrot, eins og til dæmis fjárkúgun og mannrán. Liðsauki mun berast frá Gauta- borg vegna morðöldunnar í Stokkhólmi. Gautaborgarlög- reglan hefur mikla reynslu af átökum glæpagengja undanfarin ár. – ibs Vopnuð átök milli gengja í Stokkhólmi 12 glæpagengi, sex í norður- hluta borgarinnar og sex í suðurhlutanum, hafa átt í vopnuðum átökum Samgöngur Íbúar í Berufirði og nærliggjandi sveitum mótmæltu í gær frestun uppbyggingar nýs vegar í firðinum. Er það í annað sinn á skömmum tíma sem íbúar mót- mæla með því að loka veginum en það var einnig gert á sunnudag. „Það var mikil mæting af Djúpa- vogi og úr nærsveitum, Breiðdals- vík, Egilsstöðum og víðar. Það var mikill samhugur og samstaða. Fólk var gallhart á sínum kröfum,“ segir Berglind Häsler, bóndi á Karls- stöðum. Þó voru ekki allir sáttir við mót- mælin. Nokkrir ferðamenn mót- mæltu mótmælunum. Berglind segir þau þó hafa búist við slíku. „Auðvitað er leiðinlegt að þetta bitni á þeim en svona er þetta bara. Það er mótmælt víða um allan heim með alls konar töfum.“ Hún segir það hafa staðið upp úr þegar sveitarstjórnin hafi mætt á svæðið. Þau hafi verið á fundi frá klukkan fjögur en ákváðu að klára fundinn á einbreiðu brúnni þar sem mótmælin fóru fram. „Þar var sam- þykkt ályktun um þetta mál. Þetta var ótrúlega flott og ég sagði upp- hátt að ég héldi að þetta væri besta sveitarfélag í heimi,“ segir Berglind. Hún segir aðgerðaleysi stjórn- valda valda íbúum gífurlegum von- brigðum. „Það voru allir orðnir svo vongóðir um að nú væri þetta að hafast og að þjóðvegur 1 yrði loks- ins malbikaður.“ Þá segir hún að um sé að ræða fimm kílómetra kafla sem þurfi að laga. Svo séu aðrir vegir inni í Breiðdal og á Breiðdalsheiði sem einnig þurfi að laga. „Þetta var búið að fara í gegnum skipulag og átti að vera klárt. Við héldum að það ætti að græja þetta en svo er bara búið að blása það af.“ Ljóst er að fleiri deila sjónar- miðum Berglindar um að meiri fjárfestingar sé þörf. Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks, gerði samgöngumálin að umræðuefni í ræðu sinni á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær. „Fjárfestingar í vegakerfinu hafa að jafnaði numið 1,5 til  tveimur prósentum af landsframleiðslu en frá árinu 2009 hefur hlutfallið verið undir einu prósenti. Á sama tíma er umferðin stöðugt að aukast og bara í fyrra var aukningin níu prósent frá árinu á undan,“ sagði Gylfi. Hann sagði jafnframt að færa mætti gild rök fyrir því að ein ástæða þess að framleiðnivöxtur á Íslandi hefði ekki verið nægjanlegur á síðustu árum væri of lágt fjárfest- ingastig. „Við verðum að bæta sam- göngur landsins til að efla byggð og auka verðmæti,“ sagði Gylfi. Þá lagði Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, fram frumvarp á Alþingi í gær sem snýr að samgöngumálum. Gengur frum- varpið meðal annars út á að hækka gjald á bensín og olíu og nýta hækk- unina í að auka tekjur til vegamála. thorgnyr@frettabladid.is Frestun framkvæmda mótmælt í annað sinn Íbúar í Berufirði lokuðu þjóðvegi 1 í gær til að mótmæla frestun framkvæmda. Framkvæmdastjóri Jáverks segir þörf á aukinni fjárfestingu í vegakerfinu. Þing- maður Vinstri grænna vill hækka eldsneytisgjald til að fjármagna framkvæmdir. Fjöldi manns mætti til að mótmæla frestun framkvæmda við þjóðveg 1 í Berufirði. Mynd/ÓlaFur Björnsson Það var mikill samhugur og samstaða. Fólk var gallhart á sínum kröfum. Berglind Häsler, bóndi á Karls- stöðum 9% aukning var á umferð á Íslandi í fyrra. 1 0 . m a r S 2 0 1 7 F ö S T u D a g u r6 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a Ð i Ð 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 B -1 7 C 4 1 C 6 B -1 6 8 8 1 C 6 B -1 5 4 C 1 C 6 B -1 4 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.