Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 8
Tækni Fyrirtæki á borð við Apple, Google og Samsung munu fyrst allra fá að berja augum ný gögn er tengjast eftirliti leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) í gegnum snjalltæki. Frá þessu greindi Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, í gær. WikiLeaks lak í vikunni skjölum úr skjalasafni sínu er nefnist Vault 7 sem sýna fram á að CIA hafi nýtt sér veikleika í vörnum snjalltækja til að kveikja á myndavélum og hljóð- nemum án samþykkis eigenda við- komandi tækja. „Við vitum um alls kyns öryggis- galla sem við viljum að séu lagaðir áður en við birtum skjölin. Við ætlum að vinna með sumum þessara fram- leiðenda að því að laga gallana,“ sagði Assange. – þea Samfélag „Það er ekkert mál að matreiða skordýr og við vitum hvernig á að framleiða þau. Spurn- ingin er hvernig við getum fengið fólk til að borða skordýr og hafa áhuga á þeim sem vöruflokki. Það er erfitt þegar lög og reglur banna þá iðju,“ segir Búi Bjarmar Aðalsteins- son en hann tekur þátt í umræðum í Norræna húsinu í kvöld um vest- rænar hugmyndir um skordýraát. Kvikmyndin Bugs, eftir danska leikstjórann Andreas Johnsen, verður sýnd á undan umræðunum og munu þeir Búi ræða um mögu- leikana sem felast í skordýraræktun og -áti. „Undirliggjandi er að matarfram- leiðsla eins og hún er í dag gengur ekki alveg upp, ekki mikið lengur og það verður eitthvað að gerast. Í framtíðinni er matvælaframleiðsla úr skordýrum eitt af því sem vert er að skoða. Þetta verður á léttu nót- unum þó þetta séu grafalvarlegar spurningar,“ segir Búi. Að borða skordýr er ekkert nýtt en flestum í vesturheimi finnst það ógeðslegt og frekar ógeðfellt. „Fyrir mér lítur þetta þannig út, eftir því sem ég er búinn að skoða og rann- saka, að þetta snýst um matarmenn- ingu. Við erum þjóð sem borðar súrsaða hrútspunga og kindahöfuð sem sviðin eru með logsuðutæki, við borðum hákarl og ýsu. Bragðið er ekkert til að hrópa húrra fyrir en það er menning í kringum fæðuna og því tilheyrir þetta okkar matar- menningu. Hvers vegna er ekki hægt að gera það sama með skordýr? Búi segir að Ísland geti verið mjög framarlega í framleiðslu á matvæl- um úr skordýrum. Hér séu kjörað- stæður til þess. - bbh Stóra spurningin hvernig hægt er að fá fólk til að borða skordýr Fyrsti fundur nýstofnaðs peningaklúbbs Venstre, flokks Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra, verður haldinn í embættisbústað hans. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA DanmÖRk Nokkrir flokkar á danska þinginu hala inn fé í flokkssjóði sína í gegnum lokaða klúbba fyrir fólk í atvinnulífinu og hagsmunasam- tökum. Í umfjöllun Jótlandspóstsins um klúbbana, sem kallaðir eru pen- ingaklúbbar, segir að leynd hvíli yfir því hverjir séu klúbbfélagar og einn- ig yfir því hversu mikið fé streymi til flokkanna. Að minnsta kosti fjórir þing- flokkar nýta sér svokallaða peninga- klúbba, að því er Jótlandspósturinn greinir frá. Það eru Venstre, Íhalds- flokkurinn, Frjálslynda banda- lagið og Jafnaðarmannaflokkurinn. Klúbbfélagar greiða á hverju ári fé til að geta tekið þátt í lokuðum við- burðum og hitt framámenn í við- komandi stjórnmálaflokkum. Sú staðreynd að stjórnmálaflokk- arnir geti notað lokaða klúbba til að fela háar fjárhæðir frá einkaaðilum hefur sætt gagnrýni árum saman. Jafnframt hefur verið gagnrýnt að gefendur sleppi við nafnbirtingu í bókhaldi flokkanna þegar fjár- framlögin fara í gegnum peninga- klúbbana. Flokkssjóður Venstre, flokks Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra, hefur um árabil notið góðs af fjár- framlögum frá Frjálslynda atvinnu- lífsklúbbnum. Nú hefur flokkurinn stofnað nýjan peningaklúbb, Frjálsa atvinnulífsfélagið. Fyrsti fundurinn verður haldinn í embættisbústað forsætisráðherrans, Marienborg. D a n s k a ú t v a r p s s t ö ð i n Radio24syv kveðst hafa undir höndum bréf Venstre til útvalins hóps manna þar sem þeim er boðin aðild að nýja félaginu. Árgjaldið er 20.000 danskar krónur sem jafn- gildir um 310 þúsundum íslenskra króna. Útvarpsstöðin greinir frá því að í boðinu um aðild standi að hagnaðurinn renni til flokksins. Séu fjárframlög umfram 20 þúsund danskar krónur þurfa flokkarnir að birta nöfn gefenda. Gagnrýnendur benda á að Marienborg sé embættisbústaður forsætisráðherra. Fulltrúi Einingar- listans, Maria Gjerding, segir það óásættanlegt að þar séu haldnir fjár- öflunarviðburðir fyrir stjórnmála- flokk. Þetta sé til marks um að herða þurfi reglurnar. Í skriflegu svari til útvarps- stöðvarinnar segir ritari Venstre, Claus Richter, að tilgangurinn með stofnun Frjálslynda atvinnulífs- félagsins sé að efla samræðurnar milli danskra samtaka, félaga og Venstre. Það gagnist öllum. Enginn geti keypt sér áhrif hjá flokknum. Ritarinn nefnir ekkert um þá stað- reynd að halda eigi fyrsta fundinn í embættisbústað forsætisráðherrans. ibs@frettabladid.is Fela peninga í leyniklúbbum Danskir stjórnmála- flokkar bjóða fólki í atvinnulífinu aðild að lokuðum klúbbum sem kallaðir eru peninga- klúbbar. Klúbbarnir eru leið til að fela peninga- gjafir til flokkanna. Gómsætt súkkulaði með skordýrum. NoRdIcPhoTos/GETTy Mörg brot áttu sér stað frá miðnætti til klukkan 7. FRÉTTABLAÐIÐ/dANíEL Samfélag Árið 2016 var tilkynnt um 283 líkamsárásir í miðborg Reykja- víkur. Lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu hafa ekki borist jafn fáar tilkynningar á einu ári frá því árið 2011 þegar tilkynnt var um 261 brot. Flest þessara ofbeldisbrota koma upp í tengslum við skemmtanalífið í miðborginni um helgar. Um það bil tvö af hverjum þremur tilkynntum ofbeldisbrotum árið 2016 áttu sér stað frá miðnætti til klukkan 7 aðfaranótt laugardags og sunnu- dags og voru tæp 80 prósent þessara brota skráð inni á skemmtistöðum eða utandyra á þessu svæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir enn fremur að karlmenn séu um 90 prósent ger- enda í ofbeldismálum í miðborginni og um 80 prósent brotaþola. Tæp- lega helmingur grunaðra var á aldr- inum 21 til 30 ára og um helmingur brotaþola var á sama aldri. Ekki er algengt að sömu aðilar séu grunaðir í mörgum ofbeldismálum á sama árinu. Um níu prósent grunaðra báru ábyrgð á tveimur eða fleiri ofbeldis- brotum árið 2016 en tæplega þrjú prósent báru ábyrgð á þremur eða fjórum málum. Þegar á heildina er litið hefur ofbeldisbrotum á höfuðborgar- svæðinu öllu fjölgað frá árinu 2011. Það ár bárust lögreglunni 679 til- kynningar en í fyrra voru tilkynn- ingarnar 1.169. Þessi fjölgun skýrist af breyttu verklagi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í heimilis- ofbeldismálum sem tók gildi í janúar 2015. Unnið er að uppsetningu á um 30 nýjum eftirlitsmyndavélum í mið- borginni. Verður lögreglan með aukið eftirlit um helgar til að auka öryggi í borginni. – bb Ungir karlmenn ofbeldisfullir í miðbænum um helgar 80% brotaþola í borginni eru karlmenn Sú staðreynd að stjórn- málaflokkarnir geti notað lokaða klúbba til að fela háar fjárhæðir frá einkaað- ilum hefur sætt gagnrýni. heilbRigðiSmál Inflúensa hefur verið staðfest hjá 398 einstaklingum frá því í lok nóvember 2016. Dregið hefur umtalsvert úr fjölda þeirra sem greinst hafa með inflúensulík ein- kenni á heilsugæslustöðvum. Tíðni inflúensulíkra einkenna er svipuð í öllum aldurshópum en þó lægst í börnum undir eins árs og hæst í aldurshópnum 15 til 19 ára. Frá þessu segir á vef Embættis landlæknis. Frá því í byrjun september 2016 hafa alls 173 einstaklingar legið á Landspítala vegna inflúensu, þar af greindust nítján í síðustu viku sem er nokkur fækkun borið saman við vikuna á undan. Flestir eiga það sam- eiginlegt að vera 67 ára og eldri. – shá Talsvert dregið úr inflúensunni Julian Assange, stofnandi Wiki- leaks. Tæknirisar fá gögnin fyrst 173 hafa í vetur legið á Land- spítalanum með flensu 1 0 . m a R S 2 0 1 7 f Ö S T U D a g U R8 f R é T T i R ∙ f R é T T a b l a ð i ð 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 B -1 2 D 4 1 C 6 B -1 1 9 8 1 C 6 B -1 0 5 C 1 C 6 B -0 F 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.