Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.03.2017, Blaðsíða 4
10.-11. mars . 201 7 Borgarmál Heildarlaunakostnaður fyrir hvern stjórnmálaflokk á árinu 2015 vegna setu í borgarstjórn, fagráðum, hverfisráðum, bíla­ stæðanefnd og heilbrigðisnefnd var lagður fram á borgarráðsfundi í gær. Þar kom í ljós að launakostnaður og launatengd gjöld vegna fulltrúa Samfylkingarinnar námu um 88 milljónum króna. Sjálfstæðisflokk­ urinn var næstur með um 76 millj­ ónir, Björt framtíð var með um 53 milljónir, Framsókn og flug vallar­ vinir með um 47 milljónir, Vinstri græn um 38 milljónir og Píratar 33 milljónir. Laun Dags B. Eggertssonar borgar stjóra voru alls 21,1 milljón. Það var borgarráðsfulltrúi Fram­ sóknar og flugvallarvina sem lagði fyrirspurnina fram í borgarráði í september í fyrra. Hann spurði einnig um kostnað vegna utan­ landsferða. – bb Tæpar 360 milljónir í laun og tengd gjöld fyrir kjörna fulltrúa í borginni Dagur B. Eggertsson borgarstjóri þáði 17,5 milljónir í laun og voru greidd um 3,7 milljónir í launatengd gjöld vegna borgarstjóra. „Svona mikill hagvöxtur er langt yfir hagvaxtargetu þjóðarbúsins. Þetta leiðir augljóslega til þenslu. Við getum ekki viðhaldið svona hag­ vexti út í hið endalausa. Það er alveg gefið mál,“ segir Daníel Svavarsson, hagfræðingur hjá Hagfræðideild Landsbankans. Hagvöxtur á Íslandi mældist 7,2 prósent á síðasta ári sem er mesti hagvöxtur frá árinu 2007 þegar hann nam 9,3 prósentum. Þetta er töluvert meiri hagvöxtur en mælst hefur á síðustu árum. Hagfræðideild Landsbankans segir að hagvöxtur hafi verið mun meiri á Íslandi en í öðrum OECD­ ríkjum. Horft yfir heiminn í heild hafi hagvöxtur aðeins mælst meiri í einu ríki á síðasta ári, Indlandi. Þar er áætlað að hagvöxturinn hafi numið 7,5 prósentum. Allt útlit er fyrir að hagvöxtur verði einnig mikill í ár með sífelldri fjölgun ferðamanna og góðri loðnu­ vertíð. Daníel bendir á að einka­ neysla sé vaxandi og hafi ekki náð hámarki ennþá. „Þannig að það er alls ekki ólíklegt að hagvöxturinn í ár verði svipaður ef ekki meiri en í fyrra. En svo kemur að því að við getum ekki keyrt áfram á yfirgír og þá á sér stað einhver aðlögun. Og vonandi verður það niðurtröppun í hagvexti frekar en samdráttur,“ segir Daníel. Hann kveðst bjart­ sýnn á að það náist mjúk lending í þetta skipti. „Það er ekkert öruggt að þetta klikki hjá okkur núna. Vegna þess að þessi aukning í einkaneysl­ unni og fjárfestingu virðist enn sem komið er ekki tekin að láni. Einka­ Stjórnvöld auki ekki enn frekar á þensluna með ríkisútgjöldum Hagfræðingur segir hættu á þenslu við óbreyttar aðstæður í efnahagslífinu. Hagvöxtur var meiri á Íslandi en í nokkru öðru ríki innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Fyrrverandi aðalhagfræðingur Danske Bank segir að forsætis- og fjármálaráðherra þurfa að standa í lappirnar í ríkisfjármálum við þessar aðstæður. Forsætisráðherrann og fjármálaráð­ herrann verða að standa í lappirnar, Lars Christensen, fyrrverandi aðalhagfræðingur Danske Bank Þetta leiðir augljós­ lega til þenslu. Við getum ekki viðhaldið svona hagvexti út í hið endalausa. Daníel Svavarsson, hagfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti Besti vinnustaður í Bandaríkjunum, í áttunda skipti, er Google. Þetta kemur fram á nýjum lista sem Fortune tók saman yfir bestu vinnustaði Bandaríkjanna árið 2017. Hefur Google trónt á toppnum undanfarin sex ár. „75 milljarða dala tæknirisinn er frægur fyrir fríðindi á borð við ókeypis gæðamat, hársnyrtingu og þvott,“ segir í útskýringu Fortune á valinu. Þá er einnig fjallað um vinnu­ staðamenningu Google. Á vinnu­ staðnum sé unnið markvisst að því að þar ríki fordómaleysi, að leyfa röddum svartra starfsmanna að heyrast og vernda réttindi trans­ fólks. Í öðru sæti þetta árið er Wegmans Food Markets og Boston Consulting Group vermir þriðja sætið. – þea Enn best að vinna hjá Google Dómsmál Börkur Birgisson og Ann­ þór Kristján Karlsson voru sýknaðir í Hæstarétti í gær af ákæru um að hafa veitt fanganum Sigurði Hólm Sigurðssyni áverka í fangaklefa hans á Litla­Hrauni sem drógu hann til dauða í maí árið 2012. Með því stað­ festi rétturinn dóm Héraðsdóms Suðurlands frá því á síðasta ári. „Þetta er búið að vera löng þrauta­ ganga, fimm ár. Þetta er að mínu viti bara réttlát niðurstaða eins og málið allt liggur,“ segir Sveinn Guðmunds­ son, verjandi Barkar Birgissonar, en viðamikil rannsókn lögreglu á því hvað leiddi til dauða Sigurðar tók um eitt ár. Lögregla gerði meðal annars nákvæma eftirmynd af klefa Sigurð­ ar á Litla­Hrauni og framkvæmdi til­ raunir til að komast að niðurstöðu um hvort hann hefði getað dottið á eitthvað inni í fangaklefa sínum. Sveinn segir að niðurstaða Hæsta­ réttar sé eðlileg, mikill vafi hafi leikið á því hver hefði verið hvar og hvenær þennan örlagaríka dag, 17. maí 2012. „Þetta er niðurstaðan og hún er fengin eftir vandaða meðferð fyrir dómi og það er kannski ekkert meira um það að segja,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissak­ sóknari. Tveir dómarar skiluðu séráliti. Helgi segir að sérálit þeirra falli betur að ályktunum ákæruvaldsins í málinu.   – jhh Fimm ára þrautagöngu sakborninga í manndrápsmáli lokið Annar sakborninga var dreginn inn í dóm við þingfestingu. FréttABlAðið/Anton Dómsmál Héraðsdómur Reykja­ víkur sýknaði í gær Björn Steinbekk í miðasölumálinu svokallaða. Gísli Hauksson, fyrrverandi for­ stjóri GAMMA, keypti tíu miða af Birni á leik Íslands og Frakklands á Evrópumótinu í knattspyrnu síð­ asta sumar. Alls kostuðu miðarnir 686 þúsund krónur, en Gísli var á meðal þeirra sem aldrei fengu mið­ ana í hendur og krafðist því endur­ greiðslu. Héraðsdómur féllst á þau rök að Sónar Reykjavík en ekki Björn. Því bæri að sýkna hann. – hh Björn Steinbekk sýknaður Björn Steinbekk tónleikahaldari neyslan er til dæmis ekki að aukast meira en kaupmáttur launa. Það er ein vísbendingin. Og svo erum við ekki að sjá mikla útlánaaukningu í bankakerfinu. Fyrirtæki og heimili virðast því vera mikið að nota eigin fé til þess að fjárfesta,“ segir Daníel. Lars Christensen, fyrrverandi aðalhagfræðingur Danske Bank, segir nýjustu hagvaxtartölur ekki gefa tilefni til að grípa til einhverra viðbragða í óðagoti. Hann tekur undir með Daníel, að staðan sé frá­ brugðin því sem var árið 2007­2008 þegar mikið lánsfé hafði streymt inn í hagkerfið. Hins vegar hafi Íslendingar núna gott færi á að hefja undirbúning að kerfisbreytingum í efnahagslífinu til að draga úr bólu­ myndun í hagkerfinu. Lars Christensen segir tekjur ríkisins aukast í þessu árferði. Ríkisstjórnin megi hins vegar ekki auka á þenslu með auknum ríkisút­ gjöldum. „Forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann verða að standa í lappirnar,“ segir Lars og fagnar hugmyndum um auðlindasjóð þar sem hægt er að leggja fyrir tekjur. jonhakon@frettabladid.is 8 7 6 5 4 3 2 1 0 -1 -2 -3 -4 ✿ Hagvöxtur árið 2016 í helstu ríkjum heims* 7,5 7,2 6,7 5,0 3,7 3,3 3,33,2 2,72,52,4 2,42,3 2,32,12,0 2,01,9 1,91,81,7 1,71,6 1,6 1,61,51,4 1,41,31,2 1,21,11,0 1,00,9 0,0 -3,6 Br as ilí a Gr ik kl an d Íta lía Ja pa n N or eg ur Da nm ör k Fr ak kl an d Be lg ía Sv iss Po rt úg al Ka na da Au st ur rík i Ei st la nd Fi nn la nd Ba nd ar ík in O EC D Ev ru sv æ ði ð Br et la nd Þý sk al an d Ev ró pu sa m ba nd ið Le tt la nd Kó lu m bí a Ho lla nd Li th áe n M ex íkó Té kk la nd Ás tr al ía Sl óv en ía Kó re a Sp án n Sl óv ak ía Sv íþ jó ð Ísr ae l In dó ne sía Kí na Ís la nd In dl an d *Samkvæmt tölum OECD 7633 milljónir voru greiddar vegna Sjálfstæðismannamilljónir króna voru greiddar vegna Pírata 1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s t U D a g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 0 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 B -0 4 0 4 1 C 6 B -0 2 C 8 1 C 6 B -0 1 8 C 1 C 6 B -0 0 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.