Fréttablaðið - 10.03.2017, Side 18
mma Sunna Rannveig Davíðsdóttir,
sem kallar sig Sunnu „Tsunami“, æfir
af krafti þessa dagana fyrir annan
atvinnumannsbardaga sinn sem fer
fram þann 25. mars næstkomandi.
Hún hefur fengið góða aðstoð við
æfingarnar þar sem hin skoska Joanne
„JoJo“ Calderwood hefur æft með
henni síðustu daga.
JoJo barðist hjá Invicta-bardaga-
sambandinu á sínum tíma en er nú
komin í UFC þar sem hún er í sjöunda
sæti í strávigt kvenna. Sunna kepp-
ir í Invicta og stefnir sömu leið og
Calderwood. Því er ekki ónýtt að fá
aðstoð og leiðsögn frá þeirri skosku.
Ég settist niður með þeim báðum
í glæsilegum húsakynnum Mjölnis í
Öskjuhlíðinni og ræddi við þær um
lífið í bardagaheiminum.
Eru svipaðar týpur
„Ég var að vonast til að keppa á sama
bardagakvöldi og Gunnar Nelson í
London en það gekk því miður ekki
upp. Ég var mjög vonsvikin yfir að
komast ekki inn þar og það sem er
erfitt í þessum bransa er að vita ekki
hvenær maður berst næst. Þetta er
atvinnan manns sem maður treystir
á,“ segir Calderwood sem var þó hæst-
ánægð með að koma til Íslands og hún
átti ekki til orð til að lýsa því hversu
hrifin hún væri af æfingaaðstöðunni
í Öskjuhlíðinni.
Sunna og Calderwood virðast ná
mjög vel saman, þær voru ekkert
ragar við að tala fallega hvor um aðra
og skiptust á að roðna við hrósið.
„Við erum svipaðar týpur. Rólegar
og glaðar stelpur. Við náðum strax vel
saman,“ segir JoJo og brosir en þær
eiga það sameiginlegt að vera báðar
ákaflega viðkunnanlegar.
„JoJo hjálpaði mér þegar ég barðist á
sínum tíma í Skotlandi. Var í horninu
hjá mér og mamma hennar kom sér-
staklega til þess að greiða á mér hárið
fyrir bardagann,“ segir Sunna og báðar
hlæja dátt er þær rifja þessa skemmti-
legu stund upp.
Sunna er til fyrirmyndar
Þær stöllur eiga ýmislegt sameigin-
legt. Til að mynda er Calderwood
fyrsta skoska atvinnukonan í MMA
og Sunna sú fyrsta íslenska. Eins og
áður segir er Calderwood búin að feta
þá slóð sem Sunna er nú á. Hefur hún
einhver góð ráð fyrir okkar konu?
„Ég var mjög glöð þegar ég heyrði
að Sunna væri komin í Invicta. Það er
frábært bardagasamband sem kemur
mjög vel fram við fólkið sitt. Það kom
mér ekkert á óvart að Sunna færi þar
inn enda mjög góð bardagakona. Hún
er sjálfri sér til sóma og er góður full-
trúi Íslands. Ef ég ætti að gefa henni
góð ráð þá væri það að halda áfram
að vera hún sjálf og æfa áfram af krafti
eins og hún hefur alltaf gert. Mikil-
vægast af öllu er að vera glöð og njóta
vegferðarinnar,“ segir Calderwood og
þær hlæja svo í kór. Sunna segist hafa
lært mikið af hinni skosku stöllu sinni.
„Hún er frábær fyrirmynd,“ segir
Sunna og JoJo skýtur því inn að nú
megi Sunna tala íslensku svo hún verði
ekki of vandræðaleg. Sunna er fljót að
hafna því.
Glaður bardagamaður er hættu-
legur bardagamaður
„Hún hefur kennt mér að vera alltaf
jákvæð og njóta. Njóta hverrar stund-
ar. Glaður bardagamaður er hættuleg-
ur bardagamaður. JoJo er frábær bar-
dagakona og ég var löngu byrjuð að
fylgjast með henni áður en hún kom
til Íslands og við kynntumst. Höggin
hennar eru svo mögnuð og hún er með
allt vopnabúrið. Hún átti flottan Muay
Thai-feril áður en hún fór í MMA og er
ansi mögnuð.“
Þær eru frumherjar í sínum löndum
en hvað er það við blandaðar bardaga-
listir, eða MMA, sem þeim finnst vera
svona heillandi? Af hverju berjast þær?
Þakklát fyrir tækifærin
„Við elskum að berjast,“ segir Sunna
ákveðin og JoJo tekur svo við. „Heim-
urinn getur verið erfiður staður af
mörgum ástæðum. Það eru tilfinn-
ingar, fólk er úttaugað af ýmsum
ástæðum og annað. Bróðir minn
dró mig með í þetta og ég fékk fljót-
lega bakteríuna. Ég get slökkt á mér
og slakað á þegar ég æfi. Ég er mjög
þakklát fyrir þau tækifæri sem ég hef
fengið. Ég sá þetta ekki fyrir,“ segir
Calderwood. Sunna kinkar kolli áður
en hún tekur við keflinu á ný.
„Maður byrjar á því að kýla púð-
ana og svo tengist maður fólki. Þá fer
maður að glíma við fólk sem maður
er búinn að kynnast. Maður kynnist
miklu af góðu fólki í þessum heimi.
Þetta verður svo að lífsstíl. Við elsk-
um hann báðar. Maður fær að æfa
um allan heim og kynnast mörgu
fólki. Það skiptir ekki máli hvað er að
gerast í lífinu. Maður skilur allt eftir
í dyragættinni þegar maður gengur
inn í æfingasalinn og það er góð til-
finning. Það eru allir jafnir í æfinga-
salnum.“
Gæti komist fljótt í UFC
Calderwood líst vel á standið á Sunnu
og efast ekki um að hún eigi eftir kom-
ast eins langt og hún vill. Sunna hefur
ekki farið leynt með að hún stefnir á
að keppa fyrir UFC.
„Tækifærið gæti komið hvenær sem
er. Það myndi henta henni vel að vera
í UFC því hún er alltaf tilbúin og alltaf
í æfingu. Í UFC vantar oft andstæðing
með skömmum fyrirvara. Sunna gæti
alltaf stokkið inn og ég veit að hún yrði
tilbúin. Hún gæti þess vegna dottið
inn í UFC eftir næsta bardaga sinn hjá
Invicta,“ segir Calderwood en gætu
þær hugsað sér að mæta hvor annarri
í búrinu?
„Ég myndi alls ekki vilja mæta
henni,“ segir Sunna en spurningin
virtist koma flatt upp á þær og greini-
lega er takmarkaður áhugi hjá þeim
vinkonunum að mætast.
„Ég hef verið aðdáandi þinn lengi
og elska hvernig þú berst. Ég hafði
lesið um þig og horft á þig löngu áður
en við hittumst. Það var því mikill
heiður að hitta þig loksins og ég er svo
ánægð með að við séum góðir vinir.
Alltaf þegar við hittumst er eins og við
höfum síðast sést í gær,“ segir Sunna og
JoJo kinkar kolli vinalega.
Prófa allt einu sinni
Það eiga klárlega fleiri stelpur eftir að
feta í fótspor þeirra í framtíðinni en
hvaða ráð gefa þær þeim stelpum sem
eru að spá í að fara í MMA?
„Bara drífa sig í æfingasalinn og
byrja að æfa. Ég þekkti engan þegar
ég byrjaði. Maður á að gera það sem
maður vill gera í lífinu,“ segir Sunna og
Calderwood segir mikilvægt að prófa
allt einu sinni.
„Ekki vera hrædd við að prófa nýja
hluti. Þú veist aldrei hvernig það gæti
endað.“ henry@frettabladid.is
Vinkonurnar elska að berjast
Sunna Rannveig Davíðsdóttir og Joanne Calderwood eru fyrstu atvinnubardagakonurnar í sínum heima-
löndum. Þær tala vel hvor um aðra og Calderwood telur að Sunna geti barist hjá UFC-bardagasambandinu.
Vinkonur. JoJo og Sunna æfa saman í tíu daga í æfingahúsnæði Mjölnis.
Sunna verður tilbúin fyrir næsta bardaga. Fréttablaðið/StEFán
Ekkert gefið eftir. Sunna og Calderwood taka hraustlega á því. Þær hafa verið að æfa tvisvar á dag síðustu daga og þeim finnst fátt skemmtilegra en að æfa. Fréttablaðið/StEFán
Það myndi henta
Sunnu vel að vera í
UFC því hún er alltaf tilbúin
og alltaf í æfingu. Ég veit að
hún yrði klár fyrir UFC.
Joanna Calderwood
1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r18 s p o r T ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
B
-2
1
A
4
1
C
6
B
-2
0
6
8
1
C
6
B
-1
F
2
C
1
C
6
B
-1
D
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K