Fréttablaðið - 10.03.2017, Síða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Undarleg þessi læti vegna nýja áfengisfrum-varpsins. Í takt við kröfur neytenda hefur ÁTVR bætt þjónustu vínbúða sinna og aðgengi svo
um munar á undanförnum árum en svo þegar taka á
næsta skref í þeirri þróun þá er lýðheilsa þjóðarinnar
skyndilega í húfi og harmþrungnar ræður haldnar um
brotnar fjölskyldur og skelfilegar afleiðingar áfengis-
drykkju. Engu líkara er en að einmitt nú sé komið að
þolmörkum: verði vínið selt inni í matvörubúðum frekar
en í sérstökum verslunum steinsnar frá, oft undir sama
þaki með og einu skilrúmi á milli, þá muni áfengis-
drykkja landsmanna fara úr böndunum með tilheyrandi
kostnaði fyrir heilbrigðiskerfið.
Er nema von að menn spyrji: Af hverju hafa þeir, sem
nú hafa sig mest í frammi gegn áfengisfrumvarpinu, ekki
barist gegn stöðugt aukinni þjónustu ÁTVR og bættu
aðgengi vínbúðanna undanfarin ár? Hvers vegna hefur
fólk ekki stigið fram og krafist þess að dregið yrði ræki-
lega úr þjónustunni, verð hækkað verulega, vöruúrval
minnkað stórlega og útibúum fækkað svo um munaði?
Ótti við frelsi og einkaframtak?
Andstæðingar áfengisfrumvarpsins hljóta að gera sér
grein fyrir að engu breytir í heildarmyndinni hvort vín sé
selt inni í kjörbúðinni eða hinum megin við vegginn. Það
sem raunverulega býr að baki neikvæðni þeirra hlýtur því
að vera annars eðlis, t.d. rótgróin íhaldssemi, óþol gagn-
vart frelsisþenkjandi fólki eða dálæti á miðstýringu og
ríkisrekstri. Því virðist sem gagnrýnendur frumvarpsins
hafi í raun ekki tiltakanlegar áhyggjur af mögulegri fjölgun
áfengissjúklinga heldur að einkavæðing áfengisverslunar-
innar muni falla fólki jafn vel í geð og afnám bjórbannsins
fræga sem bætti vínmenningu landsmanna svo um
munaði þvert á allt svartagallsrausið. Fáum hefur dottið
í hug að koma bjórbanninu á aftur. Enn færri hefur hug-
kvæmst að færa þjónustustig ÁTVR eða vöruúrval áratugi
aftur í tímann. Þegar upp er staðið kann fólk nefnilega að
meta frelsið. Kannski þar liggi hundurinn grafinn.
Áfengisfrumvarpið
enn og aftur
Andstæð-
ingar áfengis-
frumvarpsins
hljóta að gera
sér grein fyrir
að engu
breytir í
heildar-
myndinni
hvort vín sé
selt inni í
kjörbúðinni
eða hinum
megin við
vegginn.
Guðmundur
Edgarsson
kennari og
málmennta-
fræðingur
Gríptu lyfin á leiðinni heim
Apótek Garðarbæjar í alfaraleið
Litlatún 3, Garðarbæ | Sími 577 5010
Landsframleiðsla jókst um 7,2 prósent 2016. Nei, þetta eru ekki hagvaxtartölur fyrir Kína. Nýjar tölur sem Hagstofan birti í gær, sem sýna að hagvöxtur á Íslandi hefur ekki aukist meira á einu ári frá því 2007, eru einstakar í vestrænum samanburði. Alþjóðabankinn
áætlar þannig að hagvöxtur í þróaðri ríkjum hafi verið
um 1,6 prósent að meðtali í fyrra – og útlit er fyrir að
Indland verði eina ríkið í heiminum með meiri hagvöxt
en Ísland.
Vöxturinn hérlendis reyndist umfram væntingar sem
skýrist af meiri íbúðafjárfestingu og auknum útflutn-
ingi. Þetta er góðs viti og til marks um að hagvöxturinn
er – enn sem komið er – sjálfbær. Þótt einkaneysla
hafi aukist um tæplega sjö prósent, sem er mesti árlegi
vöxtur frá 2005, þá minnkaði hún sem hlutfall af lands-
framleiðslu og hefur sjaldan verið minni. Með öðrum
orðum sjást þess engin merki að heimili séu að skuld-
setja sig til að standa undir aukinni einkaneyslu. Þvert á
móti heldur þjóðhagslegur sparnaður áfram að aukast.
Staðan er því á flesta mælikvarða með eindæmum
góð. Ólíkt árunum í aðdraganda fjármálahrunsins 2008,
þar sem vöxturinn í efnahagslífinu var drifinn áfram af
erlendri skuldsetningu sem engin innistæða var fyrir,
þá stafar hagvöxturinn í þetta sinn einkum af stöðugum
vexti í útflutningstekjum og stórbættri skuldastöðu
heimila og fyrirtækja. Útlit er fyrir áframhaldandi
mikinn viðskiptaafgang og erlend staða þjóðarbúsins
hefur ekki verið betri í lýðveldissögunni.
Hættumerkin eru hins vegar, eins og ávallt, vitaskuld
einnig fyrir hendi. Hin hliðin á þessum öra vexti, sem er
síður æskileg til lengri tíma litið, er hin mikla og hraða
gengishækkun krónunnar. Hún styrktist um liðlega tíu
prósent gagnvart evru í febrúar þrátt fyrir að Seðla-
bankinn hafi keypt gjaldeyri á sama tíma fyrir um 35
milljarða. Slík gengisstyrking – á aðeins fjórum vikum
– er nánast fordæmalaus. Óþarfi er að fjölyrða um þau
neikvæðu áhrif sem þessi þróun hefur fyrir rekstrarskil-
yrði útflutningsgreina landsins. Með sama framhaldi
munum við enda með þessar atvinnugreinar laskaðar
og harkaleg gengisleiðrétting verður óumflýjanleg.
Hvað er til ráða? Augljósasta skrefið er að afnema
alfarið höft á heimili, fyrirtæki og lífeyrissjóði. Fram
kom í máli fjármálaráðherra í gær að slíkra aðgerða
væri að vænta, hugsanlega á næstu vikum. Það eru góð
tíðindi. Meira þarf samt að koma til. Seðlabankinn ætti
að lækka vexti og draga þannig úr miklum vaxtamun
Íslands við útlönd. Það yrði til þess fallið að ýta undir
erlenda fjárfestingu innlendra aðila og þannig vinna
gegn styrkingu krónunnar. Þá þarf að nýta sterka
gjaldeyrisstöðu þjóðarbúsins til að stofna sem fyrst
stöðugleikasjóð, sambærilegan norska olíusjóðnum,
sem myndi fjárfesta í erlendum eignum sem gæfu betri
ávöxtun til lengri tíma. Með því að koma slíkum sjóði
á fót væri hægt að draga úr miklum kostnaði Seðla-
bankans við að halda úti stórum gjaldeyrisforða og
jafna sveiflur í gengi krónunnar. Fyrsta skrefið er hins
vegar vaxtalækkun, að minnsta kosti um hálft pró-
sentustig, sem Seðlabankinn hlýtur að tilkynna um á
vaxtaákvörðunarfundi sínum í næstu viku.
Brothætt staða
Fyrsta skrefið
er hins vegar
vaxtalækkun,
að minnsta
kosti um hálft
prósentustig,
sem Seðla-
bankinn
hlýtur að
tilkynna um á
vaxtaákvörð-
unarfundi
sínum í næstu
viku.
Ódýr auglýsing
Eftir viðtal Sindra Sindrasonar
við Töru Margréti Vilhjálms-
dóttur, formann samtaka um
líkamsvirðingu, á mánudag, kall-
aði Hildur Lilliendahl, femínisti
og verkefnisstjóri hjá borginni,
Sindra Epalhomma. Sindri tók
uppátækið ekki inn á sig sam-
kvæmt dv.is, en margir aðrir tóku
að sér að móðgast fyrir hans hönd
eins og svo oft vill verða. En einn
er sá sem var hæstánægður með
uppnefnið úr smiðju Hildar, en
það er Eyjólfur Pálsson, eigandi
Epal. Ódýr auglýsing fyrir Eyjólf.
Epalkomminn
Annað orð hafði áður rutt sér
til rúms og hafði tengingu við
húsgagnaverslunina ágætu. Það
var orðið Epalkommi, sem hefur
kannski líka skotið upp í kollinn
á einhverjum undanfarna daga.
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðla-
maður hefur nefnilega lýst því yfir
opinberlega að hann sé sósíalisti.
Hann heldur stofnfund nýs félags,
Frjálsrar fjölmiðlunar, nú um
helgina. Þar er almenningi boðið
að gefa pening til stuðnings fjöl-
miðlafyrirtæki Gunnars Smára,
sem er raunar að stórum hluta í
eigu eins ríkasta manns á Íslandi,
Sigurðar Gísla Pálmasonar. Ef vel
gengur með söfnunina og nægjan-
legt fé safnast til að greiða laun
starfsmanna fyrirtækisins geta
þeir Sigurður Gísli og Gunnar
Smári kannski skroppið í Epal
fyrir aurinn sinn.
jonhakon@frettabladid.is
1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r12 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
1
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
A
-E
B
5
4
1
C
6
A
-E
A
1
8
1
C
6
A
-E
8
D
C
1
C
6
A
-E
7
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K