Fréttablaðið - 10.03.2017, Page 16
Körfubolti Njarðvík verður ekki
með í úrslitakeppni efstu deildar
karla í fyrsta sinn síðan 1993 en það
varð ljóst eftir tap liðsins í Þorláks-
höfn í gær, 83-70. Logi Gunnarsson
skoraði 27 stig fyrir gestina og var
langbesti maður liðsins en fékk
ekki það framlag sem þurfti frá liðs-
félögum sínum í leiknum.
„Ég spilaði mitt fyrsta tíma-
bil fyrir Njarðvík árið 1997 og
hef alltaf verið að minnsta kosti
í undan úrslitum. Maður hefur
unnið marga titla og það er erfitt að
kyngja þessu,“ sagði Logi í samtali
við Fréttablaðið eftir leik.
Hann sagði að það hefði verið
liðinu dýrkeypt að byrja tímabilið
illa, eins og Njarðvíkingar gerðu.
Daníel Guðni Guðmundsson, þjálf-
ari liðsins, tók undir það.
„Það hefði verið allt annað að
vera með þetta lið sem spilaði í
kvöld frá upphafi tímabils. Það
voru hrókeringar í haust sem voru
erfiðar,“ sagði Daníel.
Maciej Baginski og Ólafur Helgi
Jónsson, báðir uppaldir Njarðvík-
ingar, áttu góðan leik fyrir Þór Þor-
lákshöfn í gær og voru sínu gamla
liði erfiðir. Einar Árni Jóhannsson,
þjálfari Þórs, er sömuleiðis Njarð-
víkingur og fannst súrt fyrir hönd
gömlu félaganna að þeir væru nú
úr leik.
„Þó svo að Logi [Gunnarsson]
verðskuldi gott frí fyrir allan sinn
dugnað þá á hann ekki skilið að fara
í sumarfrí svona snemma. En ég er
auðvitað stoltur og glaður með mitt
lið. Okkur tókst í síðustu tveimur
umferðunum að vinna lið sem voru
að berjast fyrir lífi sínu og það er
gott veganesti í úrslitakeppnina,“
sagði Einar Árni.
Það var gríðarleg stemning í Selja-
skóla þar sem ÍR tók á móti Keflavík.
Leikurinn var frábær skemmtun og
stemningin í húsinu rafmögnuð.
Amin Stevens tryggði Keflavík
framlengingu þegar hann setti niður
tvö vítaskot eftir að leiktíminn rann
út.
Í framlengingunni reyndust ÍR-
ingar sterkari og lönduðu eins stigs
sigri, 88-87. Þetta er í fyrsta sinn
síðan 2011 sem ÍR kemst í úrslita-
keppnina og fögnuðurinn var mikill
í leikslok.
„Ef við ætlum að fara alla leið,
verðum við að sigra bestu liðin. Við
getum alveg eins gert það í átta liða
úrslitum, undanúrslitum eða úr-
slitum. En það er einn leikur og ein
umferð í einu,“ sagði Sveinbjörn
Claessen, fyrirliði ÍR, eftir leik.
Í 8-liða úrslitunum mæta ÍR-
ingar Stjörnumönnum sem stálu
2. sætinu af Tindastóli sem tapaði
fyrir Haukum. Stólarnir mæta
Keflvíkingum í 8-liða úrslitunum.
Deildarmeistarar KR mæta Þór Ak.
og Grindavík og Þór Þ. eigast við í
hörkurimmu. – esá
Vonbrigði hjá Njarðvíkingum
Lokaumferð Domino’s-deildar karla í körfubolta fór fram í gær. ÍR og Þór Ak. tryggðu sér sæti í úrslitakeppn-
inni en Njarðvíkingar sátu eftir með sárt ennið eftir tap í Þorlákshöfn. Stjarnan tók 2. sætið af Tindastóli.
Mikill fögnuður braust út í Seljaskóla eftir að leik ÍR og Keflavíkur lauk. Breiðhyltingar verða með í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í sex ár. FRéttaBlaðið/SteFán
Þessi lið mætast í úrslitakeppninni í ár
Úrslitakeppni Domino’s-deildar karla í körfubolta hefst þann 15. mars
og munu eftirtalin lið eigast við í 8 liða úrslitunum. Þrjá sigra þarf í
rimmunni til að komast áfram í undanúrslitin.
ÍR - Keflavík 88-87
Stigahæstir: Matthías Orri Sigurðarson 30/7
fráköst/6 stoðsendingar, Quincy Hankins-
Cole 21/12 fráköst - Amin Khalil Stevens
29/19 fráköst, Guðmundur Jónsson 13.
Þór ak. - Snæfell 89-62
Stigahæstir: George Beamon 30/8 fráköst,
Sindri Davíðsson 13, Tryggvi Snær Hlinason
11/13 fráköst - Árni Elmar Hrafnsson 15,
Christian David Covile 14/6 fráköst.
KR - Stjarnan 73-78
Stigahæstir: Brynjar Þór Björnsson 15, Pavel
Ermolinskij 14/11 fráköst - Anthony Odunsi
19/8 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 13,
Eysteinn Bjarni Ævarsson 13/8 fráköst.
Haukar - tindastóll 77-74
Stigahæstir: Cedrick Taylor Bowen 19/8
fráköst, Emil Barja 10 - Antonio Hester 19/7
fráköst/6 stoðsendingar/6 stolnir, Pétur
Rúnar Birgisson 17/7 stoðsendingar.
Grindavík - Skallagr. 101-89
Stigahæstir: Lewis Clinch Jr. 25/10 fráköst/8
stoðsendingar, Ingvi Þór Guðmundsson
18 - Flenard Whitfield 50/12 fráköst, Sig-
tryggur Arnar Björnsson 16/10 fráköst.
Þór Þ. - njarðvík 83-70
Stigahæstir: Tobin Carberry 22/10 fráköst,
Maciej Stanislav Baginski 16/8 fráköst,
Ólafur Helgi Jónsson 16 - . Logi Gunnarsson
27, Myron Dempsey 18/8 fráköst.
efri
KR 34
Stjarnan 32
Tindastóll 30
Grindavík 26
Þór Þ. 24
Keflavík 22
neðri
ÍR 22
Þór Ak. 22
Njarðvík 20
Haukar 18
Skallagrím. 14
Snæfell 0
Nýjast
Dominos-deild karla
ÍBV - FH 30-21
Markahæstir: Theodór Sigurbjörnsson 8/1,
Agnar Smári Jónsson 6, Kári Kristjánsson 4,
Sigurbergur Sveinsson 4 - Þorgeir Björnsson
5, Óðinn Þór Ríkharðsson 5.
Stjarnan - Fram 28-27
Markahæstir: Ólafur Gústafsson 6, Ari
Magnús Þorgeirsson 5, Garðar B. Sigur-
jónsson 4/3 - Arnar Birkir Hálfdánsson 6,
Sigurður Örn Þorsteinsson 6.
Selfoss - afturelding 25-26
Markahæstir: Elvar Örn Jónsson 10, Teitur
Örn Einarsson 6 - Elvar Ásgeirsson 6, Árni
Bragi Eyjólfsson 4/3, Guðni Már Kristinsson
4, Ernir Hrafn Arnarson 4.
efri
Haukar 30
FH 28
ÍBV 27
Afturelding 27
Valur 21
neðri
Stjarnan 19
Selfoss 18
Grótta 16
Fram 15
Akureyri 15
Olís-deild karla
evrópudeild UeFa, 16-liða úrslit
APOEL 0 – 1 Anderlecht
FCK 2 – 1 Ajax
Rostov 1 – 1 Man Utd
Celta Vigo 2 – 1 Krasnodar
Gent 2 – 5 Genk
Lyon 4 – 2 Roma
Olympiacos 1 – 1 Besiktas
Schalke 1 – 1 Gladbach
18.50 Víkingur R. - Keflavík Sport
19.00 Valspar Ch. Golfstöðin
19.40 Brighton - Derby Sport 2
01.00 timberw. - Warriors Sport
Í dag
JAFNT Í RúSSLANDi
Manchester United gerði 1-1
jafntefli við Rostov á útivelli í fyrri
leik liðanna í 16-liða úrslitum
Evrópudeildarinnar í gær. Hen-
rikh Mkhitaryan kom United yfir
á 35. mínútu eftir sendingu frá
Zlatan ibrahimovic en Aleksandr
Bukharov jafnaði metin eftir sjö
mínútna leik í seinni hálfleik.
KR deildarmeistari fjórða árið í röð
Brynjar Þór Björnsson tók við við deildarmeistarabikarnum í gær.
KR – Þór Ak.
Stjarnan – ÍR
Tindastóll
– Keflavík
Grindavík –
Þór Þ.
1 0 . m a r s 2 0 1 7 f ö s t u D a G u r16 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
1
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
B
-0
D
E
4
1
C
6
B
-0
C
A
8
1
C
6
B
-0
B
6
C
1
C
6
B
-0
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K