Fréttablaðið - 10.03.2017, Qupperneq 22
Þegar sá dagur
rennur upp að ég
vakna og fer í það sem er
næst mér í skápnum, þá
hlýt ég að vera lasin.
Þegar ég kaupi mér föt
reyni ég að kaupa það
sem enginn annar á.
Hlébarðamynst-
ur er í uppáhaldi
hjá Hörpu, eins
og sést, enda
gerir það ótrú-
lega mikið fyrir
heildina.
Loðvesti úr
Gyllta kettinum
er nauðsynleg
eign. Líka
hægt að nota á
sumrin við galla-
buxur, hlýrabol
og sparihælaskó.
„Mér finnst
skrítið þegar
dömurnar í
heilu sauma-
klúbbunum eru
allar í eins flík.“
MYND/STEFÁN
Harpa stofnaði og rekur Hárakademíuna, sem er einkarekinn hársnyrtiskóli,
auk þess að reka Blondie hár-
snyrtistofu í Mörkinni 1. Hún er
líka ambassador label.m á Íslandi
í samstarfi við B-pro og Toni&Guy
London. Í mars er full dagskrá hjá
henni, svo sem label.m-námskeið
og sýning sem haldin verður á
Hard Rock Café nú um helgina. Um
miðjan mars verður Íslandsmót
iðngreina 2017 og RFF (Reykjavík
fashion festival), verkefni í London
og svo fær hún vonandi páskafrí.
Spáir þú mikið í tísku? „Já,
alla daga, allan daginn. Tíska er
stórt áhugamál hjá mér og ég elska
Pinterest. Ég á það til að reyna að
finna út hvað kemur í tísku langt
fram í tímann. Sumarið verður allt í
bleiku og einnig „print“ í fatnaði.“
Hvernig myndir þú lýsa þínum
stíl? „Stíllinn minn er alls konar.
Ég fer í allt og mér finnst gaman
að fara í eitthvað sem vinnur með
mér. Þegar sá dagur rennur upp að
ég vakna og fer í það sem er næst
mér í skápnum, þá hlýt ég að vera
lasin. Þegar ég kaupi mér föt reyni
ég að kaupa það sem enginn annar
á eða allavega sem fæstir. Mér finnst
skrítið þegar dömurnar í heilu
saumaklúbbunum eru allar í eins
flík. Ég hef gaman af því að setja
saman mismunandi liti, efni, mynst-
ur og geng helst aldrei í svörtu. Það
bara gerir ekkert fyrir mig.“
Hvar kaupir þú þér föt? „London
er mitt annað heimili og ég kaupi
mest þar, en er alveg dugleg að
skoða hvað er til hérna heima. Ég
hef ekki gefið mér tíma til að læra
á þetta allt sem hægt er að gera á
netinu.“
Spáir í tísku allan daginn
Harpa Ómarsdóttir hefur mikinn áhuga á tísku og finnst gaman að spá í hvaða tískustraumar eru
fram undan. Hún klæðist helst ekki svörtum fötum og kaupir ekki föt eins og allir eiga.
Eyðir þú miklu í föt? „Það er voða
misjafnt og hefur minnkað mikið.
Það fer eftir því hversu ört ég fer
til útlanda, oft fer ég einu sinni til
tvisvar í mánuði vegna vinnunnar.
Stundum segi ég að það sé eins gott
að ég hafi ekki kynnt mér þennan
hluta á internetinu. Ég get enda-
laust fallið fyrir skóm, utanyfir-
flíkum og hálsskarti.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
„Ekta loðvestið mitt úr Gyllta
kettinum. Það er algjörlega sjúkt og
gaman að klæða sig í kringum það.“
Uppáhaldshönnuður? „Stikkfrí
þar. Enginn sérstakur, en Gucci
setur saman fallega liti og notar
mikið slaufur og blóm. 2015-2016
línan var æðisleg.“
Hver er helsti veikleiki þinn
þegar kemur að tísku og útliti?
„Ég verð leið á fötunum allt of
fljótt og fer ekki í sama lúkkið tvo
daga í röð. Er heppin að eiga
fullt af systrum sem fá að
njóta flíkanna en það
er smá vesen með
skó þar sem ég nota
stærð 36 en ekki
þær.“
Notar þú fylgi-
hluti? „Já,
hálsmen/skraut
alla daga og varalit.
Hann er mér jafn-
mikilvægur og að
taka með mér bíl-
lyklana þegar ég fer
út á morganana.“
Áttu þér tísku-
fyrirmynd? „Já, ég á
nokkrar vinkonur á
Pinterest.“
Grænn kjóll
frá Zara er
skemmtileg flík
yfir eða undir
með öðru.
Þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum,
klæðningum og einingum
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
styrkur - ending - gæði
HÁGÆða DaNSKar
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
B
-0
8
F
4
1
C
6
B
-0
7
B
8
1
C
6
B
-0
6
7
C
1
C
6
B
-0
5
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K