Fréttablaðið - 10.03.2017, Page 26
Strandbúnaður stendur að ráðstefnu fyrir fiskeldi, skel-dýra- og þörungarækt sem fer
fram á Grand hóteli 13. og 14. mars.
Þar verða flutt tæplega 50 erindi í
átta málstofum. Staða, framtíðar-
sýn og skipulag strandbúnaðar á
Íslandi verður rætt auk þörunga-
ræktunar og nýtingar þörunga svo
eitthvað sé nefnt. Stórþörungar og
náttúrulegir kalk- og kísilþörungar
hafa um nokkurt skeið verið nýttir
á Íslandi en ræktun smáþörunga er
ung atvinnugrein í hraðri sókn. Nú
eru starfandi a.m.k. fimm fyrirtæki
sem eru að hasla sér völl í ræktun
smáþörunga. Ræktunin á Íslandi fer
fram í lokuðum kerfum, sem felur í
sér rekstraröryggi og hreinleika sem
skilar hærra vöruverði á markaði,
borið saman við þörunga sem rækt-
aðir eru utanhúss á heitari og sól-
ríkari svæðum. Smáþörungaræktun
á Íslandi á því margt sameiginlegt
með gróðurhúsaræktun. Lífvirk
efni sem vinna má úr þörungum
eru margs konar, til dæmis er þegar
verið að vinna bæði andoxunar-
efnið astaxanthin og fitur sem eru
ríkar af ómega-fitusýrum á Íslandi.
Kristján Leósson, framkvæmda-
stjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð
Íslands, segir að nokkur fyrir-
tæki sérhæfi sig í framleiðslu á
andoxunarefninu astaxanthin úr
þörungnum Haematococcus pluvi-
alis en í fyrirlestrum á ráðstefnunni
verði fjallað um ræktunartækni og
vinnslu út frá reynslu tveggja slíkra
fyrirtækja. „Á síðustu 5 árum hafa
verið stofnuð nokkur fyrirtæki sem
eru að þróa smáþörungaræktun
innandyra. Það sem þarf til fram-
leiðslunnar er vatn, koltvísýringur,
næring og mikil lýsing,“ útskýrir
Kristján. „Aðgangur að hreinu vatn
og umhverfisvænu rafmagni gefur
möguleika á jafnri framleiðslu allt
árið þar sem hreinleiki er tryggður
og vistspor lágmarkað. Einnig hefur
verið til skoðunar að nýta koltví-
sýringsafgas frá jarðhitavirkjunum
fyrir smáþörungaframleiðslu.“
Andoxunarefni úr smáþörungum
eru notuð í fæðubótarefni og í lyfja-
iðnað. „Smáþörungar eru mjög fjöl-
breytt tegund og enn er þörf á mik-
illi þróunar- og rannsóknarvinnu
til að kortleggja nýtingarmöguleika
þeirra. Fyrirtækin á Íslandi eru enn
sem komið er aðallega að ein-
beita sér að andoxunarefnum og
fitusýrum úr smáþörungum. Þetta
er atvinnugrein í þróun og með
mikla framtíðarmöguleika,“ segir
Kristján.
Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað
um ræktunartæknina.
Frekari upplýsingar má finna á heima-
síðunni www.strandbunadur.is
Smáþörungavinnsla er
vaxandi atvinnugrein
Strandbúnaður er félag sem ætlað er að stuðla að faglegri og fræðandi um-
fjöllun um strandbúnað og styðja þannig við menntun, rannsóknir, þróun og
stefnumótun innan greinarinnar. Strandbúnaður er samheiti yfir atvinnugreinar
sem tengjast nýtingu land- eða sjávargæða í og við strandlengju landsins.
Í næstu viku verður ráðstefna fyrir
fiskeldi, skeldýra- og þörungarækt
á Grand hóteli. Ráðstefnan fer fram
dagana 13.-14. mars.
Grand Hótel Reykjavík
13.-14. mars
Strandbúnaður á Íslandi: Staða, framtíðarsýn og skipulag
www.strandbunadur.is
Skráning fer fram á www.strandbunadur.is
Ræktun bláskeljar
Mánudaginn 13. mars - Afhending gagna 12:00
Þriðjudagurinn 14. mars
Málstofa - sameiginleg - Gullteigur
Þörungarækt og nýting
þörunga
Málstofa A1 - Gullteigur
Framtíð bleikjueldis á Íslandi
Málstofa B1 - Hvammur
Málstofa A2 - Gullteigur A Málstofa B2 - Gullteigur B
Íslenskur strandbúnaðar og alþjóðlegt samhengi
Menntun í strandbúnaði
Málstofa - sameiginleg - Gullteigur
Framtíð laxeldis og um-
hverfismál
Vaxtarsprotar strandbúnaðar
Málstofa A3 - Gullteigur A Málstofa B3 - Gullteigur B
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
4 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . m a r S 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
A
-F
A
2
4
1
C
6
A
-F
8
E
8
1
C
6
A
-F
7
A
C
1
C
6
A
-F
6
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K