Fréttablaðið - 10.03.2017, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.
geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Eitt af fyrstu verkefnum sjónvarpsstjörnunnar Mattys Matheson á Íslandi og tökuliðs hans var að heimsækja Ragnar Eiríksson á Dilli en Dill
varð á dögunum fyrsti íslenski veit-
ingastaðurinn til að hljóta Michelin-
stjörnu. „Við kíktum á Dill, héngum
þar og elduðum smá. Svo höfum við
bara verið að skoða Reykjavík og
ferðast um Ísland,“ segir Matty.
„Við könnuðum matarmenn-
inguna á Íslandi og kynntumst því
hversu ung hún í raun og veru er, ef
við miðum við önnur lönd. Sérstak-
lega á það við veitingahúsageirann.
Við fengum innsýn í hann og hvernig
hlutirnir hafa þróast á síðustu ára-
tugum, hvernig fólk var áður fyrr
mestmegnis að borða á börum,
búllum eða heima hjá sér. Ég meina,
fyrsti fíni veitingastaðurinn á Íslandi
var stofnaður fyrir einhverjum sextíu
árum, það er ekki langur tími.
Svo höfum við verið að skemmta
okkur og gera þessa hefðbundnu túr-
istahluti,“ segir Matty sem fór meðal
annars að sjá Gullfoss og Geysi og svo
baðaði hann sig í Gömlu lauginni við
Flúðir.
Matty fór svo í bílalúguna á BSÍ og
fékk sér svið sem honum þótti afar
bragðgóð. „Þau voru gómsæt, mjög
góð!“ segir Matty sem borðaði sviðin
með bestu lyst, meira að segja augun
líka.
Þótti hákarlinn ekki ógeðslegur
Matty bragðaði einnig á kæstum
hákarli. „Uhm, það var allt í lagi bara.
Ég held að þetta sé bragð sem maður
þurfi að venjast, eitthvað sem maður
þarf að hafa borðað alla sína ævi til
að kunna að meta. Þetta er einstakur
matur að mínu mati en þetta er ekki
sá matur sem ég fílaði mest af því sem
ég smakkaði í heimsókn minni. Þetta
var alls ekki ógeðslegt samt, eins og
mörgum þykir þetta.
Það er smá spes að það sé hálfgerð
skylda fyrir túrista að smakka kæstan
hákarl hér á Íslandi því þetta er bara
ammóníaklyktandi fiskbiti. Það er
mjög sterk lykt af hákarlinum, svo
bítur maður í hann og hann er frekar
bragðlaus en svo þegar maður byrjar
að tyggja þá er eins og bragðið losni
úr læðingi. Einhver sagði mér að ég
ætti að prófa þetta með smá ostbita.
Kæsti hákarlinn er kannski tilvalinn
fyrir þá sem elska mjög sterka osta.
En ég hef alveg smakkað osta sem
eru mun sterkari en hákarlinn sem ég
smakkaði,“ útskýrir Matty sem bjóst
við að hákarlinn liti mun verr út en
raun bar vitni. „Ég hélt að þetta yrði
einhver viðbjóður, eitthvert ógeðs-
legt kjöt í einhverri tunnu. En svo var
þetta bara mjög fallegur, lítill hvítur
kjötbiti,“ segir hann og hlær.
Matty fór svo auðvitað á Bæjar-
ins bestu. „Jáá … ég veit ekki. Þetta
var fínt en ég veit ekki hvort pulsan
er eitthvað miklu betri
heldur en á einhverjum
öðrum pulsustað,“
segir Matty spurður út
í hvernig honum hafi
líkað pulsurnar á Bæjar-
ins bestu.
„Þetta er góð pulsa, en
þeir eru að bjóða upp á sömu
pulsuna og margir aðrir staðir. Ég
meina … ég er búinn að fá mjög
góðar pulsur á bensínstöðvum.
Helsti munurinn er kannski bara sá
að það er svo mikið að gera [á Bæjar-
ins bestu] að þeir eru með svo ferskt
hráefni. Það er meiri hraði hjá þeim
þannig að pulsurnar liggja aldrei
lengi í pottinum. En þetta er víst bara
einn af þessum hlutum sem maður
verður að gera á Íslandi, eitthvað sem
er mælt með.“
Þátturinn um heimsókn Mattys til
Íslands verður partur af þriðju þátta-
röð Vice-þáttanna Dead Set on Life.
Þáttaröðin verður sýnd í vor. „Við
gefum þættina út einhvern
tímann frá apríl til júní.
Þannig að það er stutt
í það.“
gudnyhronn@365.is
Fékk sér „gómsæt“
svið úr bílalúgu
Kanadíski kokkurinn Matty Matheson flaug af landi brott í gær eftir
að hafa dvalið á Íslandi í nokkra daga. Hann var hér á landi til að
kynnast íslenskri matarmenningu og taka upp sjónvarpsþátt.
Matty í miðjunni
ásamt teyminu á
bak við Dead Set
on Life þættina.
Matty Matheson
flaug af landi brott
í gær eftir að hafa
kynnt sér íslenska
matarmenningu.
Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna
á Spotify undir notandanafninu Vísir.
Föstudags-
playlisti
Lífsins
Karítas Óðinsdóttir
PLÖTUSNúÐUR
Plötusnúðurinn Karítas raðaði saman föstudags-playlist-
anum okkar þennan föstudaginn. Um er að ræða ákveðið for-
skot á sæluna því að Karítas spilar á Prikinu á morgun og ekki
ólíklegt að eitthvað af þessum lögum fái að hljóma þar á bæ.
FOLLOWPLAY
Prblms 6LACK
U-RITE THEY.
Big For Your Boots Stormzy
Make Love Gucci Mane ft. Nicky Minaj
I’m So Groovy Future
Culture Migos
Moves Big Sean
This Life Denzel Curry
Skateboard P Madeintyo
Shining Dj Khaled ft. Beyonce & Jay Z
Kynntu þér málið á 365.is
Glæsilegasta tískutímarit landsins
GLAMOUR fylgir
nú með Stóra- og
Risapakkanum
LAG FLYTJANDI
1 0 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r34 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
0
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
A
-F
F
1
4
1
C
6
A
-F
D
D
8
1
C
6
A
-F
C
9
C
1
C
6
A
-F
B
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
9
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K