SÍBS blaðið - 01.06.2015, Side 3
SÍBS BLAÐIÐ 2015/2 3
Leiðari
SÍBS-BLAÐIÐ
31. árgangur | 2. tölublað | JÚNÍ 2015
ISSN 1670-0031
Úgefandi:
SÍBS
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Sími: 560-4800
Netfang: sibs@sibs.is
Heimasíða: www.sibs.is
Ábyrgðarmaður:
Guðmundur Löve
gudmundur@sibs.is
Ritstjóri:
Páll Kristinn Pálsson
pallkristinnpalsson@gmail.com
Auglýsingar:
Öflun ehf.
Umbrot og prentun:
Prentmet ehf.
Upplag: 11.000 eintök
Berklavörn
SÍBS er samband félaga á sviði
brjóst holssjúkdóma með um sex
þúsund félagsmenn. SÍBS á og rekur
endurhæfingar miðstöð ina Reykja lund
og öryrkjavinnu staðinn Múlalund,
að ógleymdu Happdrætti SÍBS.
Íslendingar geta vænst þess að lifa
14 ár ævinnar við verulega færni-
skerðingu sem í flestum tilfellum
orsakast af langvinnum, lífsstíls-
tengdum sjúkdómum (Lancet 2012;
380:2144-62). Sumir tapa heilsunni
fyrir miðjan aldur en aðrir seinna,
en flestir eiga það sameiginlegt
að koma ekki til kasta heilbrigðis-
kerfisins fyrr en skaðinn er skeður.
Lausnin felst auðvitað í forvörnum,
en hvað þarf til að forvarnir virki?
Svarið er efling heilsulæsis, en í
heilsulæsi felst að hafa aðgang að,
skilja og nota upplýsingar sem stuðla
að góðri heilsu.
Upplýsingar um heilsusamlegt líf
þurfa að hitta fyrir alla þjóðfélags-
hópa á sem flestum viðkomustöðum
þeirra í samfélaginu, hvort sem það
er í skólum, hjá íþróttafélögunum, á
vinnustöðum, í verslunum, í fjöl-
miðlum, hjá heilbrigðisstofnunum
eða annars staðar.
Til að upplýsingar komi að gagni
þarf fólk einnig að skijla þær, svo
sem að kunna skil á eiginleikum
næringarefna og áhrifum hreyfingar,
streitu, svefns og andlegs ástands.
Í þessum efnum stöndum við
fræðslu um áhrif reykinga og vímu-
efnanotkunar enn langt að baki, svo
dæmi sé tekið.
Til að upplýsingar og skilningur skili
sér síðan í árangri, þarf einnig að
skapa vettvang til að notfæra sér
þessa kunnáttu. Skólakerfið getur
stuðlað að aukinni hreyfingu ung-
menna innan og utan íþróttatíma,
vinnustaðir geta komið sér upp
búningsklefum og hjólageymslu,
bæjaryfirvöld geta lagt göngu- og
hjólastíga og ríkisvaldið getur fjárfest
í eða veitt skattaafslætti vegna
heilsueflandi verkefna.
Samkvæmt skýrslu Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar Global Burden
of Disease 2013 nemur árlegur
heilsufarsskaði (glötuð góð æviár)
Íslendinga yfir 350 milljörðum króna
á ári, sé hann margfaldaður upp
með vergri landsframleiðslu á mann.
Fjármagn til beinna forvarna utan
heilbrigðiskerfisins nemur aðeins um
hálfum milljarði á ári meðan fjármagn
til viðbragðsdrifna kerfisins (sjúkra-
húsa, endurhæfingar, hjúkrunar,
heilsugæslu, lyfja og hjálpartækja,
lækna og þjálfunar) nemur um 140
milljörðum.
Þessa slagsíðu þurfum við að rétta,
og kjörið verkfæri til þess er efling
heilsulæsis. Aðeins þannig getum
við eflt heilbrigði og dregið úr þeim
persónulega og þjóðhagslega skaða
sem sjúkdómsbyrðin veldur.
Heilsulæsi og mann
auður framtíðar
Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS
4 Hreyfing – mikilvæg
heilsuhegðun
8 Hreyfing íslenskra ungmenna
11 Æfum bæði þol og styrk
16 Hreyfing í góðum félagsskap
18 Í formi fyrir golfið
20 Jafnvægi og liðleiki
24 Vatnsþjálfun – eykur
þol og léttir lund
28 Fjölþætt heilsurækt – leið
að farsælli öldrun
Seltjarnarneskaupstaður