Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Blaðsíða 4
barna og sefar hungurkvalirnar örfáar
mínútur sjálfa jólanóttina. Hann syngur
um kærleika guðs, sem drepur ekki ör-
eigana úr sulti alveg umsvifalaust, held-
ur sendir blessaða jólahátíðina með ofur-
litla fróun mitt í myrkri skammdegisins.
flann sefar tilfinninguna, sem er að
vakna í brjósti hins þrautpínda, sem ein-
skis hefir notið af gæðum lífsins, fyrir
ranglæti því, sem hann lifir við. Og hann
fer að syngja um frið á jörðunni og
velþóknun guðs yfir mönnunum.
En hvað eru jólin fyrir þig fátæka al-
þýðukona? Eru þau draumur um ein-
hverja ofurlitla glaðningu frá sölum bur-
geisanna, — um mola af borðum hinna
ríku? Eða eru þau skýrasti boðskapur
ársins um öreigð þína? Ef til vill eru
þetta fyrstu jólin, sem þú hefir ekki haft
nokkur skilyrði til að gera ofurlitla til-
breytni fyrir börnin þín í röku kjallara-
holunni. Og þú segir í hjarta þínu: Nú
eiga jólin ekkert erindi til mín. Nú hafa
þau ekkert mér að færa.
En leggðu eyrun við, og jólin 'færa
þér meira en nokkurn tíma áður. Sjáðu
alla ljósadýrðina í búðargluggunum og
sjáðu alla fögru og glæsilegu munina.
Sjáðu stóru björtu salina, þar sem upp
er stillt prúðbúnum líkneskjum, fata-
ströngum og skrauthöttum, meðan þú ert
sama sem húsnæðislaus og getur ekki
náð í fat á hálfnakið barnið þitt. Settu
þig ekki úr færi, þar sem þú getur við
komið að kynna þér, hvernig burgeisarnir
sem búa í stóru og fallegu húsunum, ausa
of fjár í allskonar ónauðsynja prjálvörur
til að senda vinum sínum, sem hafa
gnægðir fjár og alls sem hjartað girn-
ist og með peningum verður aflað. Það
er lærdómsríkt, meðan þú átt engan eyri
til brýnustu nauðþurfta þín og barna
þinna. — Eeyndu ef þú getur að skygn-
ast um á borðunum í veizlunum, sem
haldnar verða um jólin og líttu á rétt-
lætið, sem ríkir í þessu þjóðfélagi, þar
sem fjöldi manna hefir tækifæri að lifa
i argasta óhófi í mat og drykk, fatnaði
og hverskonar þægindum, meðan þú og
íjöldinn allur stéttarsystkina þinna, veit
ekkert hver ráð verða að slökkva hungur
sitt og sinna næsta dag.
Hversu fátæklegt, sem um er að litast
í hýbýlum þínum um þessi jól, þá mundu
samt faðma að þér ástvini þína og óska
þeim gleðilegra jóla. Hvað felur þú í
þeirri ósk? Hefir þú skilning á því, að í
þeirri ósk felur þú kröfu til barna þinna
um það, að þau láti jóladýrðina og jóla-
fagnaðinn sem þau sjá umhverfis sig og
fá ekki sjálf að njóta, opna augu sín
fyrir ranglæti hfsins, harðýðgi þess og
svívirðingum. Feldu í þeirri ósk þinni
kröfu um það, að að jólunum afstöðnum
verðið þið öll ákveðnari og hæfari til að
taka virkan þátt í baráttunni fyrir frels-
un stéttar þinnar og fyrir írelsun mann-
kynsins undan siðleysi auðvaldsskipulags-
ins. Og með þessa ósk í brjósti segi ég
við ykkur öll, stéttarsystkini mín:
Gleðileg jól.
Gunnar Benediktsson.
Halldór Stefánsson:
Þjófnaður.
Þvottarýjur og heitt sápuvatn er und-
irstöðuatriði heiðarlegrar atvinnu, engu
síður en vörur og vixillán. Blessun at-
vinnunnar veltur á hreinleik hjartans og
frómleik hugans. Vertu trúr yfir litlu og
ég mun setja þig yfir mikið, er fyrir-
heit, sem ekki má gleyma, þótt tekjurn-
ar af gólfþvotti, með hnýttum kerlingar-
2