Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Síða 6

Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Síða 6
Nú varð Gudda gamla að læra það í elli sinni, að hugsa, hún, sem aldrei hafði gert annað en þvo og eignast eina dóttur í hugsunarleysi. Og kennarinn var dóttur- sonurinn, sem lá sofandi fyrir ofan hana. Hún varð að hugsa um það, að hann færi ekki óeðlilega fljótt á eftir móður sinni. En það er erfitt að vinna verk, sem maður hefir aldrei fengist við fyrr, og Guddu fórst starfinn ófimlega. í stað þess að hugsa sem svo, að guð gleymi aldrei smælingjunum og heiðarleg vinna og sparsemi sé vegurinn til auðs og farsæld- ar, hélt hún að eina ráðið við sultargauli dóttursonarins væri að troða mat í munn- inn á honum. Nú hafði hún ekki haft þá reglu um langt skeið að hafa alltaf sama matmálstíma, féll stundum úr hjá henni dagur, ef hún hafði ekkert að þvo, en kennarinn vildi ekki heyra slíkt reglu- leysi, og þegar Guddu auðnaðist ekki að öngla saman úrlausnum, með vinnu eða betli, fór hún að eins og latur og slótt- ugur skólastrákur, sem stelur svörunum. 1 jólamánuðinum hafði Gudda af og til atvinnu við hreingerningar. Þetta gamla handverk hennar var nú allt í einu orð- ift blandið nýju takmarki: að stela alls- staðar, þar sem hún fekk eitthvað að gera. Hún gekk að þjófnaðinum með sömu samvizkuseminni og trúmennskunni og hún hafði vanist á að viðhafa í öllum sinum verkum. Votu augun hennar hugðu atalt að hverju tækifæri til að láta kjöt- bita og brauðsneiðar hverfa ofan í pils- vasann, sem hún hafði stækkað í þessu skyni. Kalkaður heilinn hugsaði upp alls- konar brellur, sem samboðnar voru korn- ungu höfði, til þess að fá húsmóðurina eða vinnukonurnar til að bregða sér frá matvælabirgðunum. Margar konurnar gáfu henni mat og mjólk handa dóttur- syninum, sem lokaður var inni í kjallar- anum meðan Gudda var að þvo, nema þeg- ar hún stund og stund gat komið honum fyrir hjá einhverri góðhjartaðri sál. En matargjafir þessar drógu ekkert úr stuld- um Guddu, hún safnaði í kornhlöður til vondu áranna: dagana, sem hún hafði enga atvinnu, því hinn fjögra ára gamli kennari tók ekkert tillit til slíkra frídaga. Þessi nýja köllun Guddu gömlu virtist hleypa óþekktu afli í hennar hálf- dauða skrokk. Hún hafði aldrei fyrr haft af reksturskrafti spenningsins að segja, jafnvel framleiðsla hennar á þessari einu dóttur hafði ekkert verið spennandi. En svo kom að því, að fyrirheitið um trúmennskuna og hjálp guðs við smæl- ingjana sannaði sig: Gudda var staðin að þjófnaðinum. 1 búri konu kaupmannsins, sem Gudda var að gera hreint hjá, voru óteljandi ctæmi hins ósvikna ríkismannsréttar, í búningi allavega litra dósa og ýmissa stærða af krukkum. Undirvitund Guddu sagði henni, að hér væru utanmörk verk- sviðs hennar, en heppnin gerir spilamann- inn djarfan og Gudda hafði ekki getað friðað samvizku sína með því að ná nokkru af hinu venjulega tæi. Henni heppnaðist að ná tveimur dósum og koma þeim fyrir í köi'fu, sem hún hafði haft með sér, og byrgja þær með einhverjum tuskum. En nú grípur forsjónin í taum- ana. Kona kaupmannsins var örlát og guð- hrædd og eins réttvís og sjálfur lögreglu- stjórinn. Þegar Gudda var að fara um kvöldið kallaði frúin á hana og ætlaði að gefa henni margskonar matvæli til jól- anna. Gudda stóð ferðbúin með körfuna í hendinni og átti engrar undankomu von, þegar frúin sagði henni að koma með körfuna svo hún gæti látið jólaglaðning- inn í hana. Nú sveik heilinn hana alveg, henni hugkvæmdist ekld neitt ráð undan hættunni. Frúin leit undrandi á Guddu. Iiví var kerlingin svona undarleg? Svo 4

x

Jólablað verkakvenna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað verkakvenna
https://timarit.is/publication/1224

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.