Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Side 8
í verkfalli. Er það vegna þess, að hann
er hatursfullur æsingamaður?
Þú veizt, að maðurinn þinn hefir unnið
baki brotnu allt sitt líf. Samt sem áður
er heimilið bjargarlaust. Þú veizt, að
allar skýringar borgarablaðanna eru him-
inhrópandi lygi. Hvernig stendur þá á
þessum ósköpum? Það hlýtur að verða
[Clara Zetkin cr eiu af hclztu forgöngu-
mönnum kommúnismans í þýzkalandi. Hún
ei ein af frcmstu bi'autryðj endum verka-
kvennalireyfingarinnar í auðvaldslöndunum.
Starfaði í náinni samvinnu við Rósu Lúxem-
burg, Liebknecht og Lenin. Nú er hún á ní-
ræðisaldri, en stendur samt jafnupprétt í eldi
stéttabaráttunnarj.
næsta spurningin. Þessari spurningu
verður þú að fá svarað. Fyrst verður að
grafast fyrir rætur meinsemdarinnar,
síðan að uppræta hana. Og nú kemst þú
að raun um, að það er eitthvað bogið við
það, að ljúga svona herfilega að þér um
orsök vandræða þinna og predika jafn-
framt að þú megir ekki hugsa um opin-
ber mál, að þú megir ekki grafast fyrir
rætur þess, sem þjáir þig. Og þú kemst
að raun um, að þú verður að hugsa um
opinber mál, þú verður að finna upp-
sprettu bölsins, og þú verður að finna
leiðir til að útrýma bölinu.
Ef þú útvegar þér rit þau, sem Kom-
múnistaflokkur íslands gefur út, ef þú
útvegar þér „Verklýðsblaðið“, tímaritið
„Rétt“ og bækur og rit sem gefin eru
lit að tilhlutun Kommúnistaflokksins,
fær þú fulla skýringu á því, hvernig á
því stendur að verkamaðurinn og verka-
konan, sem hafa unnið baki brotnu allt
sitt líf og skapað verðmæti, skuli ekki
hafa málungi matar. Þú færð skýringu á
því hvernig stendur á því að miljónir
manna skuli þurfa að svelta og ganga
klæðlitlir, mitt í allsnægtum matar og
fata og alls þess, sem til lífsins þarf.
Sökina á allri þessari vitfirringu á nú-
verandi skipulag, þar sem allt er fram-
ieitt í gróðaskyni fyrir einstaka menn,
en ekki til þess að uppfyila þarfir hins
vinnandi mannkyns. Þegar atvinnurek-
andinn hættir að græða á vinnu verka-
mannsins, þegar verkamaðurinn er bú-
inn að framleiða svo mikið af verðmæt-
um, að þau seljast ekki lengur, vegna
takmarkaðrar kaupgetu, segir hann hon-
um upp vinnunni. Og eigendur varanna
hafa engan hagnað af því að láta þær
af hendi nema fé komi fyrir, sem svarar
verðmæti þeirra. Nú hefir verkamaður-
inn ekkert fé milli handanna, þegar búið
er að svifta hann atvinnunni. Þessvegna
verður hann að líða skort. En eigendur
varanna láta eyðileggja þær til að minkna
framboðið og halda uppi verðinu.
Þannig eru hinar vitfirrtu mótsetning-
ar auðvaldsskipulagsins. En á öllu þessu
færðu nánari skýringar, ef þú lest rit
kommúnista.
6