Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Síða 18
eins og árið áður, það var í alla staði
skynsamleg og góð ráðstöfun, því að þá
gekk vinnan jafnar yfir og skipin þurftu
ekki að bíða með síldina og láta hana oft
og tíðum skemmast. Það skýrðist fyrir
mér að hér var um stéttabaráttu að gera,
burgeisarnir vildu eyðileggja söltunarfé-
lögin, og vegna þess að ég vann hjá sölt-
unarfélagi, hafði ég fyrir þessa svívirði-
legu ráðstöfun þeirra, mikið minni vinnu
en stúlkur sem unnu hjá stóru saltend-
unum: Ingvari, Ásgeiri Péturssyni o. fl.
Ég sá að það rétta var að verkalýðurinn
saltaði sjálfur síldina án milliliða, sem
eru verkalýðnum til bölvunar og einskis
annars.
En það var annað atvik sem ég stóð
undrandi yfir. Á Siglufirði voru nefni-
lega tvö verkakvennafélög. Verkakvenna-
félagið „Ósk“ var hið upphaflega félag
og hafði altaf unnið að því að halda
taxtanum uppi og það með dágóðum á-
rangri, en s. 1. sumar kom babb í bátinn.
Nokkrar konur höfðu klofið félagið um
veturinn, fyrir tilstilli Guðm. Skarphéð-
inssonar og myndað nýtt félag, sem kom
fram með sinn eigin taxta og var hann í
mörgum liðum lægri en taxti Óskar; með
þennan taxta gengu þær um eins og
frelsarar útgerðarmanna og þeim veitt-
ist auðvitað ekki ei-fitt að fá undirskrift-
ir þeirra. Hjá söltunarfélaginu þar sem
ég vann, var taxti Óskar borgaður og að
nokkru leyti víðar. Það gefur að skilja,
að erfitt var fyrir Ósk að halda sínum
taxta uppi, þar sem hópur stéttvilltra
kvenna barðist fyrir kauplækkun og neit-
aði að halda sameiginlegan fund þar sem
hægt væri að sameina taxtana.
Það má búast við því, að þessar kon-
ur reyni að koma fram kauplækkun
næsta sumar, en þessar athafnir þeirra
hafa vakið svo mikinn viðbjóð hjá fjöld-
anum, að vonandi er að þær hætti sínu
illa starfi í þágu útgerðarmannanna.
Ég vil að edingu hvetja allar þær kon-
Stúlknr ú barnaheimili i Rússlaiidi.
16