Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Page 20
í Rússlandí.
Grein þessi er eftir enskan bamakennara,
sem ferðaðist um Rússland og kynnti sér
bundruðir barnaskóla Ráðstjórnar-Rússlands.
17.612.671 börn frá aldrinum 8—14 ára sækja
nú skóla í Sovét-Rússlandi. Á keisaratímun-
um voru skólabörnin 7.325.988 og er það tölu-
vert meira en lielmingi færra.
En þó þessar tölur séu skýrar og ótvíræðar,
segja þær ekki nema hálfa sögu. Hvernig eru
skólarnir? Hvað læra börnin? Hver eru kjör
kennara. Hvernig samband er milli kennara
og barna í þessum skólum?
þessum spurningum ætla ég að reyna að
leysa úr samkvæmt þeim svörum, sem ég fékk
við fyrirspurnum mínum til fræðslumála-
stjóra hins opinbera, kennara, foreldra og
barna í Rússlandi.
Eg ætla að taka það fram strax, að þó að
skólaskylda byrji ekki í Rússlandi fyr en a
átta ára aldri, ber ekki að skilja það svo,
að ekkert sé gert fyrir börnin fram til þess
aklurs.
í Englandi er mjög lítið um hin svokölluðu
dagheimili, þar sem foreldrarnir geta örugg
kornið börnunum fyrir, þegar þau eru svo
upptekin við vinnu og annað, að þau geta
ekki sinnt þeim. í Rússlandi er ekki nokkur
verksmiðja og vinnustöð svo, að ekki sé þar
dagheimili fyrir börn verkafólksins. í Rúss-
landi eru líka ákaflega margir barnaleik-
vellir og barnaheimili og er allur útbúnaður
cftir nýjustu tíszku. Ungbarnaheimili eru þar
líka og njóta hvitvoðungar verkamanna þar
aðhlynningar hinna æfðustu hjúkrunarlcvenna.
j^egar ég sagði frá því, að í Englandi væru
aðeins 72 ungbarnaheimili ætluðu Rússamir
ekki að trúa mér.
Nú víkur sögunni aftur að hinum venju-
legu skólum, skólaskyldra barna, 8—15 ára.
Skólahús og kennslutæki eru jafnaðarlega í
góðu lagi. Við og við rekst maður á gamla
iagið, slæm húsakynni og úrelt kennslutæki.
En stöðugt er nýjum og.nýjum skólum að
skjóta upp, sem eru góðir og jafnvel betri en
þeir, sem eru hér hjá okkur i Englandi.
En hvað læra nú bömin i þessum skólum.
I skóla 7 ára barna er kennslan fjölbreytt
og alhliða. Börnunum er ekki aðeins kennt
á bókina, heldur líka ýmiskonar störf, sem
við þeirra hæfi eru og svo leikir, sem eru þeim
hollir líkamlega og andlega.
Hver skóli er rekinn í sambandi við verk-
smiðju, samvinnubú, ríkisbú eða dráttarvéla-
stöðvar, einkum eldri bekkirnir. Samband
yngstu bekkjanna við þessar vinnustöðvar
felst einkum í lieimsóknum á vinnustöðvarn-
ar og gönguferðii' úti í náttúrunni. En stálp-
aðri börnin vinna jöfnum höndum í verk-
smiðjunum arðbæra vinnu. Börnin eru mjög
áhugasöm. Sérhvert ráðstjómarbarn langar,
að einhverju leyti til að taka þátt í fram-
leiðslu verksmiðjunnar. Börnunum er öllum
kunnugt um starfsáætlanir verksmiðjanna og
bjóðast iðulega til þess að vinna ýms störf
þar. I einni verksmiðjunni tóku börnin upp
hjá sér sjálf að gefa verkamönnunum í einni
vinnudeild verksmiðjunnar tilbúinn úlfalda,
leikfang. En úlfaldinn er almennt skoðaður
sem tákn seinagangs og rólyndis. Sagan
segir að verkamönnum hafi þótt nóg um
áminninguna.
Verkamenn gefa líka mikinn gaum að skól-
unum, og hlynna að þeim á allan hátt. þeir
verja miklum tíma í að innrétta vinnustofur
fyrir börnin, undirbúa smáferðii’, útilegur í
fríum þeirra o. s. frv. Eins og eðliegt er,
verður kynning barnanna við verkamennina
ákaflega náin með þessu móti, þau læra að
meta og virða starfið og þá sem vinna það.
Auk venjulegra launa hefir kennarinn að
minnsta kosti 2 mánaða sumarfrí og eftirlaun
eftir 25 ára starf, sem svarar 50% af launum
hans. í þorpunum hafa kennarar vanalega
ókeypis húsnæði ljós og liita.
Kennarinn er aðnjótandi hinna félagslegu
trygginga við slysum, atvinnuleysi og læknis-
hjálp.
Börn og kennarar eru félagar í hinni eigin-
Icgu merkingu þess orðs. Aginn er i höndum
barnanna sjálfra að miklu leyti. Líkamleg
barsmíð er óleyfileg enda ekki nauðsynleg.
Tilhögun kennslunnar, fræðslan sjálf, gjörir
skólana aðlaðandi fyrir börnin. Sjálfviljug og
ánægjuleg ganga þau að verkefnum sínum.
ÓDÝRAR SKÓVIÐGERÐIR! Karlmanasóln-
ing með hælum kr. 6.00. Kvenm. söln-
ing með hælum 4,50. Aðrar viðgerðir
þar eftir. — Skóvinnustofan
Frakkast. 7. KJARTAN ÁRNASSON.
1S