Fréttablaðið - 06.04.2017, Page 18

Fréttablaðið - 06.04.2017, Page 18
Fjárf e sti ng vogunar-sjóðanna og bandaríska fjárfestingarbankans Goldman Sachs á 29,2 prósenta hlut í Arion banka fyrir um 49 millj- arða er samtals varin að tæplega helmingshluta gagnvart gengisflökti krónunnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Mótaðili sjóðanna í þeim gjaldmiðlaskiptasamningum, eða sá sem er skuldbundinn til að afhenda þeim gjaldeyri í skiptum fyrir krónur, er Íslandsbanki. Sjóðirnir eru misjafnlega mikið varðir fyrir gengisþróun krónunn- ar. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru vogunarsjóðirnir Taconic Capital og Attestor Capi- tal, sem keyptu hvor um sig 9,99 prósenta hlut, með samninga um gengisvarnir sem nema í kringum 40 prósentum af fjárfestingu þeirra. Bandaríski vogunarsjóðurinn Och-Ziff Capital, sem á 6,6 pró- senta hlut í Arion banka, lagði hins vegar á það mikla áherslu að fjár- festing sjóðsins í bankanum yrði að stærstum hluta varin gagnvart gengi krónunnar. Ekki hafa fengist stað- festar upplýsingar um gengisvarnir Goldman Sachs en fjárfestingar- bankinn keypti 2,6 prósenta hlut í bankanum fyrir um 4,3 milljarða. Heildarfjárhæð þeirra gjaldmiðla- skiptasamninga sem fjárfesta- hópurinn stóð að í tengslum við kaupin í Arion banka, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, er því á bilinu 20 til 25 milljarðar. Vill fjárfesta í krónunni Þegar gengið var frá kaupsamkomu- lagi við Kaupþing í byrjun febrúar – fjárfestarnir eru jafnframt stærstu hluthafar Kaupþings – var það meðal annars háð fyrirvörum um að Seðlabanki Íslands myndi veita undanþágu frá lögum um gjald- eyrismál vegna útgáfu slíkra afleiðu- samninga í tengslum við fjárfest- ingu sjóðanna í Arion banka. Um tveimur vikum síðar tilkynnti Seðla- bankinn að hann teldi nú forsendur fyrir hendi til að veita tilteknar undanþágur vegna afleiðuviðskipta til varanlegra áhættuvarna. Í tilkynningunni sagði jafnframt að heimild fyrir útgáfu afleiðu- samninga væri háð ýmsum skilyrð- um, svo sem tímalengd og hlutfalli varna, til að „tryggja að afleiðuvið- skiptin verði raunverulega gerð í þeim tilgangi að verjast gjaldeyrisó- jafnvægi yfir lengri tíma, en ekki til stöðutöku með eða á móti íslensku krónunni.“ Engar undanþágur eru því veittar vegna afleiðuviðskipta til spákaupmennsku. Verja fjárfestinguna að helmingshluta Vogunarsjóðirnir gerðu gjaldmiðlaskiptasamninga til að verjast gengisflökti krónunnar sem nemur rúmlega 40 prósentum af fjárfest- ingu þeirra í Arion banka. Íslandsbanki var mótaðili sjóðanna í afleiðuviðskiptunum. Och-Ziff með hlutfallslega mestu gengisvarnirnar. Vogunarsjóðir og Goldman Sachs borguðu um 49 milljarða fyrir 29 prósenta hlut í Arion banka. FréttAblAðið/Eyþór Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Spurður hvort sjóðurinn væri ekki með varnir gegn sveiflum í gengi krónunnar, sem sögulega séð hafa oft verið miklar, sagði Frank Brosens, stofnandi og eigandi Taco- nic Capital, í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu 20. mars síðastliðinn að hann væri þeirrar skoðunar, með hliðsjón af styrkleika íslenska hag- kerfisins, að krónan myndi haldast sterk og sjóðurinn vilji því fjárfesta í henni. „Við viljum hins vegar ekki vera algjörlega varnarlausir gagn- vart gengissveiflum og því höfum við gert skiptasamninga til að verja fjárfestingu okkar í bankanum að hluta fyrir gengisþróun krónunnar,“ sagði Brosens. Ekki með atkvæðisrétt Samhliða því að sjóðirnir keyptu tæplega 30 prósent í Arion banka var jafnframt um það samið að sömu sjóðir gætu nýtt sér kauprétt að 22 prósenta hlut til viðbótar, sem verður á hærra verði en þeir keyptu á í síðasta mánuði, áður en fyrir- hugað hlutafjárútboð og skráning á þeim hlut sem eftir stendur í eigu Kaupþings verður haldið. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er stefnt að almennu útboði næst- komandi haust en nýti sjóðirnir sér kaupréttinn, sem fastlega er gert ráð fyrir, mun Kaupþing þurfa að selja um 36 prósenta hlut í gegnum hlutafjárútboð. Þrátt fyrir að vogunarsjóðirnir fari ekki núna með virkan eignar- hlut í Arion banka, en hann mið- ast við meira en tíu prósenta hlut í fjármálafyrirtæki, þá hafa full- trúar þeirra gefið út að þeir hafi slík áform og muni tilkynna Fjármála- eftirlitinu (FME) um þá fyrirætlan svo stofnunin geti lagt mat á hæfi þeirra til að fara með virkan hlut í bankanum. Þá hefur FME þegar upplýst að hafinn sé undirbúningur að slíku hæfismati og meðal annars sé búið að koma á tengslum við fjár- málaeftirlit annarra ríkja þar sem sumir sjóðanna hafa starfsleyfi eða hafa verið metnir hæfir sem virkir eigendur. Á meðan sú vinna FME stendur yfir hafa vogunarsjóðirnir jafnframt fallist á að eignarhlutum þeirra í Arion banka fylgi ekki atkvæðisréttur að svo stöddu. Fimm með meira en helming Vogunarsjóðurinn Taconic Capital er langsamlega stærsti og áhrifa- mesti hluthafi Kaupþings. Allt frá því um mitt síðasta ár hefur sjóður- inn staðið að uppkaupum á bréfum annarra hluthafa í félaginu, meðal annars megninu af sex prósenta hlut Seðlabankans í nóvember í fyrra. Á aðeins nokkrum mánuðum bætti vogunarsjóðurinn við sig meira en 20 prósenta hlut í Kaupþingi en í dag á Taconic Capital um 40 prósenta hlut. Frá því var greint í Viðskipta- blaðinu síðastliðinn fimmtudag að fimm fjárfestar ættu meira en helm- ingshlut í þeim sjóði sem stendur að baki kaupum Taconic Capital í Arion banka. Þar væri um að ræða norður- amerískan lífeyrissjóð, asískan líf- eyrissjóð, bandarískan sjóðasjóð, fjársterka fjölskyldu frá Bandaríkjun- um og síðan Brosens sjálfan, eiganda vogunarsjóðsins. Engir íslenskir fjár- festar hafa sett fjármuni í sjóðinn sem heldur utan um fjárfestinguna í Arion banka, né aðra sjóði á vegum Taconic Capital, samkvæmt þeim upplýsingum sem Viðskiptablaðið fékk frá vogunarsjóðnum. Keyptu 29,2% hlut á 48,8 milljarða Taconic Capital Attestor Capital Och-Ziff Capital Goldman Sachs 9,99% 9,99% 6,6% 2,6% 16,7 milljarðar 16,7 milljarðar 11 milljarðar 4,3 milljarðar 49 milljarðar er fjárfesting erlendu aðilanna í Arion. mArkAðurinn 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r18 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 E -1 5 4 8 1 C 9 E -1 4 0 C 1 C 9 E -1 2 D 0 1 C 9 E -1 1 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.